Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Qupperneq 27
26 DV. LAUGARDAGUR 23. APRlL 1983. Bobby McDonald. wich þar sem hann lék um tíma en gekk síðan til liðs við Coventry City sem hann lék með í rúmlega tvö ár áöur en hann skipti yfir til West Bromwich Albion. Lék hann þar önn- ur tvö ár en var þá seldur til West Ham Utd. Hann lék með þeim í ná- lægt 6 ár en var seldur til City á síð- asta sumri og var nokkurn tíma að ná sér á strik en hefur skoraö nokkuð reglulega undanfariö. Hefur leikiö 480 deildaleiki fyrir Rochdale, Nor- wich City, Coventry City, West Bromwich Albion, West Ham United og Manchester City. Asa Hartford (Skotland) Sóknartengiliður, hóf feril sinn hjá West Bromwich Albion og lék hann meö þeim í sjö ár en var þá seldur til Man. Cityfyrir 225.000 pund,envar síðan seldur til Nottingham Forest sumarið 1980, en dvöl hans þar varð stutt og var hann þaðan seldur til Everton. Hann lék með Everton næstu tvö árin en var síöan seldur til Manchester City haustið 1981. Var í skoska landsliðinu í heimsmeistara- keppninni. Hefur leikiö 543 deilda- leiki fyrir West Bromwich Albion, Manchester City, Nottingham Forest og Everton. Graham Baker Miðvallarspilari, hóf feril sinn hjá Southampton og vann sér fljótt sæti í Mtmchester Cit y Tommy Caton Miðvöröur, kemur úr unglingaliðinu og vann sér sæti í aöalliði aðeins 17 ára gamall og er nú oröaður við enska landsliöið, enda mjög sterkur miðvörður. Hefur leikið 141 deilda- leik. Dennis Tueart (England) Miðvallarspilari, hóf feril sinn hjá Sunderland og varð meðal annars bikarmeistari með þeim áriö 1973, en varseldurtilMan. City í mars árið 1974 fyrir 275.000 pund. Hann lék með City þar til hann var seldur til New York Cosmos árið 1979, en gekk síðan til liðs við félagið á ný árið 1981. Hef- ur ávallt veriö einn af hættulegustu framherjum liðsins. Hefur leikið 388 deildaleiki fyrir Sunderland og Man- chesterCity. Kevin Reeves (England) Framherji, hóf feril sinn hjá Boume- mouth en var fljótlega seldur til Nor- wich City þar sem hann varð brátt einn besti leikmaöur þeirra. Félagið varð að selja hann og fór hann þá til Manchester City fyrir 1.000.000 pund. Hef ur ekki gengið eins vel hjá City og hjá Norwich City og missti því lands- liðssæti sitt. Hefur leikið 303 deilda- leiki fyrir Bournemouth, Norwich City og Manchester City. David Cross Miðframherji, hóf feril sinn hjá Rochdale en var fljótt seldur til Nor- Dennis Tueart. Tommy Caton — miðvorðurinn ef nilegi Manchester City er stofnað árið 1887 og hét í fyrstu Ardwick en var breytt í Manchester City árið 1895. Félagið hefur oftast fallið í skugg- ann af nágrannaliði sínu Manchest- er United, en hefur þó oft unniö marga góða sigra á þeim. Félagið hefur unnið enska meistaratitilinn tvisvar auk þess að vinna enska bikarinn fjórum sinnum. Manch- ester City var með sitt sterkasta 115 upp úr 1965 og var þá undir stjórn Joe Mercer og varð félagið enskur meistari, enskur bikar- meistari, enskur deildarbikar- meistari og vann auk þess Evrópu- keppni bikarhafa undir hans stjóm. En árið 1972 tók Malcolm Allison við stjórninni og má segja að þá hafi farið að halla undan fæti hjá félaginu. Það náði ekki góðum árangri fyrr en Tony Book tók við stjórn þess árið 1975 og urðu þeir deildarbikarmeistarar árið 1976 og síðan í öðm sæti í 1. deild árið 1977. Þá tók að halla undan fæti á nýjan leik og var svo komið að þegar John Bond tók við stjóm liðsins, að það var í neðsta sæti 1. deildar. Lið- ið tók þegar að stíga upp stigatöfl- una og komst meöal annars i úrslit ensku bikarkeppninnar. En þetta fræga félag sem fyrir nokkmm ár- um var talið með cfnaðri félögum Engiands hefur ekki fjármagn til kaupa á ieikmönnum nú svo aö framkvæmdastjórinn varð að stóla á marga unga og gamia leikmenn. Fyrir stuttu var svo John Bond rek- ínn frá félaginu. Við stjóra liðsins tók fyrrum aðstoðarmaður hans, John