Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1983, Side 45
DV. MÁNUDAGUR9. MAl 1983.
Sviðsljósið
Og hér sjást þær brasilísku enn betur. Allt þrautþjálfuð módel sem
kunna sitt fag. Karlmaðurinn á myndinni er „sminkari" sem eitt módel-
anna, svertingjastúlkan, kom óbeðin með til að sjá um „sminkið" á sér.
Kann sá svo einnig um lokaundirbúninginn á hinum módelunum, þykir
geysifær á sinu sviði.
m
Ferðin var ekki bara tóm vinna. Hér slappar hópurinn af fyrir framan
Kristsstyttuna i Rio de Janeiro. Sá sem er annar til vinstri í aftari röð
heitir Sigurður Guðjónsson og er eiginmaður Elsu.
-
T0FF HJÁ TELLY
„Kódjakkinn” Telly Savalas setti
allt á annan endann í „hliðinu” á
Heathrow-flugvelli í Ix^ndon þegar
hann kom þangaö nýlega.
Bjöllurnar fóru í gang og veröir
stoppuöu gamla „brjóstsykurspinn-
ann” í hvelli. Hvem fjandann var
Kojak aö bralla núna?
í ljós kom aö í jakkavasa hans
fannst vindlingakveikjari sem var
eins og byssa í laginu. Ekkert annaö
að gera en taka í gikkinn og „þá
rauöur loginn brann”.
Vissulega töff hjá Kojak eins og
hansvarvon ogvísa. Ogekkialveg
eins alvarlegt og í upphafi virtist.
N
Fraus afhræðslu í„hrollvekju”
Leikarinn kunni, Lee Marvin, er
sagður hafa „frosiö” af hræöslu
þegar veriö var að taka eitt atriöiö
upp í myndinni Gorky Park í Hels-
inki. Þetta kom mönnum ekki svo á
óvart, því aö tíu stiga gaddur var
þegar upptökumar fóru fram. I þess-
ari miklu „hrollvekju” leikur Lee
gamli á móti leikkonunni Joanna
Pacula. Hún er einnig sögð hafa
verið meira og minna „frosin” viö
upptökurnar í Helsinki.
Upplýsingar
um
cfoinctviimi ■
Tæknilegar upptýsingar
Steinsteypa er blanda af sandi, möl, sementi, vatni og íblöndunarefnum, er hafa bætandi
áhrif á steypuna. Steinsteypa er flokkuö niður í brotþolsflokka eftir styrkleika. Algengustu
brotþolsflokkar eru í röð eftir vaxandi styrkleika S-120, S-160, S-200, S-250 og S-350, en
þessi flokkun táknar 28 daga brotþol 15 x 30 cm sívalninga, sem steyptir eru úr viðkomandi
steypublöndu. í venjuleg hús er S-200 algengast.
Þykkleiki steinsteypu er mældur eftir því hversu marga cm sérstök keila úr blautri steypu
sígur þegar mótið er fjarlægt. Því hærra sem sigmálið er, því þynnri er steypan. Venjuleg
tregfljótandi steypa er með sigmáli 5-10 cm , þunnfljótandi með meira en 20 cm sigmáli.
Steypan verður því þynnri sem meira vatni er þætt í hana. Of mikið vatn í steypu hefur
skaðleg áhrif. Aldrei skyldi setja meira vatn í steypu, en minnst verður komist af með.
í steinsteypu er blandað ýmsum efnum til að breyta eiginleikum hennar. Loftblendi- og
þjálniefnið H-Loft frá Woermann er sett í alla steypu frá Steypustöðinni hf til að auka
veðrunarþol steinsteypunnar, draga úr vatnsþörf og auðvelda niðurlögn hennar.
Flotefni eru sett í steypuna, þar sem steypan þarf að vera fljótandi, léttfljótandi eða
þunnfljótandi við niðurlögn, eða þar sem þarf að fá slétta áferð á steypufleti, án þess að
þau veiki hana, eins og verður við þynningu með vatni.
Eftir ítarlegar samanburðarrannsóknir á hinum ýmsu efnum mælir Steypustöðin hf með
flotefninu Flot 78.
Steinsteypan er burðarás mannvirkisins. Gæta verður vel við niðurlögn steinsteypu að
ekki myndist göt í veggi eða að steypa skilji sig og myndi malarhreiður. Vandið til allrar
meðferðar steinsteypu.
Alkalískemmdir
í þeim mannvirkjum á Reykjavíkursvæðinu, sem notuð hefur verið möl og sandur úr
Hvalfirði hefur borið á skemmdum í steinsteypu, vegna efnabreytinga er eiga sér stað milli
sementsins, saltsins og steinefnanna.
Kísilsýraísteinefnunum myndarmeðalkalíumsementsinsog saltsins kísilsýruhlaupsem
sprengir steypuna. Til að koma í veg fyrir slíkar skemmdir hefur kísilryki verið bætt út í
sementið, og notkun óvirkra steinefna verulega aukin í samræmi við niðurstöður rannsókna
er Steinsteypunefnd hefur látið gera. Steypustöðin hf hefur ávallt notað og haft á
boðstólum óvirk steinefni.
Steinsteypukaup
Sú hugmynd að dreifa steinsteypu með bifreiðum frá blöndunarmiðstöð þróaðist í
Bandaríkjunum og fyrst slíkra stöðva í Evrópu.Steypustöðin hf var reist á Islandi áriðl947.
Steypustöðin hf býður húsbyggjendum þjónustu sína. Við reynum að fullnægja óskum
viðskiftavinaokkareftir bestu getu. Skrifstofa okkar er við mynni Elliðaánna að Sævarhöfða
4. Sími okkar er 33600. Hafið samband við einhvern eftirtaldra aðila: Jón Ólafsson
skrifstofustjóra, Svein Valfells verkfræðing, Halldór Jónsson verkfræðing.
Steinsteypupantanir
Verkstjóri okkar, sem tekur við steinsteypupöntunum, heitir Ottó Gíslason, s. 36470 eða
33600. Steypu þarf helst að panta með nokkrum fyrirvara þar eð hana þarf að framleiða
um leið og hún er afhent.
Steypustöðin hf tekur að sér að sjá um pöntun á steypudælu eða krana, ef annars er
ekki óskað.