Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Blaðsíða 25
DV. MIÐVIKUDAGUR14. DESEMBER1983.
,25
íþrótt
íþróttir
íþrótt
Iþróttir
j íslendingar sáu
j við eltingaleik
Alsír í Rostock
— og unnu öruggan sigur, 29-22, í alþ jóðlega
handknattleiksmótinu sem hófst þar í gær
— Við höfum aldrei leikið gegn eins
einkennilegri vörn og Alsírbúar beittu
gegn okkur. Þeir léku vörn sína svo
framarlega á vellinum að úr varð hálf-
gerður eltingaleikur — maður á
mann, sagði Friðrik Guðmundsson,
formaður HSÍ, eftir að íslendingar
höfðu unnið Alsírbúa, 29—22 i gær, í
alþjóðlegu handknattleiksmóti sem fer
fram í Rostock í A-Þýskalandi.
Friðrik sagði að Alsírbúar hefðu
hleypt leiknum upp í „delluleik” með
varnarleikaöferð sinni. — Þeir eltu
Viðartekur
viðaf Gunnari
HjáStjörnunni
Viðar Simonarson hefur tekið við
þjálfun 1. deildarliðs Stjörnunnar i
handknattleik. Eins og DV sagöi frá
fyrir stuttu var Viðar ráðinn aðstoðar-
maður Gunnars Einarssonar sem hef-
ur þjálfað Stjörnuna undanfarin ár
með góðum árangri. Eftir leik Stjörn-
unnar gegn FH á laugardaginn ákvað
Gunnar að hætta sem þjálfari. Það var
gengið frá ráðningu Viðars i gær.
-SOS
strákana langt út á völl og náðu að
gera hornamennina Bjarna
Guðmundsson og Guðmund
Guðmundsson óvirka með eltingaleik
sínum. Leikmenn Alsír eru mjög liprir
leikmenn og leika hraðan handknatt-
leik — þá eru þeir með skotstíl sem
kom okkur á óvart. öll skot þeirra voru
niðri — knötturinn hafnaöi í gólfinu áð-
ur en hann fór í markið. Þeir Einar
Þorvarðarson og Ellert Vigfússon,
markverðir íslenska liðsins, áttu erfitt
með aö ráða við skot Alsírbúa og áttu
þeir ekki góðan dag, sagði Fríðrik.
Islendingar náðu strax tökum á
leiknum — komust yfir 10—5 og voru
síðan yfir í leikhléi 13—10. Það var bar-
átta í leiknum en sigurinn var þó aldrei
í hættu.
Siguröur Sveinsson átti mjög góðan
leik með íslenska liðinu — skoraði fal-
leg mörk og hefur hann tekið miklum
framförum að undanförnu. Var
óþekkjanlegur frá leikjunum gegn
Tékkum hér heima á dögunum.
Þeir sem skoruðu mörk íslenska liös-
ins voru: Kristján Arason 7, Sigurður
Sveinsson 7/2, Þorgils Ottar 4, Atli
Hilmarsson 6, Páli Olafsson 3,
Guðmundur 1 og Bjami 1.
Ellert Vigfússon og Hilmar Sigur-
gíslason úr Víkingi, léku sinn fyrsta
landsleik. Hilmar fékk tvívegis að
kæla sig í 2 min.
Þeir leikmenn sem hvíldu í gær voru
Þorbjörn Jensson, Jakob Sigurðsson,
Jóhannes Stefánsson og Jens Einars-
son.
Aðstæður íslenska liðsins í A-Þýska-
landi eru allar mjög góðar. Þess má
geta að lokum að Alsír vann fjögurra
marka sigur yfir Norðmönnum í móti í
Frakklandi um sl. helgi en þar töpuðu
þeir með fimm mörkum fyrir Svíum.
-SOS
Sigurhjá N-írlandi
N-írar unnu sigur 2—0 yfir Skotum í
fyrsta leik Bretlandseyjakeppninnar i
Belfast í gærkvöidi. Það var Norman
Whiteside sem skoraði fyrra markið á
17. min. eftir sendingu frá Billy Hamil-
ton og síðan gulltryggði Sammy
Mcllroy sigurinn á 55.mín. — sendi
knöttinn örugglega fram hjá Jim
Leighton, markveröi Skota. Þess má
geta að Graeme Souness átti tvö skot
sem höfnuðu á stönginni á marki N-
tra.
-sos.
Slgurður Sveinsson.
Öruggt hjá
Grimsby
Grimsby vann öruggan sigur 3—0
yfir Oldham í ensku 2. deildar-
keppninni i gærkvöldi.
