Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1983, Qupperneq 15
DV. FIMMTUDAGUR14. JUU1983.
15
Mörgum árum of seint
Á síöasta alþingi var samþykkt
frumvarp Alberts Guömundssonar
og ellefu þingmanna annarra úr
öllum flokkum (sem þá voru til) þess
efnis aö lækka um helming til skatta-
álagningar síðustu launatekjur aldr-
aöra.
Hugmyndin er sú aö sá sem verður
ellilífeyrisþegi greiði aðeins opinber
gjöld af hálfum þeim launum sem
hann hafði sitt síöasta ár sem laun-
þegi.
Vandamál þeirra sem hætt hafa
störfum, og tekið að lifa á ellilífeyri,
hefur verið að ellilífeyririnn hefur
ekki gefið svigrúm til þess að bæði
lifa af honum og greiða jafnframt
skatta af tekjum síðasta árs. Athuga
má að f rammi fy rir þessu vandamáli
hafa staöið miklu fleiri en aldraðir.
„Ári of seint"?
Svo nefndist grein sem hinn mæti
skólamaður Steindór Steindórsson'
frá Hlöðum reit um mál þetta í Mbl.
4. marssl. .
Steindór fagnar frumvarpi tólf-
menninganna en leggur auk þess til
að ellilífeyrisþegar verði undanþegn-
ir fasteignagjöldum, auk þess sem
hann hælir bæjarstjórn á Neskaup-
stað fyrir að leggja ekki útsvar á elli-
lífeyrisþega.
Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV,
fagnar og frumvarpi þessu í leiðara
4.marssl.
Það sem mér finnst miður er að
allir þessir bráögreindu menn skuli
vera að nudda í smámálum sem öll
væru leyst í einu með kerfi sem allir
núverandi stjómmálaflokkar hafa
lýst vilja á að koma á og Alþýðusam-
band Islands hefur lagt áherslu á að
tekið yrði upp eða staðgreiðsla
skatta. Vilmundur Gylfason hefir
einnig fyrir hönd Bandalags
jafnaðarmanna lýst því yfir að það
muni vinna að þvi að staðgreiðsla
skatta verði tekin upp. Þá er aðeins
ótalið kvennaframboðið en „þing-
konur” þess hafa einungis lýst
ákveöinni skoðun í einu máli ef ée
man rétt, þær eru á móti röllum.
Skoðun þeirra í skattamálum er hér
með eftirlýst.
Ríkisskattstjóri hefir lýst því yfir
að innheimtukerfi staðgreiddra
skatta sé tilbúið.
Það er kunnugt að allir þykjast
vilja leysa vanda láglaunahópa
þjóðfélagsins og allir vita hve Utt
málum þeirra hefir þokað á leið.
Vandi þeirra, sem raunverulega
vilja koma staðgreiðslu skatta á hér
á landi, er sá sami, allir seg jast vilja
koma staðgreiðslu á en engum
verðurúrverki.
Slæmar
tekjusveiflur
Við núgildandi skattgreiðslukerfi
eru það slæmar tekjusveiflur þegar
laun lækka mikið milli ára. Ástæður
þess geta verið margvíslegar. Ein er
sú aö menn láta af störfum aldurs
vegna og taka að lifa é ellilaunum.
Kristinn Snæland
Onnur er sú að laun lækka vegna
veikinda. Þriðja er að laun lækka
vegna samdráttar í vinnu. Fjóröa er
aö laun lækka vegna þess að viðkom-
andi er á aflaskipi annað árið en þýr
við aflabrest hitt. Fimmta er að laun
lækka hjá hjónum sem bæði unnu
utan heimilis vegna þess að konan
verður vanfær og verður að hætta
starfi.
Hér eru nefndar fimm ástæður
sem um allar nema hina síðustu má
segja aö launþeganum séu ekki sjálf-
ráðar. (Vissulega er slíkt einnig
hægt að segja um hina síöustu).
Um fjölmargar aðrar ástæður
getur verið að ræða þegar laun lækka
milli ára, stundum vegna ákvörðun-
ar launþega en oftast af ástæðum
sem hann fær ekki ráðið. Hinir
skilningsríku alþingismenn leystu til
hálfs vanda ellilaunþega en létu lönd
og leið vanda allra hinna sem ég hef
nefnt.
Það grátlega í þessu sambandi er
svo það að vandi hinna öldruðu er
næsta smávægilegur í þessu máli en
vandi hinna sem ég hef nefnt oft
1
1LÖGUN
afléttvíni og þú sparar
minnst 1.800 kr.
ÁMAN ÁRMÚLA 21
geysilegt vandamál. Almennt séð fer
ekki á milli mála að fjárhagur yngra
fólks, sem er að stofna heimili og
byggja yfir sig, er miklu tæpari og
viðkvæmari en þess fólks sem er að
hætta störfum og hverfa að ellilaun-
um.
Þó ekki sé nú minnst á þá ellilauna-
þega sem eru í það mörgum sjóðum
að laun þeirra hækka er starfi lýkur.
Þessi hópur mun vissulega vera
fámennur.
Alþingismenn sáu vanda ellilaun-
þega þó að hann sé lítill. Hvers vegna
sáu þeir ekki vanda allra hinna sem
er þómiklumeiri?
Röng skýring
Nokkrir alþingismenn hafa fullyrt
við mig að á meðan verðbólga sé svo
mikil, sem hún er um þessar mundir,
sé launþegum í óhag að tekin sé upp
staðgreiðsla skatta. Þessi skýring
stenst ef miðað er við að með stað-
greiðslu verði álagning gjalda með
sama hætti og sömu prósentum og
nú.
Ég trúi því ekki, fyrr en ég tek á,
aö stjórnmálamenn hafi ætlað sér að
halda sömu álagningarreglum með
staðgreiðslu. Vitanlega hlýtur og er
sjálfsagt og eðlilegt að endurmeta
skattprósentuna um leið og
staðgreiðslukerfi er tekið upp. I því
sambandi er og rétt að meta
álagninguna með tilliti til verðbólgu
og almennra vaxta í þ jóðfélaginu.
Hugmyndin um staðgreiösiu
skatta hefur vonandi aldrei verið sú
af hálfu stjómmálamannanna að ná
inn meiri tekjum um leið og það kerfi
yrði tekið upp?
Auðvitað verða stjómmála-
mennirnir að gera ráðstafanir um
leið og staðgreiðslukerfið verður
tekið upp til þess að skattbyröin
verði svipuð og áður og ég treysti
þeim fullkomlega til þess, aðeins ef
þeir ætla sér það. Af þessum
ástæðum álit ég þaö haldlitla
skýringu, gegn staðgreiöslu skatta,
að slíkt fyrirkomulag sé launþegum í
óhag í rík jandi verðbólgu.
Því segi ég, standið við fyrirheitin,
komið á staðgreiðslu skatta og mjög
stórum hópi gjaldenda mun líða
betur, ekki aðeins öldruöum.
Útsvör og
fasteignagjöld
Varðandi það sjónarmið, að rétt,
sanngjamt og skynsamlegt sé að
fella niður útsvör og fasteignagjöld
ellilaunþega, vil ég enn benda á
sama og áður.
Ellilaunþegar er alls ekki sá hópur
sem verst er staddur í þjóðfélaginu,
sem betur fer, um það vitnar m.a. að
einmitt ellilaunþegar eru oft sá
hópur sem fyrst allra greiðir þessi
gjöld að fullu til síns sveitarfélags.
Hitt ber svo aö athuga að við álagn-
ingu gjalda, bæði á aldraða og alla
aðra, ætti að leggja í ríkari mæli
áherslu á hina gullvægu reglu skatt-
heimtumanna. Leggja skal gjöld á
fólkið eftir efnum og ástæðum.
Kristinn Snæland.
13 »/Kl\
Urval
Sparaksturskeppni
Vikunnar og D V
Tveir nákvæmiega eins Suzuki-fólksbílar aka hring-
veginn 13. til 17. júlí. Við stýrið á öðrum er Gísli Jóns-
son en hinum Kristín Birna Garðarsdóttir.
Átta 3000-króna verðlaun verða veitt fyrir rétt svör
við spurningum um bensíneyðslu á ákveðnum vega-
iengdum hringvegarins, ein verðlaun fyrir hvern hluta
getraunarinnar.
Allir mega vera með í getrauninni. Útfylltum
svarmiðum þarf að skila annaðhvort i fylgdarbil
keppnisbílanna á viðkomustöðum þeirra á
hringveginum EDA með þvi að póstleggja miðana.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦■♦
Sendist
„DV, Síðumúla 12,
105 Reykjavík"
í umslagi
með 5 krónu
frímerki.
Nafn þátttakanda.............................. |
Heimili...........................Póstnúmer.... ♦
♦
♦
5. h/uti getraunarínnar er leiðin Egi/sstaðir J
— Akureyrí sem er alls 275 kílómetrar. Ég +
giska á að vinningshafínn noti........ bensín- ♦
lítra ti! að komast þessa vegalengd. ♦
Miðann
þarf að
póstleggja
í síðasta
lagi 20.
júlí 1983.