Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1983, Blaðsíða 43
DV. MÁNUDAGUR9. MAl 1983.
43
Sandkorn__________Sandkorn_________________Sandkorn
Ekki í
vinnunni
Þaö vakti athygli aö þegar
ölóöur maöur gekk berserks-
gang um Skólavörðustigiun í
síðustu viku flutti Morgun-
blaðið hncykslunarfréttir af
því að enginn hefði haft upp-
burði í sér til þess að stöðva
manninn. Síst af öllu ljós-
myndari Morgunblaðsins
sem elti manninn og ljós-
myndaði allt saman.
Til
háðungar?
Fyrstu dagana semheíms-
meistaramótið í badminton
stóð í Kaupmannahöfn flutti
sjónvarpið reglulega fréttir
af því hversu auðveldlega
íslensku keppendurnir hefðu
verið slegnir út cn sá eini
þeirra scm komst í aðra um-
ferö náði svo langt vegna
þess að andstæðingur hans i
fyrstu umferð mætti ekki til
keppni. Ekki nóg með það að
hin hræðilega útreið væri
nákvæmlega tíunduð heldur
voru birtar myndir af íslend-
ingunum um leið.
Einn sjónvarpsglápandi
varð svo þreyttur á þessu að
hann spurði: „Hvað eiga
þcssar fréttir að þýða? Er
verið að gera þetta fólkinu til
háðungar?”
Laun
heimsins ....
Það hefur vakið athygli
hversu mjög Albert Guð-
mundsson er skammaður á
siðum Morgunblaðsins fyrir
lélega frammistöðu Sjálf-
Geir: munaðlþvísemþurftitll.
stæðisflokksins í Reykjavík.
Menn velta því nú fyrir sér
hvcrjum hcfði verið þakkað
hefði flokknum gengið vel.
Svarið er auövítað: mann-
inum í baráttusætinu, Geir
Hallgrimssyni.
Það sem til
þurfti..............
Þar sem Geir Hallgrímsson,
formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, kom út af fundi í alþingis-
húsinu beið hans maður sem
þurfti að tala við formanninn.
Gesturinn gekk til Geirs,
heilsaði honum og kynnti sig.
Hann sagðist heita Sigurgeir.
Geir sagði þá: „Já, það
munar ekki mikJu en þó því
sem þurfti til.
Forum i
kaífi ....
Ekki virðast sjálfstæðis-
menn vongóðir um það að
stjórnarmyndunartilraunir
Geirs Hallgrimssonar berí
mikinn árangur. Fyrir helgi
var þingflokksfundur og þar
meðal annarra mættur Albert
Albert: bestaftfaraikaífi.
Guömundsson. Hann kom út
úr fundarherberginu
snemma og gekk til þing-
manna sem sátu í kaffistof-
unni. Albcrt sagði aö hann
gerði víst ekkert þarfara cn
að fá sér kaffi, hvað hann og
gerði. Síðan fór hann burt úr
þinghúsinu.
Tollarar
hund-
óánægðir
Tollvcrðir í Reykjavík
munu ekki vera yfir sig
ánægðir með atorku lögreglu-
manna um þessar mundir.
Nú hafa lögreglumenn tekið
sig til og mæta í hvcrt sidp,
sem að landi kemur frá út-
löndum, með hasshundinn og
eru oftast samferða tollþjón-
unum sem eiga að afgrciða
skipið. Þetta mun ekki vera
lögreglumönnum heimilt því
að þeir mega víst ekki leita í
föggum sjómanna nema með
fógetaúrskuröi. Og Sjó-
mannafélagið mun víst hafa
þctta mál til a thugunar iíka.
Umsjón: ÖlafurB.
Guðnason
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Tónabíó—Bardaginn um Johnson-hérað:
TRÚVERDUGASTI, DÝRASTI
OG USTRÆNAST1VESTRINN!
Cimino tekst á einstaklega fágaðan hátt að gefa áborfandanum innsýn i
andrúmsloft vestursins um síðustu aldamót með Heavens Gate. Þetta er
óvenjulegur vestri, kannski einkum vegna þess hversu langt hann er frá þvi
að vera ódýr.
Tónabfó, Bardaginn um Johnson-hórað
(Heavens Gate):
Stjórn: Michael Cimino.
Kvikmyndahandrit byggt á sannsögulegum
atburðum: Michael Cimino.
Kvikmyndun: Vilmos Zsigmond.
Aðalleikendur: Kris Kristofferson, Christopher
Walken, John Hurt, Sam Waterston, Brad
Dourif, Isabelle Huppert, Joseph Cotten, Jeff
Bridges.
Tónlist: David Masfield.
Sviðsmynd: Tambi Larsen.
Framleiðandi: Joann Carelli.
Þaö er sannur vestri sem Michael
Cimino hefur búiö til með kvikmynd
sinni Heavens Gate. Hann er sannur
aö því leyti aö hann nær aö gefa
áhorfandanum trúveröuga og sann-
færandi innsýn í þaö andrúmsloft, þá
lifnaöarhætti og síöast en ekki síst
þann aldarhátt sem tiðkaðist í mið-
fylkjum Bandaríkjanna skömmu
fyrir síðustu aldamót. Sviðsmyndin,
búningar og förðun skírskota í smá-
atriðum til þess sem gerðist fyrir
aldamótin. Til þeirra þátta hefur
nákvæmlega ekkert verið til sparað,
enda er Heavens Gate dýrasti vestri
sem geröur hefur veriö til þessa.
