Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Side 33
DV. LAUGARDAGUR 23. APRtL 1983. FRÁ KÓREU. IJ-ONDAL OG PRDÍSESSM að hún hefði haft þaö eitt í huga aö hlýða föðursínum. — Burtmeðþig! hrópaði hann. Þú ert ekki framar dóttir mín! Og hann lagði blátt bann við því að hún stigj framar fæti inn í höllina. Kong Dschu fór aö hágráta við þessi tíðindi. Hún tók nokkra gull- peninga og skartgripi og hélt aö heiman um nóttina hrygg í huga. Hún þekkti engan sem hefði þoraö að bjóða henni hjálp sína. Og því leit- aði hún til kofa betlarans. Þar hitti hún móður Ondal. Hún tjáði henni vandræði sín og bað hana að lofa sér að vera. En móöir Ondals vísaði henni burt og Ondal líka sem hélt aö þessi tigna stúlka væri andi eða um- skiptingur. Hann vildi ekkert hafa saman viö hana að sælda. — Við erum fátæk og fyrirlitin, sagði hann. Hvemig ætti konungs- dóttir að búa hérna ? Og ef til vill ertu aöeins að draga dár að okkur. Faröu og leitaðu þér hælis annars staðar. Og þá helst í höll því þar áttu heima! S túlkan hristi höfuðið og sagöi: — Til er gamalt máltæki er hljóð- ar svo: Þó aö gamið nægi ekki nema í smáþurrku veröur samt að vefa úr því og þó að komið fylli ekki nema eina skál veröur að þreskja það! Maðurinn má ekki láta hugfallast! Hvers vegna sættiö þið ykkur við allt? Þú ert ófríður, Ondal, satt er það. En þú hefur falleg, hlýleg augu. Viltu í raun og veru reka mig í burtu? Og hvers vegna emð þið allt- af að tönnlast á því hvað þið séuð fá- tæk og lítilmótleg? Enginn er aumur nema sá sem vill veröa það! Og eng- inn þarf að skammast sín þó aö hann sé fátækur! Við þessi orð prinsessunnar misk- unnuöu mæöginin sig yfir stúlkuna og lofuðu henni að vera í kofanum. Og móöirin mælti: — Þú munt líða skort og svelta en ég mun fara með þig eins og þú værir dóttir mín þar eð faðir þinn hefur rekiö þig að heiman. Og vera má aö þú færir okkur meira að segja ham- ingju! Kong Dschu hafði lært sem barn allt sem kostur var á. Hún var fróðleiksfús og athafnasöm. Leiði hennar hafði einungis stafað af því að konungurinn lagði kapp á að ein- angra hana og vemda um of. En hún þráði annað og meira en að vera dek- urprinsessa. Nú haföi hún fundið verkefni. Þaö var i húsi fátæku mæðginanna. Og þar eð eldhús þeirra var snautt af svo til öllu seldi hún einn af skartgripum sínum. Fyrir andvirðiö keypti hún vistir, áhöld og nokkrar akurreinar. Sam- eiginlega ræktuðu þau landið svo að þau höfðu nóg að bíta og brenna og þurftu hvorki að kvíða kulda né mat- arskorti. Stúlkan kenndi lika Ondal það sem hún kunni og lét hann iöka allt það sem koma mundi honum að góðu haldi semkarlmanni. — Ef þú vilt hafa þig upp úr eymd- inni, Ondal, veröur þú að duga betur en þú hefur gert hingað til. Umfram allt skaltu læra reiðmennsku og æfa bogfimi. Hér eru peningar. Kauptu nokkra hesta, ekki dráttarbikkjur heldur góða reiöhesta. Sækstu eftir þeim skepnum einum sem gæddar erugóðumkostum! Ondal fór á fund bænda og kaup- manna. Eftir nokkra daga kom hann aftur með marga hesta. Kong Dschu sá um fóðrun og hirðingu þeirra. Og að því kom að Ondal átti úrvalsgæð- inga. Hann reið nokkrar stundir dag- lega, lærði bogfimi og þar sem