Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1983, Síða 9
DV. FIMMTUDAGUR14. JUU1983.
9
Útlönd
Útlönd
,
Breska þingið haínaði í gær að gálgar yrðu aftur teknir i notkun.
FLÓDIN
AUKASTí
ARGENIÍNU
Flóðin í noröausturhluta Argentinu
hafa aukist til muna þar sem stöðugt
vex í ánni Urugay og flóðin í Parana-
ánni hafa ekkert rénað.
Vegna flóöanna hafa 126 þúsund
manns að minnsta kosti orðið að yfir-
gefa heimili sín en þessar tvær ár og
þverár þeirra hafa á síðasta hálfa ár-
inu valdið miklu tjóni.
Spjöll hafa orðiö á vegum, járn-
brautum og raflínum.
Flóða í þessum mæli er ekki að
vænta nema á 120 ára fresti. Þessi
nýjustu flóð komu í kjölfar úrhellis-
rigninga fyrir þremur vikum.
Vitað er um 26 manns sem farist
hafa í f lóðunum.
Dæmdur
á líkum
Sænski herforinginn Bertil Ströberg
var í gær dæmdur í sex ára fangelsi í
Stokkhólmi fyrir njósnir þrátt fyrir að
hann héldi stöðugt fram sakleysi sínu.
Rétturinn var ekki einhuga og vildi
einn dómarinn sýkna Ströberg þar sem
hann taldi sekt hans ekki sannaða.
Ströberg var ákærður fyrir að hafa
sent pólska sendiráðinu í Stokkhólmi
bréf í apríl. I bréfinu voru hernaðar-
leyndarmál afhjúpuð og jafnframt
boðnar frekari upplýsingar gegn 25
þúsund sænskra króna greiðslu.
Sendiráðið fúlsaði við þessu boði og
hafði samband við sænsku lögregluna.
Þó að ákærandinn hafi ekki haft
sannanir fyrir því að Ströberg hafi
skrifað bréfið þóttu líkumar það
sterkar að hann var sekur fundinn.
Meöal annars voru upplýsingarnar í
bréfinu þess eðlis að einungis mjög
þröngur hópur manna, þar á meöal
Ströberg, hafði aðgang að þeim.
-GAJ/Lundi.
VIUA
EKKI
GÁLGA
Breska þingið felldi í gærkvöldi til-
lögur um að leiða dauöarefsinguna aö
nýju í bresk lög. Atkvæðamunur var
svo mikill að ólíklegt þykir að tals-
menn dauðarefsingar reyni í bráð að
endurvekjahana.
Kom mjög á óvart hve atkvæöamun-
ur var mikUl (361 gegn 245) því að við
könnun á þingfylgi undanfarnar vikur
hafði munurinn sýnst mjög naumur.
Umræður voru hinar áköfustu um
málið í þinginu í gær. Margaret
Thatcher forsætisráðherra var meöal
þeirra sem greiddu atkvæði með
dauðarefsingunni, eins og margir aðrir
úr hægri armi Ihaldsflokksins. Ráð-
herrar ríkisstjómar hennar höfðu
sumir greitt atkvæði með og sumir á
móti.
James Prior írlandsmáiaráðherra
hafði hótað aö segja af sér ef dauöa-
refsingin yrði leidd í lög. Varaði hann
við því að dauðarefsingin kynni að
gera píslarvotta úr hryðjuverkamönn-
um IRA á N-Irlandi og gefa þeim nýjan
byríseglin.
Fyrr í gær höfðu fjórir hermenn látið
lífið í Tjrone-héraði þegar bifreið
þeirra lenti á jarðsprengju sem
hryðjuverkamenn IRA höfðu komið
fyrir.
— Þegar fréttin barst af þessum at-
burðum til þingheims kviðu margir
andstæðingar gálgans að það gæti orð-
ið til þess að snúa mörgum þingmönn-
um til fylgis við dauðarefsinguna sem
varðþóekki.
KENNARAR
Kennara vantar að Brúarásskóla á Héraði. Nýjar íbúðir.
Sími um Fossvelli.
k?
“"VIDEO“"
OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 23
Kvikmyndamarkaðurinn
Skó/avörðustíg 19.
Videoklúbburinn
Stórho/ti 1. Simi 35450.
„VIDEO.
Laus staða
við grunnskólann Hofsósi. Kennslugreinar: sérkennsla og ís-
lenska. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 95-6386.
BOKARI
Keflavíkurbær óskar að ráða bæjarbókara. Umsækjandi þarf
að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 20. júlí nk.
/
Bæjarritari.
LEIKTÆKITIL SÖLU
ATH. af sérstakri ástæðu eru eftirtalin leiktæki til sölu:
1. Pengo.
2. Burges time.
3. Jungle King.
■ 4. Bug Man borð.
5. Alphan sky.
6. Defender.
Upplýsingar veittar í sima 46777 eða 28673 frá kl. 2 til kl. 23.
\
\