(Framleiösla hans kostaöi um
40.000.000 dollara sem þýðir á
íslensku tæpar fjögur hundruð millj-
ónirkróna).
Þá er kvikmynduninni og Iýsingu
hennar beint inn á einstaklega fág-
aöar brautir en hvort tveggja
hjálpar mjög upp á trúverðugleika
sviðsmyndarinnar og þess andrúms-
lofts sem Cimino hefur leitt inn í
verkið.
Heavens Gate er kvikmyndaverk
sem byggir á sannsögulegum atburði
er gerðust í sýslu einni sem Johnson
heitir í Wyoming-fylki árið 1890.
Ráðandi öfl í sýslunni eru nautgripa-
eigendur en þeir hafa meö sér öflugt
félag sem viröist ráöa hverju fótmáli
íbúanna og hefur gert margt lengi.
1890 taka að flykkjast inn í sýsluna
innflytjendur frá Evrópu, einkan-
lega frá Prúss- og Rússlandi. Þetta
er fátækt fólk sem flúið hefur
eymdina frá gamla heiminum og
hyggst freista gæfunnar í gjöfulum
sveitum miö- og vesturfylkja Banda-
ríkjanna. En þessu fólki reynist örð-
ugt að fá jarönæði á þessum slóöum,
því öflugt félag nautgripaeigend-
anna hefur ráðin í sínum höndum og
lætur ekki eftir einn einasta skika af
,sínu landsvæði. Þetta eykur því enn
á fátækt innflytjendanna, eina bjarg-
ráö þeirra veröur að hnupla kjöti frá
nautgripaaðlinum. Ástandið leiðir til
þess aö nautgripaaðallinn sker upp
herör gegn innflytjendunum og
ákveður að nota til þess allar leiöir
aö flæma þá út úr fylkinu. Þeir skrá
niður á lista nöfn hundrað tuttugu og
fimm innflytjenda sem hafa orðið
uppvísir að kjöthnupli. Byssumenn
eru fengnir til aö gera út um þennan
f jölda, með einum eöa öðrum hætti.
Cimino hefur fariö þá leið að segja
söguna í frekar litlum bútum. I
fyrstu virðist sambandið milli þeirra
óverulegt en þegar á líður verða þeir
hver öðrum samtengdari. I heild
sinni verður þetta púsl að skemmti-
legri og áferðarfallegri stígandi sem
nær hámarki sínu í stórkostlegri en
jafnframt blóðugri viðureign milli
nautgripaaðalsins og innflytjend-
anna. Inn í söguna fléttast ýmsar
persónur sem mismikil áhersla er
lögö á aö skýra eða gegnumlýsa.
Sterkustu persónurnar verða þó
Averill, fógeti sýslunnar, leikinn af
Kris Kristofferson, Champion, eftir-
litsmaður nautgripafélagsins, leik-
inn af Chris Walken, mellumamman
í sýslunni, leikin af Isabelle Huppert
og Canton, formaður nautgripa-
félagsins, leikinn af Sam Waterston.
Þá nær John Hurt að sýna andlit sitt
og ágæta meðferð á hlutverki sínu
sem fyllirafts innan nautgiýpaklík-
unnar. Cimino tekst að stýra þessum
aöalleikendum vel, persónusköpunin
er skýr í höndum hans og svo virðist
sem honum hafi tekist að ná fram
hinu besta í hverjum þessara leik-
ara. Þar vil ég einkum nefna Chris
Walken (lék dópistann í Deer-Hunter
Ciminos) sem sýnir framúrskarandi
tilþrif í hlutverki sínu.
Allmörg fjöldaatriði eru í mynd-
inni, sum hver með hundruð
einstaklinga. Þessiatriöisýnast eðli-
leg, trúverðug eins og myndin er í
heildsinni.
Þannig veröur sagt um Heavens
Gate að hún sé stórmynd í mörgum
skilningi þess orðs. Reyndar ræðst
Cimino ekki á garðinn þar sem hann
er lægstur í þessu viöfangsefni sínu,
en honum tekst að miðla því á
einstaklega sannfærandi hátt. Hann
missir aldrei marks í stjórn sinni,
skýtur aldrei yfir markið, heldur
leiðir hann söguþráðinn af nærfærni,
vitandi að hann er að miðla sann-
sögulegum atburðum.
Það veröur að koma hér fram,
fyrir áhorfendur þess eintaks sem
Tónabíó sýnir okkur af Heavens
Gate, að þaö er ákaflega mikiö stytt,
skorið og klippt. I sýningu Tónabíós
er myndin rúmir tveir tímar að
lengd en upprunalega útgáfan er
rétt um helmingi lengri. Þetta bitnar
auövitað á myndinni, gæðum hennar
og efniviöi.
Sigmundur Emir Rúnarsson.
Færanleg
verkfræöiþjónusta
Tökum að okkur hvers kyns járnsmíðaverkefni,
bæði nýsmíði og viðgerðir.
V
STÁL-ORKA
SIJIMI-OGVilMil’ltnAÞJÞIVIISTAK
Sími 78600 á daginn
og 40880 á kvöldin.
*
Notaðir /yftarar I fj\
í mikiu úrvaii
Getum afgreitt eftirtalda lyftara nú þegar s'l'H.1.
Rafmagns
1.51.
21.
2.51. m/snúningi.
31 m/snúningi.
Skiptum og tökui
K.JÓNSSÖN&CO.HF. *
HÓRAR
4 af helstu málningarvöru og
innréttingaverslunum á höfuöborgarsvæöinu
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir