Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1983, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1983, Blaðsíða 3
3 DV. MÁNUDAGUR9. MAl 1983. Fjármálaráðuneyti semur við fyrirtæki í erfiðleikum: Breyta skatta- skuldum flán Fjármálaráðuneytið hefur á undan- förnum árum nokkrum sinnum samiö við fyrirtíeki, sem lent hafa í greiöslu- erfiðleikum, um breytingu á opinberum gjöldum þeirra í ián. „Við semjum í einstaka tilvikum þegar við teljum hag ríkisins betur borgið með samningum en sölu eigna, ” sagði Höskuldur Jónsson, ráöuneytis- stjóri íf jármálaráðuneytinu. „Við höfum gert þetta á undanförn- um árum í tilvikum þar sem val hefur verið milli þess að láta bjóöa upp eign, og sitja þá kannski uppi með frystihús eða togara eða einhverja álíka óskemmtUega hluti eins og gerðist hér áður fyrr, eða þá að semja um skuld- ina. Þetta kemur venjulega til okkar eft- ir að innheimtumenn rfkissjóðs eru búnir að gefast upp á að innheimta gjöld. Það er val milli þess að fyrirtæk- in verði seld á nauðungaruppboði meö einhverju óvissu veði, sem við eigum tU tryggingar skuldanna, eða við reyn- um að semja um þaö að fá betri stöðu heldur en við teljum okkur eiga eUa, semja með annaðhvort sjálfsskuldar- ábyrgð banka eða sjóða/’ sagði Höskuldur. Ráðuneytisstjórinn sagði að telja mætti þau fyrirtæki, sem þannig hefði verið samið við, á fingrum annarrar handar. „Það urðu fyrir nokkrum árum erfiðleikar á Stöðvarfirði, minnir mig, eða Breiðdalsvík. Það urðu erfiðleikar einhvern tíma vestur á Flateyri og hjá mér eru núna tvö bréf vegna fyrir- tækja á Suðurlandi. Erindið í þessum bréfum er að fá að breyta opinberum gjöldumílán. Það er algert skUyrði frá okkar hendi við samninga um þetta að við sé- um raunverulega að tryggja okkar stöðu. Og við höfum ekkert við það að gera að eignast frystihús eða togara. Við hér í ráðuneytinu höfum reynst heldur lélegir frystihús- opg útgerðar- stjórar,” sagði Höskuldur Jónsson. -KMU. Akureyri: Þessi leiftursókn beinist aö því aö stórlækka verð á geysigóðu úrvali af fyrsta flokks fatnaði, mjög mikið úrval af buxum í unglingastærðum. Þú verður áþreifanlega var við árangurinn strax með því að gera frábær kaup í Leiftursóknar- salnum á Skúlagötu 26 (á horni Skúlagötu og Vitastígs). Verö frá kr: Föt .........................kr. 990 Jakkar........................kr. 500 Flauelsbuxur..................kr. 190 Khakibuxur....................kr. 295 Barnabuxur úr denim og flaueli . kr. 200 Stakar buxur ................kr. 250 Mittisblússur......................kr. 400 Háskólabolir......................kr. 150 Bolir ............................kr. 75 Vattúlpur.........................kr. 690 Vattfrakkar.......................kr. 1790 Vattjakkar, síðir ................kr. 1190 KVENNAATHVARF? Umræður um hugsanlegt kvennaat- hvarf á Akureyri hafa undanfarið verið nokkrar þar í bæ. Málið var rætt nokkuö á fundi jafnréttishreyfing- arinnar á Akureyri í aprílmánuði, og að sögn Nönnu Mjailar Atladóttur félagsráðgjafa er ætlunin að ræða það nánar á næstunni. Hún kvað áhuga vera fyrir því en margt þyrfti að athuga vel í þessu sambandi. Valgerður Bjamadóttir, forseti bæjarstjómar, sagði að hugmyndir um kvennaathvarf hefðu lengi verið uppi. Hún sagði málið þó ekki komið neitt af stað og að það hefði ekki verið rætt í bæjarstjórn. Elín Antonsdóttir, sem var í 2. sæti Kvennalistans í Norður- landskjördæmi eystra, var þeirrar skoöunar að þörf væri fyrir aðstoð af einhverju tagi við konur. Hún sagði að erfiðara væri að fara með slíkt í jafnlitlum bæ og Akureyri heldur en í Reykjavík. Allar ofangreindar konur voru á einu máli um að margt þyrfti könnunar við i þessu sambandi, svo sem hve mikil þörfin væri og hvernig bæri að reka þjónustu af þessu tagi. Rétt er að geta þess að auglýsing birtist í Degi þann 21. apríl síðastliöinn, þar sem ónafn- greind kona auglýsir ráðgjöf sína handa konum sem beittar hafa verið ofbeldi. Ekki hefur enn tekist að ná sambandi viö konuna þar eð hún mun farin til útlanda um einhvem tíma. -PÁ. Komdu og láttu verögildi krónunnar marg- faldast í höndum þér með því að nýta þér þessa nýju leiftursókn til stórlækkunar. Verksmiðjuútsalan f Leiftursókn Skúlagötu 26, á horni Skúlagötu og Vitastígs KOMAST ÍSLENDINGAR LOKSINS AFTUR ÓDÝRT TIL ODÝRASTI SÓLARLANDASTAÐURIIMIM í ÁR Brottfarardagar og lengd ferða: 11. maí 17 dagar 27. maí 19 dagar 15.júní 7. sept. 22 dagar 6'. júlí, 27.júlí 17. ágúst 22 dagar Trimaran, ibúdir: 2 i studéoíbúð 1 í studioibúð kr. 13.800 - 15.900 kr. 14.850 - 17.700 kr. 15.900 - 18.600 kr. 16.840 - 19.400 Holel Kosarnar Park kr. 15.800 kr. 16.200 kr. 16.900 kr. 17.760 Hotel Flamingo og Hotel Friqola XXK stjörnur rét1 við baðströndina i lloret de mar og við miðborg verskmar 2 i beibergi 09 skemmtanalifs. sundlaugar. diskótek og dansað á kvöldin. Fritt TYrir hótelgesti. meöfuNufieði 1 | kr. 18.400 | kr. 18.900 | kt. 20.960 Aðrar ferðir okkar: Mailorca, Grikkland, Malta, Tenerife, Franska Rivieran RaV’A J/J-lirtour (Flugferðir) VESTURGÖTU 17 SÍMAR 10661 - 15331 OG 22100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.