Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.1996, Blaðsíða 43

Bókasafnið - 01.06.1996, Blaðsíða 43
Starfifólk Þjóðdeildar meðpiparkökubókhlöðu, sem þau bökuðu saman fyrir jólin 1995. • Safn prófessors Jóns Steffensens er þvervísindalegt. Þar eru samankomin læknisfræði, mannfræði og sagn- fræði. Er það safn ómetanlegt fyrir þá sem vilja kynna sér sögu heilbrigðismála. • Safn Benedikts S. Þórarinssonar, sem er blandað að efni, býður upp á margs konar rannsóknir. Það hefur sérstöðu hvað varðar eldra efni, ekki bara bækur heldur líka dagblöð, tímarit, póstkort, flugrit og smárit af ýmsu tagi. • I skáksafni Willards Fiskes eru fágæt rit um skák og sögu skáklistarinnar. Eru mörg hver í afar fallegu bandi. Ekki er einungis um að ræða fágætt innihald bókanna heldur má og lesa sögu bókagerðar og bókbands úr safn- inu. • Biblíusafnið sem Ragnar Þorsteinsson kennari gaf vekur ævinlega athygli gesta og er það að vonum því þar getur að líta Biblíuútgáfur á meira en 1220 tungumál- um. • Sænska safnið svokallaða eru tvær gjafir frá sænska þjóðþinginu. Sú fyrri er frá alþingishátíðinni 1930, sú síðari frá afmæli 1100 ára byggðar í landinu eða frá ár- inu 1974. Þarna er meðal annars um að ræða íslenskar bókmenntir gefnar út á sænsku. Ennfremur gefur að líta sænskar bókmenntir og sænska menningarsögu. Lang- flestar bækurnar eru bundnar í vandað band. • Safn valinna erlendra fágætisbóka sómir sér vel í sér- safnarýminu. Allar bækurnar hafa menningarsögulegt gildi og sumar voru valdar vegna fagurs útlits, aðrar vegna sérstaks innihalds og enn aðrar vegna sérstöðu í prentlistarlegum skilningi. Hér getur að líta sýnishorn af ýmsu því stórbrotnasta sem prentlistarsagan hefur upp á að bjóða. • Bækur úr bókasafni skáldjöfursins Einars Benedikts- sonar eru meðal efnis í sérsafnarýmini. Mest eru það er- lendar bækur í skinnbandi. • Mark Watsson safnaði öllum bókum um ísland og ís- lendinga á öðrum málum en íslensku. Hann vildi að safn sitt gagnaðist útlendingum sem gistu Island og vildu vita meira um land og þjóð. • Vesturheimsprent í safhi Davíðs Björnssonar er mik- ilvægt þeim sem skoða vilja útgáfur Vestur-íslendinga. • Safn leikbókmennta, sem Lárus Sigurbjörnsson safn- aði, er einstætt og afar mikilvægt rannsóknum í íslenskri leiklist og leiklistarsögu. • Kortadeildin mun einnig hafa sérstöðu. Hefur þegar orðið til myndarlegur vísir að fágætissafni á því sviði með tveimur merkum gjöfum íslandskorta á árinu 1995 til viðbótar við fyrri kortaeign safnsins. Kortin komu úr safni Kjartans Gunnarssonar lyfjafræðings. Annars veg- ar gaf Samband íslenskra sveitarfélaga 12 kort úr safninu í júni. Hins vegar tóku bankarnir og Visa á Islandi sig saman um að kaupa þau 72 kort sem eftir voru og gáfu þá gjöf 1. desember, á ársafmæli stofnunarinnar. Þarna er urn að ræða söguleg kort, en deildin á jafnt gömul kort sem ný. Haraldur Sigurðsson bókavörður ánafnaði deildinni álitlegu safni kortabóka. Koma þarf kortasafn- inu á laggirnar sem fyrst og mun það verða einstakt í sinni röð. Svona mætti lengi telja ágæti sérsafnanna hvers um sig. Hængur er á, að skráning á ritum sérsafnanna er skammt á veg komin. Sérsöfnin eru einnig falleg ásýndar. Athygli vekur fallegt band á mörgum bókum. Frá bóksögulegu sjónarmiði hafa þau mikið gildi. Sérsafnarýmið verður sannkölluð perla í Þjóðdeildinni í fyllingu tímans. Fræðimenn sækja í sérsöfnin í síauknum mæli, en þar er rannsóknaraðstaða fyrir fjóra til fimm gesti. Finnst þeim ákaflega þægilegt að hafa allt efni til rannsóknar sinnar á einum stað. Þjónusta Þjóðdeild er einkum ætluð þeim, sem eru að rannsaka Bókasafhið 20. árg. 1996 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.