Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.1996, Blaðsíða 50

Bókasafnið - 01.06.1996, Blaðsíða 50
Ásgerður Kjartansdóttir íslensk þróunaraðstoð á sviði bókasafna- og upplýsingamála í Malawi Inngangur í september síðastliðinn hélt greinarhöfundur til Malawi í suð-austur Afríku á vegum Þróunarsamvinnustofnunar íslands. Þróunarsamvinnustofnun hefur styrkt þróunar- starf í Malawi allt frá árinu 1988 og þá á sviði fiskimála en þetta er í fyrsta skipti sem stofnunin sendir bókasafnsfræð- ing til starfa. Um er að ræða a.m.k. tveggja ára verkefni sem snýr að ráðgjöf í fræðslumálum annars vegar og bókasafna- og upplýsingamálum hins vegar. Þróunarsamvinnustofnun Islands, Hlutverk Þróunarsamvinnustofnunar íslands er að vinna að samstarfi fslands við þróunarlöndin. Samkvæmt lögum um stofnunina frá 1981 skal markmið þess samstarfs vera „að styðja viðleitni stjórnvalda í löndum þessum til að bæta efnahag þeirra og á þann veg eiga þátt í að tryggja félagslegar framfar- ir og stjórnmálalegt sjálf- stæði þeirra á grundvelli sáttmála Sameinuðu þjóð- anna.“ (Lög um Þróunar- stofnun íslands nr. 43/1981). Samvinna og aðstoð við þróunarlönd er greind í þrjá meginþætti; eiginlega þróunaraðstoð sem miðar að varanlegum umbótum og framförum samkvæmt skilgreindum markmið- um, neyðarhjálp til að ráða bót á bráðum vanda og verkefnaútflutning og viðskiptasamvinnu. Þró- unarsamvinnustofnun ís- lands miðar að því að hjálpa fólki til sjálfsbjarg- ar með því að miðla þekk- ingu og verkkunnáttu, einkum á þeim sviðum þar sem íslendingar búa yfir sérstakri þekkingu og reynslu sem hægt er að miðla með fræðslu og þjálfun. Jafnframt er þess gætt að þróunarsamvinnan stuðli að varanlegum fram- förum, vernd umhverfis og auðlinda, þróun atvinnulífs, jafnrétti, lýðræði og mannréttindum. Áhersla er lögð á 50 Bókasafnið 20. drg. 1996 samvinnu við þau lönd þar sem lífskjör eru lökust og bein- ist samvinnan að Grænhöfðaeyjum, Mozambique, Namib- íu og Malawi. Malawi, hið hlýja hjarta Afríku Malawi liggur að Tansaníu í norðri, Mozambique í austri og suðri og Zambíu í vestri. Landið er lítið, um 118.500 km2, af þeim þekur Malawivatn rúma 20.000 km2 en það er þriðja stærsta stöðuvatn Afríku. Landið býr yfir mikilli náttúrufegurð og dýralíf er mikið enda staðsett í hitabeltinu. Arstíðirnar eru þrjár, regntíminn frá lok nóv- ember til apríl (meðalhiti um 25°), þá tekur „veturinn“ við, þurr og svalur frá maí til ágúst (meðalhiti 21°) og síðan heitasta tímabilið, sept- Aðildaríki Þróunarbandalags ríkja í suðurhluta Afríku (SADC). ember til október (meðal- hiti 30°). Malawibúar eru um 10 milljónir. Fátæktin er gíf- urleg, enda telst landið meðal þeirra fátækustu á lista Sameinuðu þjóð- anna. Menntunarstig er lágt, aðeins um 42% þjóð- arinnar kann að lesa. Ungbarnadauði er mikill vegna næringarskorts og vanþekkingar og er talið að um 25% barna deyi fyrir fimm ára aldur. Lífslíkur eru um 45 ár. Eyðni er landlægur sjúk- dómur í Malawi líkt og í öðrum Afríkuríkjum. Fólk á besta aldri deyr umvörpum og fjöldi munaðarlausra barna eykst stöðugt. Þrátt fyrir mikla og almenna fátækt eru Malawar afskaplega friðsamir, vinalegir og broshýrir og er landið þess vegna kallað hið hlýja hjarta Afríku. Um 90% þjóðarinnar býr í dreifbýli enda borgir fáar og litlar. Höfuðborgin, Lilongwe, telur aðeins um 350.000 íbúa og stærsta borgin, Blantyre, um 400.000. Landbúnaður er aðalatvinnuvegur þjóðarinnar og er aðallega ræktaður maís, baðmull, hrís- grjón, tóbak og kaffi. Helsta útflutningsvaran er tóbak en
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.