Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1983, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1983, Blaðsíða 13
DV. MÁNUDAGUR 9. MAl 1983. 13 VERBBOLGAN OG VINSTUKAN Fyrir nokkrum árum haföi ég skrifstofu í stóru húsi við Háaleitis- braut. Mér þykir gaman aö vinna, svo að ég var stundum aö vinna á kvöldin þeg- ar allir aðrir voru famir heim til sín. En mér þykir líka gaman aö staupa mig þótt í hófi sé, svo að fyrir kom að ég gekk að allri vinnu lokinni út í vínstúku, sem var í gistihúsinu Esju viö Suðurlandsbraut, og fékk mér eitt staup eða tvö af veigunum sem þar vom seldar. (Mér er sagt aö Halldór Halldórsson prófessor hafi smiðaðnafnið „vínstúka” um bar, af stríðni við stúkumenn. Nafnið er gott, hvort sem þetta er rétt eöa ekki.) En mikil var undrun mín einn góðan veðurdag, þegar ég las það í blöðunum að þjónarnir í þessari vín- stúku hefðu verið handteknir og að minnsta kosti einn þeirra hefði játað að hafa blandað vatni út í vínið sem þeir seldu. Eftir þetta hef ég illa treyst þjónum í vínstúkum. Mér hefur þó stundum verið hugs- að til þessara blessuðu þjóna þegar ég hef horft framan í ráðamenn þjóðarinnar í sjónvarpi. Þeir segja okkur alvömgefnir í bragði að verð- bólgan sé orðin 40%, 60%, 80%, 100%. Engum dettur í hug að handtaka þá. En sannleikurinn er sá að margt er s vipað með framferði þjónanna í vín- stúkunni og ráðamannanna. Þjón- amir drýgöu víniö með vatni, án þess að menn yrðu varir við það. Ráðamenn þjóðarinnar drýgja skatt- neningana, sem þeir hafa af okkur með hótunum um „óþægilegar inn- heimtuaðgerðir”, með nýprentuðum peningum. Þessir nýprentuðu pen- ingar bætast viö peningana sem fyrir em í höndum fólks (eins og vatnið bættist við vínið), án þess að neitt bætist við vömmar sem peningarnir em notaðir til aö kaupa. Afleiðingin verður sú að vömmar hækka í veröi, — aö fleiri peninga þarf til að kaupa sömu vömmar, — en það nefnum við „verðbólgu” á íslensku. Peningar „þynntir út" Þjónamir heltu vatni út í víniö og þynntu það þannig út, ráöamennimir hella nýjum peningum saman viö gamla og „þynna” þá þannig út. En hvers vegna voru þjónarnir hand- teknir? Vegna þess að þeim var gefiö að sök aö hafa svikið okkur við- skiptavinina, látið okkur greiða fyrir vöru sem við fengum ekki. En em ráðamenn þjóðarinnar ekki að gera eitthvaðsvipað? Þeir prenta peninga og nota þá til að kosta umfram eyðslu sína, en þannig hafa þeir í rauninni fé af peningaeigendum því að peningarnir, sem fólkiö hefur i höndunum, falla í verði við þetta. Verðbólga er því frá hagfræðilegu sjónarmiöi séð skattur sem lagður er á eigendur peninga. Þessi skattur er Iagöur á þá, af því að valdsmennirnir eyða meiru en þeir geta aflaö með öðrum sköttum. Og þessi skattur er miklu verri en aðrir skattar því að hann er lagður á fólk, án þess aö þaö hafi samþykkt það: peningar þess eru „þynntir” út. Eg er ekki að mælast til þess, að ráðamenn þjóðarinnar séu hand- teknir. Eg er að benda á hitt að þeir bera ábyrgð á verðbólgunni — ríkis- stjórn, Alþingi og Seðlabanki — en hvorki verkalýðsfélög né allur al- menningur. Stundum er sagt að verðbólgan sé af því að fólk eyði meira en það afli. Þetta er ekki rétt. Verðbólgan er af því að ríkið eyðir meira en það aflar — og brúar bilið með prentum peninga. Ráöamönn- um þjóðarinnar ferst því illa aö kenna öðmm um. Þeir hvetja til spamaðar. En þeir ættu að byrja á sjálfum sér, fara gætilegar með al- mannafé en þeir hafa gert fram að Kjallarinn Hannes H. Gissurarson þessu. En sitt er hvað Jón og séra Jón. Jón er handtekinn fyrir að þynna út vínið, séra Jón fær aö halda yfir okkur umvöndunarræður með merkissvip þótt hann þynni út pen- ingana okkar. Ráðið til þess að veröbólgan hjaðni er einfalt: Það er að prenta ekki fleiri peninga en innistæöur eru fyrir. En framkvæmdin er flóknari. Milton Friedman leggur það til að fastar reglur séu settar um vöxt peningamagns. Þaö felur í sér að ráðamenn geta ekki lengur þynnt peningana út. Ýmsir aörir frjáls- lyndir hagfræðingar telja að taka eigi aftur upp gullfót, þ.e. binda pen- ingamagn við það gullmagn sem ríki áífórumsínum. Friedrich Hayek á þriðju hug- myndina. Hún er aö leyfa ólíkum peningum að keppa, svissneskum frönkum, þýskum mörkum, banda- rískum dölum, íslenskum krónum og jafnvel peningum framleiddum af einkafyrirtækjum, en við þetta veld- ust þeir peningar til notkunar sem þættu traustastir. Þessar þrjár hug- myndir eru allar athyglisverðar. Kjami málsins er sá að ráðamenn þjóðarinnar fái ekki lengur aö falla fyrir svipaðri freystingu og þjónarn- irí vínstúkunni. Palo Alto, Kalifomíu í apríllok 1983. Hannes H. Gissurarson, sagnfr. Glitþræðir verðum við ekki Sunnudaginn 24. apríl varð ljóst, að kvennalistakonur höfðu haft erindi sem erfiði í kosningabar- áttunni og fengið þrjá fulltrúa kjörna á þing. Það er raunar sannfæring mín, að við hefðum ekki þurft nema viku í viðbót til kynningar á málstað okkar til að fá fjórða fulltrúann, slíkur var meöbyrinn síðustu dag- ana. En við sættum okkur prýðilega viö þessi úrslit og höldum ótrauöar á- fram að vinna málum okkar brautar- gengi. „Fréttir" Morgunblaðsins Svo sem venja er hafa fréttir af stjómmálaviöræðum undanfarna daga einkennst af getgátum, og í mörgum tilvikum hefur verið um hreinan uppspuna að ræða, einkum í Morgunblaöinu, sem hæst gumar þó við hvert tækifæri af ábyrgð sinni og áreiðanleika. Ef allar „fréttir” þess blaðs af stjómarmyndunar- viðræöum eru jafnáreiöanlegar og þær, sem viðkoma Kvennalistanum, er augljóslega ekki hið minnsta mark á þeim takandi. Þetta biö ég alla stuðningsmenn Kvennalistans aðhafaíhuga. Ætla mætti, aö óábyrg skrif Morgunblaðsins hafi þann tilgang að reyna aö skapa óeiningu innan Samtaka um kvennalista. Sú tilraun er dæmd til að mistakast. Við þing- konurnar þrjár höfum jafnóðum skýrt meðframbjóðendum okkar frá framvindu mála og vitum, að þær trúa okkur betur en Morgunblaöinu. Engin hrossakaup En vegna þeirra stuðnings- og samstarfsmanna okkar, sem ekki hafa átt þess kost að fylgjast náið með viöburðum síðustu daga vil ég undirstrika, að hið rétta er í stuttu máli þetta: Þingmenn Kvennalist- ans hafa rætt við fulltrúa flokkanna eftir því sem tilefni hafa gefist og ekki sóst eftir viöræðum við einn flokk fremur en annan. Þingmenn Kvennalistans hafa ekki lent á önd- verðum meiði við meðfram- bjóöendur sína um þátttöku í ríkis- stjóm. Þar hefur alltaf verið fullt samkomulag um, að Kvennalistinn legði stefnuskrá sína til gmndvallar í einu og