Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1983, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1983, Blaðsíða 5
DV. MÁNUDAGUR 9. MAÍ 1983. 5 Síst minni aðsókn í utanlandsferðir: Meira lánaö ogtil lengrí tíma Ferðalög Islendinga til útlanda í sumar verða síst færri en í fyrra, þó svo að heldur hafi sigið á ógæfuhliðina í efnahagsmálum. Aðilar feröa- markaðarins verða þó varir viö versnandi f járhag fólks á þann hátt aö fleiri biðja nú um aö fá feröimar lánaðar. Bæöi er beðið um lengri láns- tíma og hærra lánshlutfall. Af samtölum viö ýmsa aðila ferða- markaðarins má einnig ráða að lítils háttar breytingar séu að verða á ferðalögum Islendinga til útlanda. Minni aðsókn sé nú í sólarlandaferðir en undanfarin ár og meiri eftirsókn sé nú eftir pakkaferðum alls konar, í sumarhús, með bílaleigubíl o.s.frv. Fyrir þessu séu ýmsar ástæðurr, svo sem að fólk sé orðiö leitt á að fara sífellt á sömu sólarstrendurnar ár eftir ár og eins hafi auknar ferðir Islendinga til útlanda orðið til þess að fólk treystir sér betur til að bjargast á eigin spýtur erlendis. Þrátt fyrir það að sífellt f leiri aöilar, skipuleggi nú ferðir til útlanda vilja aðilar feröamarkaðarins ekkert kannast við aukna samkeppni. Þeir segjast jafnvel ekkert hafa orðið varir við tilkomu tveggja nýrra farþega- og bílferja, Norröna (kemur í stað Smyrils) og Eddu. Þó virðist hafa bókast vel í ferðir þeirra, ef marka má upplýsingar umboðsaðila þeirra. Þaö virðist því ljóst aö þrátt fyrir síversnandi f járhagsafkomu fólks hér á landi sé hún látin bitna á einhverju öðru en sumarleyfisferðum til útlanda. -SþS. Ljósmyndir David Finn af málverkum Einars Jónssonar, Ásmundar Sveins- sonar og Sigurjóns Ólafssonar eru til sýnis í Listasafni íslands þessa dagana auk verka meistaranna. Hér á myndinni er ein af myndum Finn. Hún er af höggmynd Einars Jónssonar, Ungri móður. Höggmyndir ogljósmyndir r í Listasafni Islands Sýning á ljósmyndum og högg- myndum stendur nú yfir í Listasafni Islands. Sýndareru ljósmyndirBanda- ríkjamannsins David Finn og högg- myndir eftir Einar Jónsson, Ásmund Sveinsson og Sigurjón Ólafsson. Ljósmyndirnar eru af höggmyndum ofantalinna listamanna og eru flest verkanna einnig á sýningunni. David Finn er heimsþekktur ljósmyndari sem hefur sérhæft sig í ljósmyndun höggmynda frá ýmsum tímabilum, en þó einkum ljósmyndun verka mynd- höggvarans Henry Moore. Hann hefur gefið út fjölda bóka með ljósmyndum af verkum Moores og fjölda annarra bóka. Eru nokkrar þeirra einnig til sýnis og sölu á sýningunni. Myndhöggvarana þrjá, Ásmund, Einar og Sigurjón, þarf ekki að kynna, svo þekktir eru þeir meðal þjóðarinnar. A sýningunni er eftir hvern þeirra fjöldi verka sem flest hafa verið fengin að láni úr einkaeign ogöörumsöfnum. Sýningin verður opin til 15. maí, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 13.30 til 16, laugardaga og sunnudaga frá kl. 13.30 til 18. -ás. Símreikningar: Færist í vöxt að fólk biðji um greiðslufrest Almenningur hér á landi viröist nú eiga æ erfiöara með að standa í skilum meö alls konar greiðslur og afborganir. Að sögn Ágústs Geirs- sonar, skrifstofustjóra hjá sím- stöðinni í Reykjavík, hefur það til dæmis færst mjög í vöxt síðastliðiö eitt ár að fólk fari fram á að fá greiðslum á símreikningum frestað, eða jafnvel samið um að fá að borga þá með afborgunum. Einnig hefur lokunum á 'símum fjölgað nokkuð. Áriö 1979 var samtals 42888 númerum lokaö á því svæöi, sem hefur svæðisnúmerið 91, en árið 1982 varfjöldinn47173. Ef tekið er mið af því að fjöldi not- enda á þessu svæði er milli 55 og 56 þúsund kunna þessar töluraðhljóma afar háar. Þess ber þó að getahð í fjöldamörgum tilfellum er um sömu númerin að ræða, sem lokað er aftur og aftur. Langflestar lokanirnar standa í stuttan tima. Samkvæmt núgildandi gjaldskrá er grunnafnotagjald símtækis 478 krónur ársfjórðungslega. I Reykja- vik og nágrenni eru innifalin i þessari upphæð 300 skref en 600 skref úti á'landi. -SþS. TIL GRIKKLANDS MEP NÁMSMANNAFLUGI OG ÞÚKEMST ÞANGAÐ TÍMANŒGA TTLAÐ FÁ NÝBAKAÐ GRÍSKT BRAUÐ AÞENA. Nú er mögulegt að komast til Aþenu með náms- mannaflugi frá London, Amster- dam eða Kaupmannahöfn og ferðast síðan frjálst um Grikk- land. Aþenu er erfitt að lýsa. Sumir segja að hún sé óhrein og hávaðasöm, en aðrir halda því fram að hún sé engu öðru lík og hafi töfra sem séu ómótstæði- legir. Ekki síst sé dvalið þar í 1 -2 daga í byrjun eða lok Grikklands- ferðarinnar. Til að komast að hinu sanna er aðeins til eitt ráð, - þú verður að sjá hana sjálf(ur). Að sjálfsögðu er tilvalið að nota Alþjóðlega Afsláttarskírteinið eða Stúdentaskírteinið og líta ögn á menninguna á staðnum, - því hana er jú Grikkland frægt fyrir. Verð: 11.980.- BAÐSTRANDIRNAR OG NÁnVRÚFEGURÐINA ER AFTUR Á MÓTIAÐ FINNA Á GRÉKU EYJUNUM Þar eru hreinar og góðar bað- strendur, einstök veðursæld, fjöldi veitinga- og skemmtistaða og síðast en ekki síst sérstæð menning, þar sem gestrisni og innileiki eru í fyrirrúmi. Hægt er að velja um 1 -3ja vikna ferðir og brottfarir eru frá Kaup- mannahöfn tvisvar í viku. LEROS - eyja Díönu veiðigyðju, hefur engan flugvöllinn, en þangað er þó ekki nema 3ja tíma sigling frá Kos. Á Leros gengur Lífið sinn vanagang í friðsemd og rólegheitum. Á KOS er að finna sérstæða menningu og mikið af fornum minjum, m.a. má enn sjá merki um skóla Hippokratesar - föður læknislistarinnar. 2 vikur á Kos: 2 vikur á Samos: 2 vikur á Leros: 13.800.- 13.770.- 13.790.- Morgunverður innifalinn. Á SAMOS getur þú upplifað einfaldleikann á sama hátt og Pýþagóras og fegurðina eins og Fönekíumenn, enda töldu þeir Heru - gyðju fegurðar fædda á Samos. FERÐA SKRIFSTOFA STÚDENTA Hringbrcait, síml 16850

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.