Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1983, Blaðsíða 1
39.000 EINTÖK PRENTUÐ í ÐAG.
RITSTJÓRNSÍMI 86611 • AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA SÍMI 27022
Frjálst, óháð dagblað
DAGBLAÐIЗVÍSIR
158. TBL. — 73. og 9. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1983.
Keppnin um ungfrú alheim:
Strit og púl
—notuðu okkur sem auglýsingavöru, segir
Unnur Steinsson ungf rú ísland
„Þaö er rétt aö skipulagningin
þarna úti var alveg hræðileg. Það
vissi eiginlega enginn neitt hvaö
hann var aö gera,” sagði Unnur
Steinsson feguröardrottning Islands
er DV spurði hana í morgun hvort
rétt væri að hún hafi verið óánægð
með skipulag Miss Universe keppn-
innar. Unnur kom heim í gærmorg-
un eftir þriggja vikna dvöl í Saint
Louis þar sem keppnin fór fram.
„Þeir flæktust með okkur til og frá
og við höfðum það alltaf á tilfinning-
unni að þeir vissu ekkert hvað þeir
væru að gera eða fara. Enda var al-
menn óánægja með keppnina hjá
þátttakendum. Þetta var ekkert
nema strit og púl frá klukkan sex á
morgnana til miðnættis,” sagði Unn-
ur ennfremur. „Við gátum okkur
ekki hreyft fyrir öryggisvörðum og
gæslukonum og maturinn var hreint
út sagt hræðilegur. Hótelið var ágætt
en ég verð að viðurkenna að ég bjóst
við því betra,” sagði Unnur ennfrem-
ur.
„Það var eins og þessir menn væru
að reyna að gera allt sem glæsilegast
í þessum sjónvarpsþætti og mér
fannst eins og þeir væru að nota okk-
ursemeinhverja auglýsingavöru.”
Unnur var þá spurð hvort ekki hafi
verið erfitt að vera ein í þessari ferð.
„Ég er náttúriega vön að ferðast ein
' en það hefði ekki verið verra að hafa
einhvern með sér.”
— Er það rétt að þú sért hætt við
að taka þátt í keppninni Miss World
íhaust?
„Ég er ekkert búin að ákveða
hvort ég geri það, ég ætla bara að
láta það ráðast,” svaraði hún. -ELA.
Hraðf rystihús Patreksf jarðar í miklum erf iðleikum:
Stöðvast á morgun
80 manns missa þá vinnuna ef ekki verða greidd laun
Hraðfrystihús Patreksfjarðar á í
miklum fjárhagslegum erfiðleikum
um þessar mundir. Starfsfólkiö
hefur ekki fengið greidd laun um
nokkurt skeið og verði ekki ráðin bót
þar á mun frystihúsið stöðvast um
hádegi á morgun.
Jens Valdimarsson, stjómarfor-
maður Hraðfrystihússins, sagði að
starfsfólkið, um 80 manns, heföi ekki
fengið greidd laun fyrir síðustu viku.
„Við erum ekkert að biðja fólkiö um
aö vinna ef við getum ekki greitt því
laun,” sagði hann. „Það er ekki hægt
aö fara fram á slíkt við fólk.”
Sagði Jens að forráðamenn hefðu
samiö um það við starfsfólkið aö það
ynni upp þann fisk sem til væri í hús-
inu. Þeirri vinnu yrði væntanlega
lokið um hádegi á morgun og þar
með stöðvaðist frystihúsið ef ekki
hefði ræst úr málum þess fyrir þann
tíma.
Aðspurður um hvort útlit væri fyr-
ir stöðvun kvaðst Jens ekki vilja spá
um það á þessu stigi málsins. Frysti-
húsið skuldaði nokkur hundruð þús-
und krónur í launagreiðslur og eng-
inn fiskur yröi tekinn í húsið fyrr en
þaðmálhefðiveriðleyst. -JSS.
Grænlandsflugid:
Skaðinn orðinn verulegur
— sjá bls. 2
1 ‘r'- ... ' ' .. ■
Upphæð atvinnuleysisbóta:
Sýnirhvað lægstu tekjurerulágar
— sjá bls. 3
I appelsínunni
Ivarormurstór
— sjáNeytendurá
bls. 6 og 7
•
Samdráttur-
! Kreppueinkenni?
Ekkertútog
I lítiðámánuði
-sjábls.4