öllu og væri ekki td viðræðu um hrossakaup. Það hlýtur að vera hverjum manni ljóst, sem litur raunsætt á málrn, að þriggja manna þingflokkur meö ung samtök á bak við sig hefur ekkert í ríkisstjórn aö gera, nema því aöeins að hann geti sýnt fram á verulegan árangur og það tiltölulega fljótt. Af því leiðir, að við kvennalistakonur hljótum að vera fastar fyrir í viðræðum. Fulltrúar gömlu flokkanna virðast raunar ekki hafa gert sér ljósa grein fyrir markmiðum Kvennalistans, enda ef til vill ekki viö því að búast. Eins og formaður eins flokksins sagði við okkur, þá huga menn frekar að stefnu eigin flokks en annarra fyrir kosningar. Þeir virðast jafnvel hafa haldið, að við teldum það helst til framdráttar kvennabaráttu aö geta komið einni eða tveimur konum í ráðherrastóla og væmm tilbúnar að kaupa það sæti alldýru verði. Eg hygg, að þeim sé núorðiðljóstaðviðtökumekkiþátt í braski og höfum engan áhuga á að setja mildandi svip á „sterka stjóm”, eða eins og ein okkar hefur orðaö það, ,að vera glitþræðir í klæði, Kjallarinn | Krístín Halldórsdóttir þar sem aðrir ráða uppistöðu, meginívafi og lit”. Bætur í krónutölu Þær raddir em nú háværar meðal istjómenda atvinnuvega og peninga- mála, að vísitöluna beri að taka úr sambandi eða að minnsta kosti skerða launaverðbætur stórkostlega. Þessar raddir virðast eiga góðan hljómgmnn meðal stjómmála- manna. Kvennalistinn er þeirrar skoðunar, að láglaunafólk, sem er að stórum hluta konur, þoli alls ekki slika kjaraskerðingu. Við erum sem fyrr fylgjandi því að reikna dýrtíðar- bætur á meðallaun og láta þá sömu krónutölu koma til hækkunar allra launa undir meðaltali. Sennilega er nauösynlegt að skerða bætur á laun yfir meðallagi eða jafnvel sleppa þeim alveg í núverandi ástandi. Oft er bent á, að lág laun séu bætt upp með yfirborgunum og yfirvinnu. Rétt er þaö vafalaust í mörgum tilvikum, en ekki þar sem konur eiga í hlut. Þær fá sjaldnast hærri laun en ■ samningar segja til um, og fæstar hafa tök á því aö vinna meira en lög- boðinnvinnutíma. Við emm því ekki til viðræðu um skertar bætur til handa fólki, sem hefur laun undir meöallagi. Enginn uppgjafartónn Við leggjum sem fyrr mesta á- herslu á mál, sem fyrst og fremst varða bættan hag kvenna og barna, svo sem endurmat á störfum kvenna, samfelldan skóladag, líf- eyrissjóð fyrir alla landsmenn, endurskoðun tryggingamála, þar sem einkum heimavinnandi hús- mæður em misrétti beittar, 6 mánaöa fæðingarorlof og sömu greiðslu til allra, dagvistarrými fyrir allá, sem þurfa, og fullorðins- fræðslu. Þessi mál og mörg fleiri úr stefnuskrá okkar höfum við reifað í samræðum okkar við fulltrúa flokkanna og fengið vinsamlegar undirtektir, sem ekki gefa þó tilefni til neinnar bjartsýni um forgang. Það er þó enginn uppgjafartónn í okkur. Við trúum því staðfastlega, að okkur takist að vinna baráttumál- um okkar brautargengi á þingi, hvort sem stólarnir verða bakháir og útskornir eða svolítið einfaldari að gerð. Kristín Halldórsdóttir. alþingismaður. A „...að þriggja manna þingflokkur með w ung samtök á bak við sig hefur ekkert í ríkisstjóm að gera, nema því aðeins að hann geti sýnt fram á verulegan árangur og það tiltölulega fljótt...”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.