Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Blaðsíða 27
DV. MIÐVIKUDAGUR14. DESEMBER1983. 27 Nýjar bækur Nýjar bækur Fjórar bækur um Tomma og Jenna Myndabókaútgáfan hefur gefiö út fjórar litlar bækur meö vinsælustu persónunum í íslenska sjónvarpinu — þeim Tomma og Jenna. Þetta eru myndabækur sem Her- steinn Pálsson þýddi, og bera þær nöfnin Músamarkaðurinn, Tommi — hetjan mikla, Afmælisgjöfin og Tommi „músaskelfir”. í Sitji guðs englar saga eftir Guðrúnu Helga- dóttur Iöunn hefur gefið út nýja sögu eftir Guörúnu Helgadóttur. Nefnist hún Sitji guös englar. Myndir geröi Sigrún Eld- járn. Saga þessi geröist á stríðsárun- um, segir frá lítilli stúlku á stóru heim- ili í kaupstaö. Heiöa er sjómannsdóttir og systkini hennar mörg. Pabbi er lengstum á sjónum, en heima hjá mömmu og börnunum búa afi og amma og setja sinn svip á heimilis- braginn. Það gengur á mörgu á stóru heimili, ýmis skemmtileg atvik gerast en sorgin gleymir ekki fólkinu í þessum kaupstaö enda umheimurinn allt annaö en vinsamlegur á þeirri tíö. Bækur Guörúnar Helgadóttur hafa notiö óvenjulegra vinsælda bæði og fulloröinna. Þar er aö telja þrjár bækur um Jón Odd og Jón Bjarna, Pál Vilhjálmsson, I afahúsi og leikritiö Ovita. Þá hefur bók Guðrúnar meö myndum Brians Pilkingtons, Ástar- saga úr fjöllunum, farið víöa og komið út á nokkrum erlendum málum. Sitji guðs englar er 108 blaðsíður. Oddi prentaöi. Tyrkjaránið eftir Jón Helgason Iöunn hefur gefiö út Tyrkjaránið eftir Jón Helgason í nýrri útgáfu, en bókin kom fyrst út fyrir tuttugu árum og hefur veriö ófáanleg um langt skeið. Bókin fjallar um ein hrikalegustu tíöindi sem oröiö hafa í sögu íslensku þjóöarinnar. Þaö var sá atburður er ræningjar frá Alsír stigu á land í Grindavík, Vestmannaeyjum og víða á Austfjörðum sumariö 1627, námu á brott allt aö fjögur hundruö manna, myrtu fjörutíu og rændu miklum fjár- munum. Nokkrir hinna herteknu komust aö vísu heim aftur en flestir létu lífið í erlendri ánauö. Jón Helgason ritstjóri varö þjóð- kunnur rithöfundur er hann hóf aö gefa út heimildaþætti sina úr íslensku mannlifi fyrri tíöa. Liggja eftir hann tvö stór söfn slíks efnis, auk einstakra sagna. Þá samdi hann fjögur bindi smásagna og tók saman nokkur bindi í bókaflokknum „Aldirnar”. — Jón Helgason lést áriö 1981. Tyrkjaránið er stór bók, 235 blað- síöur. Hún er prýdd teikningum eftir Halldór Pétursson. Auglýsingastofa Kristínar geröi kápu. Bókin er ljós- prentuð í Odda. Ellefu líff Ohætt er aö fullyrða að fáar íslenskar konur eiga eins stórbrotinn og ævintýraríkan æviferil og Bryn- hildur Georgía Bjömsson og er hún þó enn á besta aldri. Steingrímur Sigurðsson hefur skráö sögu Brynhildar og ber hún heitið Ellefu lif og er gefin út hjá Emi og örlygi. Brynhildur varö fyrir þeirri óhugnanlegu lifsreynslu að lifa og sjá stríðiö eins og þaö var verst, en hún átti þá heima í Þýskalandi. Hún liföi af tvær hatrammar loftárásir sem Bandamenn gerðu á borgir í Þýska- landi. Terror - Angriff