Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.1996, Blaðsíða 70

Bókasafnið - 01.06.1996, Blaðsíða 70
Rannsóknatengt M.A. -nám Félagsvísindadeild býður upp á mjög takmarkað rann- sóknatengt M.A.-nám sem er bundið því að nemendur fái styrk úr Rannsóknanámsjóði. Tveir nemendur eru nú við slíkt nám í bókasafns- og upplýsingafræði. Eru það Ingi- björg Sverrisdóttir og Agústa Pálsdóttir. Enn sem komið er eru ekki miklar líkur til þess að M.A.-námið verði almenn- ara vegna fjárskorts og ekki er við því að búast að hér verði miklar breytingar á í nánustu framtíð. Hins vegar gætu opnast möguleikar í sambandi við ERASMUS samstarfs- netið sem áður er nefnt. Eins og fram kemur hér á undan er unnið að því að greinin verði þátttakandi í nýju sam- starfsneti sem verið er að undirbúa. Þar með mundi opnast leið fyrir nemendur að taka námskeið á sínu sérsviði við er- lenda skóla enda þótt rannsóknarverkefni yrði alfarið unn- ið á Islandi. Framtíðin Mikill niðurskurður hefur nú verið boðaður í félagsvís- indadeild og fer bókasafns- og upplýsingafræðin eklú var- hluta af því. Stærð greinarinnar er ekki heppileg fyrir nýtt reiknilíkan og sérstaða greinarinnar til starfsþjálfunar hefur ennþá ekki fengist viðurkennd í líkaninu. Enn er verið að herða að með valnámskeið og nú má ekki kenna valnám- skeið ef færri en sjö eru skráðir. Einnig hefur verið farin sú leið að draga úr Vettvangsnáminu í bili vegna þess hversu dýrt það er. Það er með miklum efasemdum sem þessi leið hefur verið farin en á þessari stundu virtist ekki önnur leið betri. Á hinn bóginn er augljóst að námið er að verða vin- sælla og benda má á að í námskeiði um Internetið sem í boði var á haustmisseri 1995 voru nær 100 nemendur úr ýmsum deildum Háskólans. Það hefur verið mjög ánægju- legt fyrir nemendur okkar að vera skyndilega með færni sem eftirsótt er meðal annarra nemenda. Allir sem kunna að nota Internetið til hins ítrasta og kunna að búa til heimasíður eru í tísku í dag! Það hlýtur að teljast mjög mikilvægt fyrir grein eins og okkar að hætta ekki að bjóða upp á námskeið sem eftir- spurn er eftir og halda áfram að koma með nýjungar enda þótt þrengi á dalnum. Hættulegast væri fyrir okkur að halda of fast í gamlar hefðir og neita að horfast í augu við þær breytingar sem sviðið stendur frammi fyrir í aldarlok. Það eru fyrst og fremst vaxtarbroddar á upplýsingasviðinu sem geta gert greinina samkeppnisfæra í framtíðinni. Einn þáttur sem ég tel mjög mikilvægan í framtíðinni er fjarnám. Tækni sú er Háskóli íslands býr yfir er ein sú besta sem völ er á í heiminum og landið svo til allt tölvuvætt. Því ætti að vera greið leið að mennta fólk til starfa í upplýsinga- málum um allt land. Dreifbýlt land eins og ísland þarf að sinna þörfum þeirra sem ekki hafa aðstöðu til að taka sig upp og flytja um lengri eða skemmri tíma til Reykjavíkur. Með fjarnámi mætti byggja upp aukna þekkingu á málum bókasafna og upplýsingastofnana um allt land. Verkefni og aðferðir greinarinnar breytast ört og mikil ábyrgð hvílir á þeim sem eru í forsvari fyrir kennslunni að þeir fylgist vel með og séu tilbúnir að tileinka sér nýjungar og leiða þróun þrátt fyrir samdrátt og sparnað. Ekki er ábyrgðin heldur minni á stéttinni sjálfri að efla færni sína í sífellu. Sterkur vilji er meðal margra í stéttinni að breyta heiti hennar. En ef menn vilja geta kallað sig upplýsinga- fræðinga verða þeir að hafa nægilega gott nám að baki í því nýjasta sem fram kemur á upplýsingasviðinu á hverjum tíma til að geta staðið undir því nafni. Efla þarf rannsókn- ir innan stéttarinnar því ákaflega margt sem snertir þróun greinarinnar er ókannað. Það hlýtur að verða eitt af megin- verkefnum stéttarinnar á næstu fimm árum að efla rann- sóknir og hefja greinina til vegs og virðingar með þekking- arsköpun ekki síður en þekkingarmiðlun. SUMMARY Library and Information Science Education in Iceland - 40th Anniversary Traces briefly the history and development of education for librarians in Iceland which was initiated in 1956 by the University Librarian. Before that a few Icelanders studied librarianship abroad, in Norway, Denmark and the U.K. The first one became the City Librarian in Reykjavík upon his return from Copenhagen in 1923. At first, library education was org- anized as an addition to other university studies, mainly Icelandic and hi- story, with emphasis on cataloging and classification. During the first ye- ars just a few students enrolled, the first one completed a Bachelor’s Degree in 1964. During the next ten years 16 students graduated with library science as a major. The first student returned to Iceland after completing a Master’s Degree from the U.S.A. in 1966. During the years 1972-1976 the Program was revised and restructured with advisers from the U.K. and the U.S.A. A course- and credit system was adopted, speci- alized courses were developed and more part time teachers employed. The Association of Professional Librarians was founded in 1973 and one of its goals was to enhance library science education. In the fall of 1975 the first full time lecturer was appointed and at the same time a Fulbright profess- or came to Iceland for one semester. The following year a new faculty was established at the University, the Faculty of Social Science, where library education was included. Since then the development of library and in- formation science education has been in line with the other academic dis- ciplines within that Faculty. In 1995 the Library and Information Sci- ence Program employed four full time teachers and six part time ones. A new revision of the Program was carried out in 1993-1994 and implem- ented in the following year. During the fall 1994 the Library and In- formation Science Program participated on behalf of Iceland in the European Pilot Project for Evaluating Quality in Higher Education. The outcome was very positive, where its main strengths were considered well qualified staff and international orientation. Two areas of specialization have been established within the Program, i.e., specialization for school librarians and specialization for record managers. Furthermore, the Program offers one year in English, with emphasis on information tech- nology, due to the fact that one of the full time faculty members teaches all her courses in English. These courses have been attended by foreign students. The Faculty of Social Science offers a limited research Master’s degree and two students in the Library and Information Science Program have been enrolled. Concludes by discussing the future developments of library and information science education which emphasises the need for distance education. In view of diminishing funds such plans may not be realised but a new option through ERASMUS-networks may offer viable alternatives.- SKH ÞJÓÐSAGAEHF Dvergshöfða 27, 112 Reykjavík, sími: 567 1777, fax: 567 1240 70 BókasajhiS 20. árg. 1996
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.