Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1983, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1983, Qupperneq 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRUAR1983. 11 Steingrimur Sigurðsson i Ásmundarsai. Verkið sem hann er að vinna við er: „ Vestfirska orkustöðin i Kópavogi" og stendur það á trönum isýningarsainum ófullgert. DV-mynd EÓ. Ekki hægt að skera upp við temperamentinu — rætt við Steingrím Sigurðsson myndlistarmann „Sæll, það er kaffi uppi.” Listamaðurinn stendur fyrir fram- an Ásmundarsal við brúna bifreiö og brosir vingjarnlega. Uppi segir hann frá því að þetta sé hans 51. sýning, hann hafi sýnt í Svíþjóð þrisvar og í London I sumar á vegum Islendinga- félagsins. Hann hafi eitt sinn verið búinn að innrétta hlöðuna í Roðgúl eins og „Texas shooting gallery” og — „Ég ætla að eignast Roðgúl aftur í þessulífi.” Steingrímur er hressilegur og seg- ist vera fullur af orku og: „Ég er af- ar bjartsýnn á lífið af því að ég er verkglaður. Ég vakna klukkan sex á morgnana og ég stal Bullworker tæki frá syni mínum og nota þaö. Eg geng í stað þess að fara í bíl og ég held á þungum hlutum. Ég reyni að gera tvodagaúr einum.” Við sitjum á föstudegi í miðjum Ásmundarsal. Allt umhverfis okkur með hvítum veggjunum standa myndir. Steingrímur ætlar aö hengja upp í kvöld og nótt. A laugardaginn var opnaði hann sýninguna „Meiri- hlutinn er myndir sem ég hef málað frá því í fyrrasumar. Mikið af þessum myndum er f rá Stokkseyri.” Minning um stríðsmjöð þýðverskan Það mun óhætt að segja að þaö kenni ýmissa grasa á sýningunni. Nægir að nefna mynd nr. 6 Biére fortein memoriam (minning um stríðsmjöð þýðverskan) og mynd 67 Vestfirska orkustöðin í Kópavogi (Einkaeign: Magnús Jón Árnason bilakóngur úr Bíldudal i Amarfirði.) Hún stendur á trönum í sýningar- salnum, ófullgerð. Spurður um stefn- ur og strauma segir Steingrímur þetta mótast af reynslu sinni í gegn- umárin. ,,Ég veit ekki hvort ég tilheyri neinni stefnu. Sigmar Hauksson tal- aði um roðgúlisma. ’ ’ Verk nr. 70 b, sem ekki hefur náö inn á sýningarskrá, erskúlptúr. „Einn af fáum skúlptúrum sem ég hef gert. Tileinkaður franska kokknum á Rán. Sumir sjá kannski eitthvað dónalegt í þessu. Ég sá þaðí dag og gladdist viö. Ég er hættur aö nota bús. Búinn að vera hættur í tvö ár og átta mánuði. Ég reyndi að gera það þannig aö ég lagaði kompásinn um leið. En það er víst ekki hægt að skera upp við temperamentinu,” segir hann og hlær hrossahlátri. „Ég þoli ekki listamenn sem hafa aldrei dýft hendi í kalt vatn. Ef sýningin gengur illa þá fer ég beint á skuttogara. Það eru hreinar línur með það. Og ég held ég fái pláss,” segir hann meö fullvissu. Tveir synir Steingríms eru á staðn- um. Steingrímur er tekinn að ókyrr- ast og það kemur fram á kurteisleg- an hátt að hann er að verða of seinn í fatahreinsun. Allt í einu erum við allir komnir út og Steingrímur kallar vingjamlega frá brúna japanska bilnum: „Maðurinn með orkustöðina (málverk nr. 67) á þennan bíl. Þetta eru f imm gírar f ram. ” -SGV veit ekki hvort óg tiiheyri neinni stefnu. Sigmar Hauksson taiaði um roðgúlisma.' DV-mynd E.Ó. BREIÐHOLTI //Ll SÍMI76225 (/^-1 Fersi k blóm di Bc/M miklatorgi IJvXrLÍ SÍMI22822 iglega. I Jk kjarrhOlma 10 SlAL'-'ORKAss VINNUVÉLAEIGENDUR Tökum aö okkur slit- og viögeröarsuöur á tækj- um ykkar þar sem þau eru staðsett hverju sinni Ennfremur önnumst viö hvers kyns járniönaöar- vinnu og verktakastarfsemi. Föst tilboö eöa tímavinna. S|M, 78600 Á p/VGININI SÍMI 40880 Á KVÚLDIN GÖNGUSKÍÐASETT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.