hann var bæði greindur og laginn þegar á reyndi, náöi hann fljótt mikilli leikni. Pyong Won efndi á ári hverju tU veiöiferöar að haustlagi. Þá var mik- il hátíö og hver sem vUdi fékk aö taka þátt í ferðinni. Og að sjálfsögðu létu konungar, ráðgjafar hans, hers- höfðingjar og aöalsmenn sig ekki vanta. Kong Dschu kenndi Ondal veiðireglurnar rækilega og með því að hann var ágætur reiðmaður og bogaskytta varö enginn jafnoki hans. Fengur hans í veiðiferðinni varö því miklu meiri en annarra. Konungur lét kalla „ókunna ridd- arann” fyrir sig, óskaöi honum til hamingju og spurði hann til nafns. Ondal hneigði sig og sagði: — Eg er ekki riddari, yðarhátign. Nafn mitt er Ondal, kaUaður hinn heimski. Þá varö Pyong Won hugsað til týndrar dóttur sinnar. Hann hafði iðrast þess fyrir löngu að hafa rekið hana að heiman. Minningin um Kong Dschu vakti hryggð i brjósti hans en hann lét ekki á því bera. Hann laun- aði Ondal og hafði hann í meiri há- vegum en nokkurn annan. ^Nokkru siðar sagði Kínakeisari Kóreu stríð á hendur. Pyong Won konungur kvaddi hermenn sina tU vopna oghélt á mótióvininum. Ondal tók þátt í orrustunni. Og það var ekki síst vitsmunum hans og hreysti að þakka að Pyong Won bar sigur úr býtum. Hershöföingjarnir, sem fyrir löngu voru hættir að kalla Ondal U- Ondal, sýndu honum mesta heiður. Pyong Won grunaði aö dóttir hans ætti sinn þátt i þeirri miklu breytingu sem orðið hafði á Ondal. Hann spurði hann eitt sinn hreinskilnislega að því hvort hann vissi hvar dóttir sín, Kong Dschu, væri niður komin. Þá sagði Ondal frá öUu sem við hafði boriö f rá því hún hvarf að heiman. Konungur lét sækja prinsessuna og fylgja tU hallarinnar. Við þaö tækifæri sæmdi hann Ondal greifa- tign og heiðraði hann með ýmsu móti. Og lengi fóru miklar sögur í landinu af viðhöfninni í brúökaupi þeirra Kong Dschu og Ondal. Hann varð yfirhershöfðingi sem Pyong Won átti enn margan sigur að þakka. Kona getur gert betlara að konungi og konung að betla ra! sandgerði Blaðbera vantar í Norðurbæ. Upplýsingar hjá umboðsmanni, sími 7684. HEILSUGÆSLUSTÖÐ í KEFLAVÍK Tilboö óskast í innanhússfrágang og lóðarlögun fyrir heilsugæslustöð í Keflavík. Húsið er 726 m2 og er nú „fokhelt”. Verkinu skal að fullu lokið 15. mars 1984. tJtboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 2.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 10. maí 1983, kl. 11. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Adalfundur Alþýðubankans hf. árið 1983 verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu, Reykjavík, laugardaginn 30. apríl 1983 og hefst kl. 14.00. Dagskrá: a) Venjuleg aöalfundarstörf í samrœmi vid ákvaedi 1S. gr. samþykkta bankans. b) Samþykktir og reglugerd bankans. c) Tillaga um heimild til bankaráds um útgáfu jöfnunar- hlutabréfa. d) Tillaga bankaráds um nýtl hlutafjárútbod. Aðgöngumiðar að fundinum og at- kvæðaseðlar verða afhentir í aðal- bankanum, Laugavegi 31, dagana 27., 28. og 29. apríl nk. F.h. bankaráðs Alþýðubankans hf. Benedikt Davíðsson form. Þórunn Valdimarsdóttir ritari. FISKVERKENDUR Eigum ísvélar á lager. Hagstætt verð og greiðslukjör.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.