Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1983, Blaðsíða 48
79090 AUGLÝSINGAR AÍUAA SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA
SENDIBÍLASTÖÐ SKRIFSTOFUR
KÓPAVOGS ÞVERHOLTI 11
Símsvari á kvöidin og um helgar A//l 1 RITSTJÓRN OOO 1 1 SÍÐUMÚLA 12—14
MÁNUDAGUR 9. MAÍ 1983.
Helgi vann
helgarskákmótið
Helgi Olafsson vann öruggan sigur
á fyrsta helgarskákmóti ársins sem
haldið var í Stykkishólmium helgina.
Hann fékk 6'/. ,af 7 mögulegum, annar
varö Sævar Bjamason með 5,5v.en 3.
sætið hreppti gamla kempan Öli
Valdimarsson eftir harða baráttu. I
síðustu umferð bar hann sigurorð af
efsta manni Islandsmótsins sem
haldið var um páskana, Dan
Hansson. Næstir komu þeir Gunnar
Gunnarsson, DanHansson, Ásgeir Þ.
Ámason og nýbakaður Islandsmeist-
ari, Hilmar Karlsson, með 4,5v.
Hlutskarpastur af heimamönnum
varð Bjami Einarsson sem sýndi góð
tilþrif, lagði meöal annarra Sturlu
Pétursson og náði jafntefli viöSævar
Bjarnason. Þetta varl7. helgarskák-
mótið í röðinni, Helgi Olafsson hefur
keppt í þeim öllum og sigrað nú í 10.
skipti. -BH.
Þrírívarðhald
vegna skjalaf als
Þrír menn um tvitugt voru úr-
skurðaöir i gæsluvarðhald fram á
miðvikudag um helglna vegna
meints skjalafals. Tveimur þeirra
varsíöanslepptí gærkvöldi.
Að sögn Rannsóknarlögreglu
ríkisi.is í morgun kom þetta mál á
hennar borð þann 28. apríl síðast-
liðinn. Var strax hafin rannsókn sem
leiddi til þess að á laugardag var
einn mannanna úrskurðaður í
gæsluvarðhald.
Tveir voru síöan úrskuröaöir í
gæsluvaröhald í gærdag en eftir yfir-
heyrslur var þeim sleppt í gærkvöldi.
Bkki fengust frekari upplýsingar
um þetta mál hjá rannsóknarlög-
reglunni í morgun. -JGH.
Engarákvarðanir
um Sædýrasafnið
Engar ákvarðanir voru teknar um
framtíð Sædýrasafnsins á fundi
stjórnar þess um helgina, aöeins að
beðið verði eftir tiikynningu frá
bæjarfógeta í Hafnarfirði um hvað
eigi að gera. Stjórnarformaðurinn,
Hörður Zóphaníasson skólastjóri,
sagðist í morgun gera frekar ráð
fyrir að framkvæmdum við apa- og
ljónahúsið ásamt vatnslögnina verði
haldiö áfram. Ef safnið yrði lagt
niður þyrfti að koma þeim mann-
virkjumíverð.
Hörður sagði einnig að aðalfundur
Sædýrasafnsins yrði iíklega í lok
mánaðarins, frekari ákvarðanir
myndu bíða hans. Hugsanlega yröi
líka beöið nýs menntamálaráðherra
til að sjá hver afstaða hans yrði tU
safnsins. -JBH.
'o
Flugmál Kef lavíkurflugvelli:
Yfírstjómin undir
fíugmálastjómina
— hörð mótmæli flugráðs sem áður hafði yfirstjórnina ásamt utanríkisráðuneyti
Yfirstjóm flugmála á Keflavíkur-
flugvelli heyrir nú undir flugmála-
stjóm, en var áður í höndum flug-
ráðs og utanríkisráðuneytis. Er
þessi breyting tilkomin er Stein-
grímur Hermannsson samgönguráö-
herra undirritaði nýverið setningu
reglugeröar um flugmálastjórn þar
sem staðfest var skipurit fyrir stofn-
unina.
„Samkvæmt reglugerð frá 1957,
heyrir flugvallastjórn Keflavíkur-
flugvallar undir flugráð,” sagði
Leifur Magnússon, formaður flug-
ráðs, við DV í morgun. „Þessi
reglugerð er enn í gildi og stangast
þessi gjörö samgönguráðherra því á
viðhana.”
Steingrímur Hermannsson hafði
einnig gefiö út skipunarbréf vara-
flugmálastjóra, framkvæmdastjóra
flugumferðarþjónustu og umdæmis-
stjóra í flugvallarumdæmi I. Voru
þau og ofangreind reglugerðar-
breyting undirrituð án samráðs við
flugráð en ekki leitaö eftir tillögum
þess eins og ákvæði laga um stjóm
flugmála frá 1950 mæla fyrir um.
