Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1983, Page 36
DV. ÞRIÐJUDAGUR1. MARS1983.
36
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Ingib/örg eru einu konurnar sem gegnt hafa embætti forseta Framtíðar-
innar.
Disin Stefanie Powers. Ætlar
hún að láta hart mæta hörðu?
Powers
r m
symr
réttan
Helga Guðrún, forseti Framtiðarinnar, með forseta íslands, Vigdisi Finn-
bogadóttur, og Ingibj'örgu Pálmadóttur, fyrrum forseta Framtíðarinnar,
Óneitanlega glæsilegur hópur forseta finnst okkur. Þær Helga Guðrún og
Tveir þekktir úr Menntaskólanum i Reykjavík. Guðni Guðmundsson rektor
og Einar Magnússon, rektor skólans á árunum 1965 til 1970. Þess má geta
að Einar kenndi við skólann i tæp fímmtiu ár. Við óskum MR til hamingju
með hundrað ára afmæli Fremtíðarinnar.
DV-myndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson.
Hár má sjá þá Sigurbjörn Einarsson, fyrrum biskup og Guðna Guðmundsson, rektor Menntaskólans i
Reykjavík, é tali viðHelgu Guðrúnu.
„Hefur verið gaman
að standa í þessu”
— Forseti Framtíðarinnar, Helga Guðrún Johnson, í stuttu rabbi við Sviðsljósið
„Þaö hefur verið gaman aö standa í
þessu í vetur þrátt fyrir aö mikill tími
hafi farið í starfiö vegna hundrað ára
afmælisins,” sagöi forseti málfundafé-
lagsins Framtiðarinnar, Helga Guörún
Johnson, er Sviðsljósiö rabbaöi viö
hana í veislu meö fyrrverandi for-
setum Framtíöarinnar í Borgartúni 6
nýlega.
Helga Guörún er önnur konan sem
gegnir embætti forseta Fram-
tiöarinnar. Hin er Ingibjörg Pálma-
dóttir, dóttir Pálma Hannessonar, sem
var rektor Menntaskólans í Reykjavík
á árunum frá 1929 til 1956.
Þær Helga Guörún og Ingibjörg eiga
þó f leira sameiginlegt hvað varöar for-
setaembættið en aö vera einu konurnar
sem hafa gegnt því þessi hundrað ár.
„Jú, þaö er skemmtileg tilviljun aö
bræöur okkar Ingibjargar, Pálmi
Ragnar Pálmason og Gunnlaugur
Johnson, vorueinnigforsetarFramtíö-
arinnar. Og það vill þannig til aö viö
erum einu systkinin sem höfum gegnt
þessuembætti,” sagðiHelgaGuðrún.
Helga Guörún er nítján ára Reykja-
víkurmær, dóttir hjónanna Olafs og
Guörúnar Johnson. Hún er í sjötta
bekk skólans og lýkur því stúdents-
prófi í vor. Hún var gjaldkeri í stjórn
Framtíðarinnar í fyrra en ákvað að slá
til og bjóöa sig fram til forseta fyrir
veturinn í vetur.
En hvaö um framtíöina hjá Helgu
Guörúnu, ef nota má þaö orö í þessu
tilviki? „Eg hef ákveöið að hefja nám í
blaðamennsku í Bandaríkjunum næsta
haust,” sagöi Helga Guðrún brosandi
aö lokum.
Viö í Sviðsljósinu efumst ekki um aö
stéttinni bætist þar góöur liösauki.
-JGH.
kraft
Leikkonan fallega, Stefanie
Powers, heillaöi alla þegar hún
kom til Bandaríkjanna nýlega eftir
aö hafa veriö í fríi í Englandi meö
Robert Wagner og Jill St. John.
Því hefur lengi veriö haldiö fram
aö Robert Wagner og Jill séu aö
ganga í þaö heilaga en einhver
frestun virðist ætla aö veröa á því.
Segja menn aö það sé Robert sem
fresti þar sem honurn finnst vera of
stutt síðan fyrrverandi kona hans,
NatalieWood, lést.
En nú eru menn farnir aö efast
um aö þau muni giftast því aö æ
oftar sést Robert í fylgd meö
Stefanie Powers. Og fólk spyr:
„Hvers vegna fóru þau þrjú í frí til
Englands?”
Fátt er um svör, en þaö vakti
athygli allra aö á sama tíma og
Stefanie blómstraði við komuna til
Bandaríkjanna var Jill vonsvikin
og hálfsúr á svipinn.