Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1983, Side 2
DV. FIMMTUDAGUR14. JULI1983.
SILUNGSVEIÐI
IREYÐARVATNI
Veidileyfi seld ad Þverfelli í
Lundareykjadal.
ÍÍJÖtJSXXJC^ÍSJSJSJSJOSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJCJSJSJSJÍJSJSJSJÍJSJSJS
STÖFELLD verðlækkun
á sumarblómum úr bökkum og pottum. Einnig
inni-pottaplantna.
GRÓÐRARSTÖÐIN SNÆFELL
Heiðmörk 29 Hveragerði.
Útboð
Bæjarsjóður Hafnarfjarðar auglýsir eftir tilboðum í jarð-
vinnu vegna viðbyggingar við elliheimilið Sólvang í Hafnar-
firði, einnig uppsetningu á giröingu kringum vinnusvæðið.
Húsið er að grunnfleti 1450m2. IJtboðsgögn veröa afhent á
skrifstofu bæjarverkfræðings gegn 1000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 26. júlí kl. 11.00.
BÆJARVERKFRÆÐINGUR.
Allar vörur fyrirtækisins
með 50% afslætti
Ifið breytum rekstrinum og seljum þvi allar
vörur verslunarinnar i dag og næstu daga'
með helmingsafslætti.
Missið ekki af útsölu ársins.
Auðbrekku 44—46,
Kópavogi. Sími 45300.
GÚMMÍBÁ TAR
m Igafti fyrir mótor
m/árum
Verökr. 13.400,-
PÓSTSENDUM.
Jf'jr'T'## ÍC Giæsibæ
C / # aLKr Sími 82922
Grænlandsflugið:
Klukkan gengurmedan
ekki kemur yfíriýsing
frá hinu opinbera
— „Skaðinn þegar orðinn verulegur/’
segir forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins
,,Þaö er þegar vitað að skaði af
þessu er verulegur. Þetta gerist á
miðri vertíð og það veit enginn hvaða
afleiðingar þetta hefur til fram-
búðar,” sagðiKjartan Lárusson, for-
stjóri Ferðaskrifstofu ríkisins, um
þá stöðu sem nú er komin upp þegar
Flugleiðir hafa ákveöið að hætta
skyndilega Grænlandsflugi.
Hver gerði hvað og hvort einhver
gerði rangt eða rétt, það er ekki mitt
að dæma. En þetta er verulegur
álitshnekkir og þetta spyrst mjög
hratt út um ferðamannaheiminn.
Þeir hætta að treysta fólki,” sagði
Kjartan.
Eins og DV skýrði frá í gær hafa
Flugleiðir ákveðið að hætta flugi til
Narssarssuaq á vesturströnd Græn-
lands þegar í stað. Bendir allt til þess
að Helga Jónssyni verði veitt leyfi til
Grænlandsflugs.
„Þetta fréttist þegar samdægurs
til viöskiptalanda okkar í Evrópu.
Ég frétti þetta reyndar þaöan en ekki
héðan að s vona væri í pottinn búið.
Fjöldi ferðaskrifstofa selur Island
og Grænland og allnokkrar sérhæfa
sig í Grænlandi og lslandi með
áherslu á hvort land fyrir sig þó að í
flestum tilvikum sé Island aðalvið-
komustaðurinn. Þegar á þetta er litið
vaknar sú spuming: Hvað skaðast
Island ef Grænlandi verður ekki
þjónað um smátíma?
Þaö er spuming hvort viökomandi
farþegar hætti ekki alfarið við þessa
ferö sem átti að skiptast milli Islands
og Grænlands. Þá berum við mjög
skarðan hlut frá borði. Þetta milli-
bilsástand kostar bæöi Islendinga og
Grænlendinga ómælda peninga i
álitshnekki og leiöindum. Og það er
spurning hvort þessi litli peningur,
sem við setjum í landkynningu á
hverju ári, þurrkast ekki út á einum
degi við svona uppákomu.
Við höfum, Ferðaskrifstofa ríkis-
ins, og reyndar einhverjar fleiri
ferðaskrifstofur, reikna ég með, aug-
lýst þessar ferðir víða um heim og
erum þess vegna skaðabótaskyldir
ef við getum ekki staðið viö það.
Síöan erum viö meö skaöabótakröfur
á næsta aðila, í þessu tilviki Flug-
leiðir, og þá er spumingin hvort
Flugleiðir telji sig ekki eiga skaöa-
bótakröf u á hendur hinu opinbera.
Eg hef áhyggjur af því að þetta
millibilsástand verði okkur svo dýrt
að þaö komi til með að skaða þann
verulega sem tekur við Grænlands-
fluginu. Ferðaskrifstofur víða um
heim era mjög næmar fyrir öllu
svona. Þær vilja ekki taka neina
áhættu þegar þær finna lykt af
einhverju óöryggi.
Klukkan gengur á okkur núna.
Meöan afgerandi yfirlýsing kemur
ekki frá hinu opinbera, að það sé búið
að tryggja að allir farþegar sumars-
ins fái sína ferð snurðulaust og það
sé engin hætta á því að þetta fari
niður, þá gengur klukkan. Og hver
slátturerdýr,” sagðiKjartan.
Hann sagði það ógæfusamt fyrir
Islendinga gagnvart Grænlend-
ingum ef mál þetta færi í hnút því
eina tenging Grænlands við útlönd
væri í gegnum Island.
Þá leist Kjartani ekki á aö flugi til
Narssarssuaq yrði sinnt með milli-
lendingu í Kulusuk. Fjögurra daga
ferð þangaö þyldi ekki að stór hluti
heildarferöarinnar færi í ferðalag
fram og til baka. Auk þess væri flug-
völlurinn í Kulusuk einn sá frum-
i stæðasti í veröldinni, bæði hvað varð-
aði staðsetningu og alla umsjón í
kringum hann. -KMU.
TVj Iðnaöarhúsmu
28388 og 28580
Atlantik býður upp á þriggja vikna ferö
til sólskinseyjarinnar Mallorka með
sérkjörum. Verðið er í sérflokki og auk
þess er barnaafslátturinn meiri en
gengur og gerist.
Ath. Hagstætt verð
Ath. Hagstæðkjör
Ath. 50% barnaafsláttur
(allt upp í 16 ára)
Það er ekki tilviljun að Mallorka skuli njóta
þeirra vinsælda, sem raun ber vitni. Eyja-
skeggjar kappkosta viö að gera dvöl ferða-
manna, sem eyjuna heimsækja, sem ánægju-
legasta.
Atlantik býður sem fyrr upp á ákjósanlega að-
stöðu fyrir fólk á öllum aldri. Ekki síst fyrir
f jölskyldur með börn.
Takmarkað
sætaframboð.