Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1983, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1983, Qupperneq 19
DV. FIMMTUDAGUR14. JULl 1983. 19 Menning Menning Menning Menning Á sgrímur Jónsson — sumarsýning Norræna hússins Sumarsýning Norræna hússins í ár er helguö listmálaranum Ásgrími Jónssyni. Sýnd eru alls 40 myndverk, sem flokkast undir olíumálverk, vatns- litamyndir og teikningar. Sýningunni lýkur24.7. Ásgrímur Jónsson Asgrímur fæddist í Rútsstaöahjá- leigu í Flóa 4.3.1876. Hann fór ungur aö heiman og vann ýmis störf samtímis sem hann lagöi stund á teikningu og málun. Árið 1897 sigldi Ásgrímur til Kaupmannahafnar. Hann var fyrst við teikninám m.a. hjá Gustav og Sophus Wermehren, en innritaðist síöan árið 1900 í Listaakademíiö i Höfn. Hann dvaldi lengi erlendis, feröaðist mikiö, skoöaöi söfiri og menntaðist í listinni. Tré í Húsaf ellsskógi, 1945. Ljósm.GBK. Myndlist GunnarB. Kvaran Mestan hluta ævi sinnar var lista- maöurinn þó búsettur á Islandi. Hann reisti sér hús viö Bergstaöastræti og nefnist það nú Ásgrímssafn. 20. aldar málari — 19. aldar málverk Ásgrímur Jónsson er einn merkasti listmálari Islendinga á fyrri hluta aldarinnar. Málverk hans á þó rætur að rekja til þeirra breytinga sem urðu í listinni í Evrópu á síðari hluta 19. aldar og kenndar hafa veriö viö impression- isma. Þannig eru myndverk lista- mannsins uppbyggö á fremur hefö- bundinn hátt og megináherslan lögö á litinn og pensilskriftina. Þó svo að flest olíumálverkin séu sögð vera frá Húsafelli, er hér ekki um aö ræða neina „landafræði”. Málarinn settist ekki aö i Húsafelli til aö ,,mála upp” eöa skrásetja umhverfið, heldur fýrst og fremst til aö mála mynd. Mál- verkin sem áhorfendur geta virt fyrir sér hér í Norræna húsinu eru því sjálf- stæðar myndir sem umfram allt lúta sínum innri lögmálum. Helsta einkenni þessara mynda getum við kannski sagt vera „beislaö flæði” i formi og lit, sem gerir þaö aö verkum aö þaö myndast sambærileg innri hreyfing í ólikum einduin myndverksins. Tökum eftir hvernig náttúran, trén og skýin búa yfir ámóta innri hreyfingu. En þetta er ekki „náttúrleg hreyfing” heldur sýn listamannsins, sem umbreytir viökom- andi staöháttum i ákveöið listrænt myndmál. Fjarlægöin á raunveruleik- ann og sjálfstæði málverksins er síöan einnig undirstrikað með litnum og pensilskriftinni. Áhorfandinn skynjar litinn sem lit og sér jafnvel móta fyrir pensilfarinu á léreftinu. Þannig er allri sjónblekkingu útrýmt. Að öðru leyti er hér um að ræða fremur hæverska lita- meðferð. Listamaðurinn teflir sjaldan fram glannalegum andstæðum. Mál- verkið er því ávallt í fullkomnu jafn- vægi. Vatnslitamyndir listamannsins eru skemmtileg andstæða viö olíu- myndimar. Þessi innri hreyfing sem áöur er minnst á lýsir sér nú í frjálsara flæöi og undarlegum tærleika, sem oft f ramkallar heillandi dýpt. Góð sýning Sýning þessi á verkum Asgríms er einkar hrífandi. Hún er vel sett upp og fá myndimar hér gott svigrúm. Vist er að aliir hrifnæmir listunnendur ættu ekki aö láta slika sýningu framhjá sér fara. GBK ORION Geturðu grillað tvívesis með sömu kolunum? Heildsölubirgöir: HALLDÓR JÓNSSON HE Dugguvogi 8 Sími 86066 PRESTFOSS viðarkol brenna því án þess að gefa frá sér reyk, mengaðan hættulegum efnum. PRESTFOSS viðarkol eru auðtendranleg. PRESTFOSS viðarkol brenna jafnt, lengi og vel og því er iðulega unnt að kæfa í þeim eldinn eftir notkun og kveikja í þeini aftur næst þegar á aö grilla. Iðulega, notir þú PRESTFOSS PRESTFOSS viðarkolin eru sérstæð að mörgu leyti: PRESTFOSS eru hrein viðarkol — óblönduð steinkolum. í þeim er einungis skaðlaust bindiefni til að halda lögun þeirra. SMÁSALA: Bensínstöðvar Shell Stórmarkaðir og matvöruverslanir víða uni land

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.