Benson, og verður hann með félagið að minnsta kosti út þetta keppnistímabil. Leikkerfi Man- chester City er 4—4—2 og má segja að vöra liðsins sé nú sterkasti hluti liðsins því að framherjar liðsins hafa alls ekki náð sér á strik í vetur og hefur því mikið mætt á miðvörð- unum, þeim Tommy Caton og Kev- in Bond, og hafa þeir staðið sig mjög vel í erfiðri baráttu. Hjörtur Harðarson. Jolin Benson John Benson lék sem leikmaður með liðum Manchester City, Tor- quay United, Bournemouth og Nor- wich City áður en hann gerðist fram- kvæmdastjóri hjá Bouroemouth en gerðist síðan þjálfari hjá Norwich City. Þegar John Bond tók viö stjóm Manchester City gerðist hann að- stoðarframkvæmdastjóri og var síðan ráðinn framkvæmdastjóri þeg- ar John Bond var rekinn frá félag- inu. Hans bíða stór verkefni því að féiagið á ekki mikla peninga til kaupa á leikmönnum og verður hann því að stóla á þá leikmenn sem hann hefur til aö forða liðinu frá falli í 2. deild. Leikmenn Man. City Alex Wiliiams Varamarkvörður, kemur úr ungl- ingaliðinu og hefur vakið athygii fyrir góða markvörslu þegar hann hefur leikiö með aðalliðinu, en það verður þungur róður fyrir hann að vinna sér fast sæti þar. Það var ekki fyrr en Joe Corrigan fór til Kanada fyrir stuttu, að Williams fékk fast sæti í liði City. Hefur leikið 12 deilda- leiki. Ray Ranson Hægri bakvörður, kemur úr ungl- ingaliðinu og ávann sér fljótt fast sæti í aðalliði enda sterkur bak- vörður og talinn eiga góða möguleika á sæti í enska landsliðinu áður en langt líður. Hefur leikið 145 deilda- leiki. Bobby McDonald Vinstri bakvörður, hóf feril sinn hjá Aston Villa en náði aldrei að vinna sér fast sæti í aöalliðinu og var þá seldur til Coventry City. Þar lék hann um 5 ára skeiö áður en hann fór til City. Hefur leikið 286 deildaleiki fyrir Aston Villa, Coventry City og ManchesterCity. Nicky Reid Miðvallarspilari eöa miövörður, kemur úr unglingaliðinu og ávann sér fljótlega sæti í aöalliði og þá sem miðvöröur. Þótti standa sig mjög vel þar en var síðan óvænt færður yfir á miöjuna á síðasta keppnistímabili og hefur leikið þar síöan. Hefur leikið 126deildaleiki. Kevin Bond Miðvörður, hóf feril sinn meö Nor- wich City og lék þar fyrst sem hægri bakvörður en síðan sem miðvörður. Var seldur til bandaríska félagsins Seattle Sounders sumarið 1981 fyrir 350.000 pund. Gekk síöan til liðs viö Manchester City um haustið fyrir 250.000 pund og hefur hann veriö fastamaður í liðinu síðan. Hefur leikið 205 deildaleiki fyrir Norwich City og Manchester City. Manehester Cilv l»elreru f arnir f rá tlaine Road Leikmenn sem leikið hafa með Manchester City en leika nú með lið- umí 1. og2. deiid: Frank Carrodus — Birmingham Ctty, Mick Robinson — Brighton, Martin O’Neill — Norwich City, Dave Benett — Norwich City, Age Hareide — Norwich City, Ian Bowyer — Nottingham Forest, Dave Watson — Stoke City, Steve Mackenzie — West Bromwich Albion, Gary Owen — West Bromwich Albion, Tony Henry — Bolton Wanderes, Mike Doyle — Bolton Wanderes, Russcll Coughlin — Carlisle United, Chris Jones — Crystal Palace, Paul Futch- er — Derby County, Paul Sugme — Middlesbrough, Jeff Clarke — New- castie United, Kenny Clements — Oldham Athletic, Gerard Keegan — Oldham Athletic, Roger Palmer — Oldham Athletic, Gerry Gow — Rot- herham United, Phil Henson — Rotherham United, Keith MacRae — Leeds United, Mick Channon — Nor- wich City, Colin Viljoen — Cheisea. Þá leika þrír leikmenn, sem hafa leikið með City, nú með erlendum lið- um. Peter Barnes — Bastia (Spánn), Trevor Francis — Sampodoria (ítalíu) og Joe Corrighan — Seattle Sounders (Kanada). Manchester City 1982—1983: Aftari röð frá vinstri: Bobby McDonald, Chris Jones, Aage Hareide, Alex Williams, Joe Corrigan (nú í Kanada), Tommy Caton, Kevin Beon, David Cross og Nicky Reid. Fremri roð: Graham Baker, Kevin Reeves, Paul Pawer, Asa Hartford, Dennis Tueart, Ray Ranson