Bókasafnið - 01.06.1996, Blaðsíða 29
Elísabet Halldórsdóttir, Margrét Björnsdóttir og Sólveig Þorsteinsdóttir
Fengur
Inngangur
Dobis/Libis er alhliða bókasafnskerfi, sem nær yfir alla
starfsþætti bókasafnsins. Það var upphaflega þróað við há-
skólabókasöfnin í Dortmund í Þýskalandi og Leuven í
Belgíu. Nú eru um 200 uppsetningar af kerfinu í um það
bil 1500 bókasöfnum í 31 landi. Fjöldi safnanna er þó mun
meiri þar sem mörg samtengd söfn eru víða talin sem eitt,
t.d. er í einu héraði í Flórída 125 skólasöfn talin sem eitt
bókasafn.
Fyrirtækið ELiAS (Extended Library Access Solutions) í
Leuven í Belgíu sér um nýsmíði og viðhald kerfisins. Kerf-
ið er í stöðugri endurskoðun og þróun og er nú verið að
setja upp nýja útgáfu af því hér á landi. Skýrr hf. er eigandi
og rekstraraðili Dobis/Libis á íslandi. Það hefur gert við-
haldssamning við ELiAS en í honum felst m.a. að Skýrr
getur tekið upp breytingar jafnóðum og þær eru tilbúnar til
dreifmgar. Þær eru aðgengilegar á heimasíðu ELiAS á
Internetinu (http://www.elias.be) og er hægt að flytja
breytingarnar með FTP beint til notenda. Einstök söfn
geta gert á því breytingar og lagað það að eigin þörfum með
aðstoð Skýrr.
Nýtt nafn
Dobis/Libis hefur verið í notkun hér á landi síðan 1989
en það var ekki íyrr en síðastliðið vor að ákveðið var að
halda samkeppni um íslenskt nafn. Dómnefnd skipaði
stjórn Bókls, en ráðgjafi hennar var Baldur Jónsson for-
stöðumaður íslenskrar málstöðvar. Um 30 tillögur bárust
og voru þær margar mjög frambærilegar. Fyrir valinu varð
nafnið Fengur, nafnið vísar til afla og þótti dómnefndinni
það vel við hæfi þar sem búast má við að notendur fái góð-
an afla við leit í kerfmu, einnig að það hafi verið mikill
fengur að þessu kerfi fyrir bókasöfn á fslandi. Fengur er líka
eitt af nöfnum Óðins svo þjóðlegra getur það varla orðið.
Sú sem átti tillögu að þessu nafni var Erla Kristín Jónas-
dóttir, deildarstjóri í Gerðubergi og þótti það einkar
ánægjulegt þar sem hún hefur unnið við kerfið frá upphafi
þess hér á landi.
Á sama tíma var hannað merki (lógó) Fengs sem sést hér
að neðan.
Fenguk
Lýsing
Fengur er sívinnslukerfi, allar aðgerðir, hvort sem um er
að ræða skráningu, útlán, pantanir o.s.frv., skila sér strax
inn í kerfið og eru þegar tiltækar til notkunar á öllum þeim
stöðum, sem tengdir eru kerfinu.
Utprentanir og tölulegar upplýsingar eru unnar í runu-
vinnslu og sendar notendum beint í gegnum tölvupóstkerf-
ið Meistarann.
Fengur getur hýst mörg deildarskipt söfn. Það hentar
því mjög vel til samvinnu margra bókasafna. Gagnagrunn-
urinn sjálfur er öllum sameiginlegur, þannig að um leið og
eitt safn skráir rit inn í kerfið, er það aðgengilegt öllum að-
ildarsöfnunum. Aðrir þættir, svo sem útlán, eru sér fyrir
hvert safn.
Kerfið skiptist í efitirtalda þœtti:
Leit, aðföng, tímarit, skráningu, útlán, almenningsað-
gang og auk þess er tölvupóstur, en þar geta starfsmenn
sent hver öðrum skilaboð og lánþegar sent starfsmönnum
skilaboð.
Þessir þættir eru samtengdir, þannig að hægt er að
fletta upp í gagnagrunninum hvar sem maður er staddur
í kerfinu. Auðvelt er að fara á milli einstakra starfsþátta.
Tœknilegar upplýsingar
Kerfið er keyrt á IBM 3090 stórtölvu hjá Skýrr. Kerfið
samanstendur af u.þ.b. 500 forritum sem eru 400.000 for-
ritalínur. Það er skrifað í smalamáli og PLl, CICS macro-
level. Skrárnar eru vistaðar í gagnagrunnskerfmu VSAM
(Virtual Storage Access Method).
Tengingar aðildasafna við Skýrr
Borgarbókasafn var tengt með SNA en með tilkomu
TCP/IP staðalsins var tekin sú ákvörðun að tengjast með
honum inn á alnet Skýrr. Þar með hefur safnið aðgang að
Unix tölvu Skýrr, Internetinu, tölvupósti (E-mail), verald-
arvefnum (WWW). Safnið notar Reflection sem 3270
skjáhermi og biðlara/miðlara samskiptaforrit með TN3270
til Skýrr. Notuð er 64 kb símalína.
Bókasafn Garðabæjar, grunnskólar og Fjölbrautaskóli
Garðabæjar verða tengdir Skýrr í gegnum hnútpunkt sem
er staðsettur í Bókasafni Garðabæjar og er það TCP/IP
tenging.
Bókasafn Landspítalans er tengt í gegnum tölvu Land-
spítalans við Skýrr með TCP/IP.
Sjónvarpið, filmusafn og Bókasafn Sjúkrahúss Reykja-
víkur eru tengd Skýrr með SNA tengingu.
Skólasafnamiðstöð ásamt grunnskólum Reykjavíkur-
borgar er tengt um Víðnet grunnskólanna.
Skólarnir eru tengdir saman í gegnum hnútpunkta í sex
skólum með 19.2 kb hraða línum. Skólarnir sem eru hnút-
punktar eru með 64 kb línur til Ráðhússins. Þetta er gert
til að ná niður kostnaði á línulögnum þar sem stuttar vega-
lengdir eru milli skóla. Notuð er TCP/IP tenging á netinu
svo nú er hægt að tengjast Internetinu á öllum tölvum skól-
anna.
Bókasafnið 20. árg. 1996 29