Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1983, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1983, Blaðsíða 11
DV. FIMMTUDAGUR14. JUU1983. 11 HVERNIG A AÐ SPARA DÝRAN DROPANN? Bensín hækkaði á dögunum um 13,5% úr 19,30 kr. í 21,90. Bensínverð hér á landi er þvi hæsta verð sem um getur í Vestur-Evrópu. Það er því ekki að ástæðulausu að DV og Vikan efna til sparaksturs- keppni í því augnamiði að hvetja til orkusparnaðar. En hvemig á að spara bensín? Hér á eftir fylgja nokkur hollráð: Mikilvæg atriði varðandi bifreiðarnar sjálfar — Hjólbaröar: Hafið réttan loft- þrýsting. Of h'till loftþrýstingur kostar peninga á tvenna vegu. Endingartími hjólbarðanna minnkar og bensíneyðsla getur aukist allt að 5%. Betra er að hafa tveimur pundum meira í hjólbörðunum en einu pundi of htið. Bensíneyðsla eykst ef loft- þrýstingurinn er of lítill í hjólbörð- unum. — Hemlar: Látið yfirfara og stilla hemlana reglulega. Bensíneyðsla eykst ef hemlarnir hggja út í. — Kveikjukerfið: Raki og óhrein- indi geta reynst kveikjukerfinu skeinu- hætt. Þrif og rakavöm á háspennu- kefh, háspennuþræði og kveikjuloki getur komið í veg fyrir gangtruflanir. Bensíneyðsla eykst ef kveikjukerfiö er ekkiígóöulagiog illa stillt. — Lofthreinsari: Ohreinn eða stífl- aöur lofthreinsari hindrar streymi lofts til blöndungsins. Bensíneyðsla eykst ef lofthreinsari er óhreinn. — Blöndungur: Stilhng blöndungs- ins hefur mest áhrif á nýtingu bensíns. Vegna þess hve stihingar þurfa að vera nákvæmar þarf aö láta fagmann vinna verkið. Ef blöndungurinn er van- stUltur eykst bensíneyðsla. — Bensínkerfið: Bensínkerfið er viðkvæmt fyrir vatni og hvers kyns óhreinindum og skal því ætíð gæta hreinlætis við bensín og bensíngeymi. — Kælikerfi: Nauðsynlegt er að hreyfUUnn komist á réttan vinnuhita (80—90 ° C) eins fljótt og mögulegt er og haldist á réttu hitastigi með hjálp vatnslássins. Bensíneyðsla eykst ef hreyfiUinn er of kaldur. Aksturslag skiptir miklu máli Aksturslag skiptir ákaflega miklu máh hvað bensíneyðslu varöar. Við minnum hér á nokkur atriði. — Gangsetning hreyfUs: Við gang- setningu á ekki að draga innsog lengra út en nauðsynlegt er og síðan ýta því inn eins fljótt og gangur hreyfUsins gefur tilefni til. Bensíneyðsla eykst við not á innsogi. — Ekið af stað: Forðist spymur. Akiö af stað með jöfnum hraða og léttu ástigi á bensíngjöf. Þannig sparið þér einnig tengslin. Bensíneyðsla eykst við spymur. Takið því ætíð af stað eins og þér takiö af staö í hálku. — Notið gírana rétt: Látið hreyfil- inn ekki snúast of hratt áður en þér skiptið um gir. Góð þumalfingursregla er að skipta í 2. gír á 20 km hraða, í 3. gír á 40 km hraða, og 4. gír á 60 km hraða. Margar bifreiðar þola vel 4. gír á 45 km. hraöa á sléttum vegi í því tU- feUi er óhætt að skipta beint úr 2. í 4. gír. I 5 gíra bifreiðum er oft hægt að skipta beint úr 3. gír í 5. gír á sléttum vegi. Ef bifreiöin er sjálfsskipt stigið þá létt á bensíngjöfina og bifreiðin skiptir fljótt í hærri gír. Bensíneyðsla minnkar eftir því sem hreyfUUnn snýst hægar á hvem ekinn kUómetra. — Verið forsjál: Hafið auga með umferðinni og hagið akstri eftir því. Sleppið bensíngjöfinni í tíma og setjið í hlutlausan gír og látið bifreiðina renna þegar það á við. Þannig er hægt að koma í veg fyrir að stööva þurfi snögg- lega. — Réttur hraði: Bifreiðin eyðir því meira bensíni því hraðar sem ekið er. — nokkur góð ráð um sparakstur Haldið jöfnum hraða og stígið ekki of fast á bensíngjöfina. Hafið hæfilegt bU mUU bifreiða þannig að ekki þurfi að Þegar stöðvað er í brekku er ráðlegra vegna öryggis og bensineyðslu að setja bUinn i handbremsu frekar en aö nota gírana. Stöðvið hreyfilinn ef stað- næmast skal lengur en í eina mínútu. Vonandi geta lesendur nýtt sér þessi góðu ráð og sparað sér stórfé í bensín- kostnaði. -ás/byggt á fréttabréfi FtB. snögghemla. — Framúrakstur: Akið ekki of nálægt, næsta bfl fyrir framan ef þér æthö aö taka fram úr. Ef þér eruð mjög náiægt þá þurfið þér aö auka hraðann fljótar en ef þér akið með jöfnum hraða og stærri sveig. — Ekið í beygju: Minnkið hraðann áöur en komið er að beygju. Betra er að minnka bensíngjöfina en að stíga á hemla. Þegar þér eruð hálfnaðir í beygjum á aö auka bensíngjöf aftur. Með þessu móti sparast bensín. — Ekið upp brekku: Látið hreyfilinn ekki erfiða upp brekku, setjið í lægri gír þegar ferðin minnkar. Ef hreyfiU- inn erfiðar þarf hann aukið bensín. — Ekið niður brekku: Hafið bensín- gjöfina þannig að hreyfihinn hvorki drífi bifreiðina eða sé drifinn af henni. I sumum brekkum má setja í hlut- lausan. Aldrei má stöðva hreyfiUnn í akstri. I sjálfskiptum bifreiðum má aldrei setja í hlutlausan. — Hægagangur: Forðist ónauðsyn- legan hægagang hreyfils. Þegar stað- næmst er viö rautt ljós er ekki ráðlegt að hreyfa bensíngjöfina á meðan beöið er eftir grænu. I hvert skipti sem stigið er á bensingjöfina er send buna af bensíni inn í blöndunginn aö óþörfu. Ferðum 6 bensínstöðvar fjölgar heldur betur ef aksturslag er ekki skynsamlegt. i greininni hér á siðunni eru gefin nokkur góð rið um aksturslag og útbúnað bifreiðar. Ef þeim réðum er fylgt ætti buddan eitt- hvað að þyngjast þjá bileigondum. SUMARiÐ '83 VIÐ HOFUM rón H SEM FAró ÞÉR VEL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.