Þrir leikir voru leiknir í annarri
umferö ensku bikarkeppninnar:
Windsor—Boumemouth.............0—0
Sigurvegarinn í þessari viðureign
mætir Manchester United.
York—Rochdale..................0—2
Rochdale mætir Northampton heima.
Blackpool—Bangor...............2—1
Paul Stewart skoraði sigurmark
Blackpool, sem mætir Manchester City
heima í þriðju umferð.
-SOS.
jv lan. City
kaupir
Man. City keypti í gær varnarmann-
inn Mick McCarty frá Barnsley fyrir
200 þúsund sterlingspund. Hann á að
taka þar stöðu Tommy Caton, sem
seldur var til Arsenal.
-hsim.
Chinaglia
rak þjálfarann
Lazio gengur
illa á Ítalíu
ítalski landsliðsmaðurinn hér á ár-
um áður, Giorgio Chinagiia, sem lengi
gerði garðinn frægan hjá New York
Cosmos en er nú eigandi og stjórnar-
formaður Rómarliðsins Lazio, rak í
gær stjóra og þjálfara liðsins, Gian-
carlo Morrone. Lazio, sem hefur
danska landsiiðsmanninn Michaei
Laudrup að láni frá Juventus, hefur
gengið illa í 1. deildinni ítölsku. Aðeins
hlotið 8 stig í 12 fyrstu umferðunum og
er í 16. sæti. Giorgio var nóg boðið þeg-
ar Lazio tapaði 3—0 í Napoli á sunnu-
dag. Hann hefur ráðið nýja þjálfara,
Paolo Carosi.
hsím
Holmes
hættur
Breska útvarpið, BBC skýrði frá því
í gær að Larry Holmes, USA, hefði
afsalað sér heimsmeistaratitlinum í
þungavigt í hnefaleikum. Ætlar ekki að
verja titil sinn framar.
-hsim.
IS.
Þetta er saga Glenn Hoddle, skœrustu stjörnu enskrar knattspyrnu I dag.
Hoddle segir frá œvi sinni, frá því hann sparkaði fyrst i bolta níu mánaða
gamall, þegar hann hreifst af Bobby Charlton í heimsmeistarakeppninni 1966
og allt til þess er hann leikur sjálfur í lokakeppni HM 1982. Hoddle kemur viða
við, segir frá fjölda leikmanna og framkvæmdastjóra, hælir og gagnrýnir, frá
fjölda deildaleikja, bikar-, Evrópu- og landsleikja þar á meðal á Laugardals-
velli 1982, og ræðir ástæður þess hve illa honum hefur gengið að vinna sór
fast sæti i enska landsliðinu. Hoddle segir frá komu Argentinumannanna i
Tottenham, og hvernig Falklandseyjastriðið kom við sögu hjá fálaginu,
greinir frá leynimakki við vestur-þýska útsendara á hóteli i Austurríki og lýsir
jafnt björtu hliðunum sem skuggahliðunum á atvinnumennskunni. Glenn
Hoddle er i dag einn eftirsóttasti knattspyrnumaður i Evrópu, hór er tækifær-
ið til að kynnast honum frá nýju sjónarhorni.
íslensk
knattspyrna
kemur nú út í
þriðja skipti og
er enn itarlegri
en áður. Sem
fyrr er gangur
keppnis-
timabils-
ins rakinn,
fré 1. janúar
til október-
loka.
Frábær
frammistaða íslensku
liðanna i Evrópumótunum,
hörkuspennandi íslandsmót sem ekki var
til lykta leitt þó síðasta leik væri lokið, frásagnir af
öllum landsleikjum karla, kvenna, unglinga og drengja.
Myndaopna fré afrekshelgi Atla Eðvaldssonar og úr bikarúrslitaleiknum,
myndir úr leikjum og af fjölda leikmanna úr öllum deildum. Litmyndir af
öllum íslandsmeisturum ársins 1983.
Til viðbótar, svart/hvitar myndir af öllum liðum 1. deildar, upplýsingar um
markaskorara og alla leikmenn, greint frá ferli allra fólaga sem tekið hafa
þátt í íslandsmótinu í knattspyrnu i öllum deildum fyrr og siðar, greint frá
öllum sem skoruðu mark i keppni 1., 2. og 3. deildar og 1. deildar kvenna og
öðrum sem athygli vöktu. Jafnframt tæpar eitt hundrað tilvitnanir í orð leik-
manna op þjálfara. íslensk knattspyrna er bókin sem geymir minningarnar —
hún verður ómissandi í safninu — hún er besta heimild um islenska knatt-
spyrnu sem völ er á.