og Phil Boyer. aðalliði og hélt þeirri stöðu allt þar til hann var seldur til Man. City í sumar fyrir 250.000 pund, sem félagið varð að fá þegar það keypti Peter Shilton. Varö fyrir meiðslum í vetur en er nú kominn aftur í liðið. Hefur leikið 127 deildaleiki fyrir Southampton og Manchester City. Aðrir leikmenn: Ian Davies Bakvörður, hóf feril sinn hjá Nor- wich City og vann sér fljótt sæti í aðalliði en var óvænt seldur til New- castle Utd. sumarið 1980 fyrir 175.000 pund. Náði sér aldrei á strik þar og var gefin frjáls sala þaðan síðast- liðið sumar og gekk hann þá til liðs við City. Hefur ekki náð að vinna sér sæti í aðalliði. Hann hefur leikið 124 deildaleiki fyrir Norwich City, New- castle United, Manchester City og Bury. (Aðláni). Paul Power Miðvallarspilari, miövörður eða bak- vörður, kemur úr unglingaliðinu og hefur veriö fastur maður í aöalliði nú um nokkurra ára skeið. Missti stöðu sína þar nú í vetur og hefur ekki náð að vinna hana aftur nema þegar um meiðsl er að ræða. Hefur leikið 234 deildaleiki. Gary Jackson Miðvallarspilari, kemur úr unglinga- liðinu en hefur ekki náð að tryggja sér sæti í aðalliði. Hefur leikið 11 deildaleiki. David Cross. Terry Park Framherji, hóf feril sinn hjá Wolves en náöi aldrei að leika deildarleik þar áður en hann gekk til liðs við Stockport County sem hann lék með þartilhannfórtilMan- City. Hefur leikið 168 deildaleiki fyrir Stockport ogMan. City. • Stjóraarformaður: PeterSwales. • Framkvæmdastjóri: JohnBenson. • Fyririiði: JoeCorrigan. Árangur • Engiandsmeistarar: 1936—'37, 1967—’68, í öðru sæti 1903—’04, 1920—’21,1976- 77. • 2. deildarmeistara r: 1898—”9, 1902-’03,1909-’10,1927—’28,1946- ’47,1965—'66, í öðru sæti 1895—’96,1950—’51. • Bikarmeistarar: 1904, 1934, 1956, 1969, í öðru sæti 1926, 1933, 1955, 1981, • Dcildarbikarmeistarar: 1970,1976, í ööru sæti 1974. • Evrópukeppni sem tekið hefur verið þátt i: • Evrópukeppni meistaraliða: 1968— ’69. • Evrópukeppni bikarhafa: Sigurvegarar 1969—70,1970—71. • UEFACUP: 1972-73,1976-77,1977-78,1978-79. • Stærsti sigur: 11—3 gegn Lincoln City í 2. deild 23. mars 1895. • Stærsti ósigur: 1—9 gegn Everton í 1. deild 3. september 1906. • Flest deildarmörk: 108 í 2. deild 1926—’27. • Flest stig: 62 í 2. deild 1946—’47. • Flest mörk skomð á keppnistimabiii: Tommy Johnson, 38 í 1. deild 1928—’29. • Flest deildamörk fyrir félagið: Tommy Johnson, 158 frá 1919—’30. • Flestir deildaleikir fyrir félagið: Alan Oakes, 565 frá 1959—76. • Flestir landsleikir: Colin Bell, 48 leikir fyrir England. • Markhæstu ielkmenn siðustu fimm keppnistimabil: 1977— 78: - Brian Kidd, 16 mörk. 1978— 79: — Mick Channon og Gary Owen 11 mörk. 1979— ’80: — Mick Robinson, 8 mörk. 1980— ’81: — Kevin Reeves, 12 mörk. 1981— ’82: — Kevin Reeves, 13 mörk. • Hæsta verð greitt fyrir leikmann: 1.437.500 pund til Wolverhampton Wanderes fyrir Steve Daley. • Hæsta verð sem fengist hefur fyrir leíkmann: 850.000 pund frá Sampdoria (Italíu) fyrir Trevor Francis. • Framkvæmdastjórar síðan 1970: Joe Mercer. Malcolm. Allison. Johnny Hart. Ron Saunders. Tony Book. Malcolm Allison. John Bond. John Benson. Andy May Miðvallarspilari, kemur úr unglinga- liöinu en hefur ekki tekist að vinna sér sæti í aðalliði ennþá. Hefur leikið 12 deildaleiki. Framherji, kemur úr unglingaliðinu og hefur verið nokkuö lengi viðloð- andi aðalliðið en hefur ekki tekist enn að vinna sér fast sæti. Hefur leikið 32 deildaleiki. (Var aö láni hjá Chester). Peter Bodak Miðvallarspilari, hóf feril sinn hjá Coventry og var talinn meðal efni- legri leikmanna félagsins. Var óvænt gefin þaðan frjáls sala síðasta sumar og gekk hann þá til liös við Man- Utd. Bodak náði ekki að tryggja sér þar fast sæti og var þá seldur til Man. City. Hefur leikið 47 deilda- leiki fyrir Coventry C. og Man. City. Asa Hartford. Kevin Bond. Kevin Reeves.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.