Flugráð fjallaði um þetta mál á
fundi sínum fyrir helgi. Samkvæmt
Á Útsýnarkvöldi, sem haldið var siðastiiðið föstudagskvöld i Broadway, voru tvö ungmenni kjörin, ung-
frú Útsýn og herra Útsýn. Þau eru hér brosandi að krýningu lokinni ásamt forstjóra Útsýnar, Ingólfi Guð-
brandssyni. Ungfrú Útsýn 1983 heitir Guðlaug Stella Brynjólfsdóttir og herra Útsýn 1983 Sigurður Matt-
hiasson. ÞG/DVmynd GVA
heimildum DV gætti mikillar
óánægju meðal flugráðsmanna
vegna þessara einhliða aðgerða sam-
gönguráöherra. Voru á fundinum
samþykktar tvær ályktanir, þar sem
þessari málsmeðferð er harðlega
mótmælt. Verða þær sendar sam-
gönguráðuneytinu og Pétri Einars-
syniflugmálastjóra í dag.
-JSS.
Bandaríkin:
íslendingarsleppa
við hvirfilbyl
Frá Þóri Guðmundssyni, fréttarit-
ara DV í Bandaríkjunum:
Islendingar í Lawrence og Topeka
sluppu allir við hvirfilbylji sem náðu
niöur í NA-Kansas á föstudag.
Hvirfilbyljirnir eyðilögðu um 125 hús
í Topeka, einn maður dó og þrjátíu
meiddust.
Stormarnir skullu á um það leyti
sem tók að rökkva á föstudag. Þeir
fóru í norðaustur yfir Kansas City
þar sem tugur Islendinga býr en ollu
litlu tjóni þar. Aðeins er vitað um
einn Islending sem býr í Topeka,
Eddu Svan. Hún sagði við DV að
hvirfilbylur hefði stefnt i átt að
heimili hennar en breytt um stefnu
og farið fram hjá. Hún og maöur
hennar heyrðu í gær um hverfin sem
fengu að kenna á eyðslumætti byls-
ins. Þök höfðu fokið af sumum hús-
um en af öörum var „ekkert nema
spýtnarusleftir,” sagðiEdda.
I Lawrence, þar sem búa ellefu Is-
lendingar, námsmenn og fjölskyldur
þeirra, skall á harður stormur.
-EA
Eggjamálið:
„Læt reyna á hvaða
skrípaleikur þetta er"
— segir Gunnar Jóhannsson bóndi á Ásmundarstöðum
„Það er ljóst að þeir eru aö draga í
land og tala ekki um einokunarleyfi á
eggjasölu heldur heildsöluleyfi,”
sagði Gunnar Jóhannsson, bóndi á
Ásmundarstööum, um viðhorf Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins í eggja-
sölumálinu. En þau eru að einungis
hafi verið samþykkt að veita einum
aöila heildsöluleyfi og aðrir hafi ekki
sótt um slíkt leyfi. „Þeir eru að
breyta um aöferð í baráttunni. Nú
sjá þeir að neytendur og allir hags-
munaaðilar hafa mótmælt eggja-
sölueinokun harölega og ætla því
aðra leiö. Eg get sótt um heildsölu-
leyfi og fær örugglega nei viö. Þeir
ætla að drepa hina frjálsu sam-
keppni meö fjárstyrk úr kjarnfóður-
sjóði. Á félagsfundi hjá okkur hefur
verið gefin sú yfirlýsing aö veröi
dreifingarstöðin stofnuð, sé Fram-
leiðsluráðið tilbúið að láta 7—8 mill-
jónir af hendi rakna til hennar úr
sjóðnum.”
„Um leið og slík dreifingarstöö er
komin á laggirnar, og þó að þær
veröi tvær til þrjár til viöbótar, verð-
ur öllum sett þaö skilyrði meöal ann-
ars að selja eggin á ákveðnu verði.
Þá drepa þeir um leiðsamkeppnina.
Innan tveggja til þriggja ára verður
síðan öllu breytt aftur, tekið upp
kvótakerfi, eins og þeir ætluöu aö
gera fyrir hálfu ári. Það er sama
hvað einkarekstur er vel rekinn,
hann getur ekki endalaust keppt við
f járstyrkt ríkisapparat. Þeir ætla aö
mismuna heildsöluleyfi með fjár-
styrk úr kjamfóðursjóði. En það hef-
ur sýnt sig að með úthlutun styrkja
úr honum hefur mönnum verið mis-
munað verulega. En fyrst þeir hafa í
dag breytt um baráttuaöferðir og
tala um heildsöluleyfi kem ég til með
að sækja um slíkt leyfi. Og læt þá
reyna á hvaða skrípaleikur þetta
er,” sagði Gunnar Jóhannsson, bóndi
á Ásmundarstöðum.” og það er
spuming hvort ekki myndist sam-
staða gegn þessu og úr verði önnur
dreifingarstöð.”
-ÞG