vora þessar árásir kallaðar enda til þess geröar að skapa ógn og lama siðferöisþrek. En Brynhildur hefur frá fleira að segja en ævintýralegu lífi og ógnum sem yfir hana hafa duniö. Afi hennar og amma voru forsetahjónin, Sveinn og Georgía Björnsson, og kynntist hún þeim vel og bjó hjá þeim á Bessastöðum um tíma og segir frá þeim og lífinu á forsetasetrinu í bók- inni. Bókin Ellefu lif er sett og prentuð í Prentstofu G. Benediktssonar en bundin hjá Arnarfelli. Sigurþór Jakobsson hannaöi kápu. u Ræktun lýðs og lands VORKOMA eftir Anitru Ut er komin hjá Isafoldarprent- smiöju hf. skáldsagan Vorkoma eftir norsku skáldkonuna Anitru, en þetta er fjórtánda bókin í Anitra bóka- flokknum. Bókin er 198 bls. aö stærð og er að öllu leyti unnin hjá Isafoldar- prentsmiðju hf. Utsöluverö er kr. 494. Bráóum koma blessuó jólin Bráðum koma blessuð jólin Ut er komin 4. útgáfa af „Bráðum koma blessuð jólin”. 1 bókinni era 26 vinsæl jólalög og eru fyrstu lögin sniöin fyrir byrjendurípíanóleik. Jónína Gísladóttir hefur annast út- gáfu bókarinnar og útsett flest lögin. Einnig er hér lag Jórunnar Viöar „Þaö á aö gefa börnum brauð” í skemmtilegri útsetningu og hún hefur einnig útsett hiö fallega jólalag „Með gleöiraust og helgum hljóm”. ' 1 bókinni má finna „Gilsbakka- þulu” eftir sr. Kolbein Þorsteinsson óstytta, erindin eru 105. Ríkharöur öm Pálsson hefur annast nótnaskrift og einnig útsett nokkur lög í bókinni. Erna Ragnars- dóttir hefur hannað bókina og mynd- skreytt. Bókin fæst m.a. í Istóni, Freyjugötu 1. Ungmennafélag íslands sendir frá sér mikið ritverk Sú bók sem trúlega á eftir aö selj- ast nokkuö vel nú fyrir jólin, er bókin „Ræktun lýös og lands” sem Ung- mennafélag Islands var aö senda frá sér. Er hún gefin út í tilefni 75 ára afmælis UMFI sem var í fyrra. Bókin, sem Gunnar Kristjánsson kennari tók saman, fjallar um sögu ungmennafélagshreyfingarinnar frá upphafi. Henni er skipt í 12 kafla og bókin er prýdd yfir 300 svart-hvitum myndum og um 50 litmyndum. Bókin veröur ekki til sölu í bókabúö- um, en aftur á móti sjá ungmenna- félögin og hérðassamböndin svo og skrifstofa UMFI í Reykjavík um sölu hennar. Margir hafa eflaust gaman af aö eiga bókina, enda þar sagt frá mörgum og myndir eru af fjölda íþróttamanna og öörum víðsvegar af landinu. Panasonic gœði Varanleg gœði bŒBM) LOFTHREINSITÆKI Er þurrkur í hálsi og nefi? Er rafmagn í teppum? Er loftið þurrt og þungt? BONECO rakatæki með rafmagnsblæstri, köldum eða heitum, er lausnin. Eigum einnig ódýra raka-bakka til að hengja á ofna. BONECO RAKATÆKI BONECO fæst víða í verslunum. Hljóðlaus. Hreinsa loftið. Einföld i notkun. Henta bœði fyrir heimilið og vinnustaðinn. Fyrir allt að 100 fermetra. H eild sölubir gðir. Gunnar Ásgeirsson hf. Suóurlandsbraut 16 Simi 91 35200 10% af sláttur í heilum kössum 25% verðlækkun á gosdrykkjum í lítraumbúðum 30% verðlækkun a Sanitasgosdrykkjum Gos l DrykkirJ ÁRMÚLMa EÐISTORG111

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.