Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Blaðsíða 22
22 DV. MIÐVIKUDAGUR14. DESEMBER1983. Nýtt fasteignamat: Hækkun einstakra eigna að jafnaði 53,5 af hundraði Nýtt fasteignarnat tók gildi 1. desem- ber. Samkvæmt nýrri fasteignaskrá hækkar fasteignamat einstakra eigna til jafnaöar um 53,5 af hundraöi. A höfuöborgarsvæöinu hækkar fast- eignamat einstakra eigna aö meöaltali um 57 af hundraöi en í öörum lands- hlutum hækkar matið um 47 af hundr- aði. Þessar tölur gefa þó einungis til kynna meöalhækkun. Til samanburðar má nefna aö vísi- tala byggingarkostnaöar hækkaöi um 66.3 af hundraði frá 1. október 1982 til sama tíma í ár og lánskjaravísitala um 88.4 af hundraöi. Samanlagt matsverö allra eigna í landinu er 141 inilljaröur króna sem er 57,9 af hundraði hærra en í fyrra. Sam- kvæmt því koma tæplega tvær og hálf milljón króna í hlut hverrar fjögurra manna fjölskyldu í landinu. Þá má nefna aö samkvæmt fast- eignaskrá nemur ræktaö land 128 þús- undhekturum. Heildarmat einstakra tegunda af fasteignum er mjög breytilegt. Ibúö- arhús í þéttbýli eru metin á rúmlega 88 milljaröa sem er rúmlega 62 af hundr- aöi af heildarmati á landinu. Atvinnu- húsnæöi og opinberar byggingar eru rúmlega 44 milljarðar króna aö mati, sem svarar til tæplega 32 af hundraöi af heildarmati. Mannvirki, ræktun og land, sem notaö er til landbúnaöar, svo og íbúðarhús í sveitum, eru metin á 5,5 milljarða eöa einungis 3,9 af hundraöi af heildarmati. Verömæti eigna er mjög misskipt eftir landshlutum. Á Suövesturlandi eru til dæmis um 71 af hundraði af heildarverði allra fasteigna og hefur þetta hlutfall fariö hækkandi undan- farin ár. í landinu eru 81.700 íbúöir og bættust 1796 íbúöir viö fasteignamat á þessu ári. SþS. / versluninni fífu ad Klapparstíg 25-27 hefur verid opnaður leikfangamarkadur fram aá jálum. Er þar boðió upp á mikið úrval af leikföngum fyrir böm á aldrinum 0-6 ára. MS. NES-SÓL—NÝ HEILSURÆKT Heilsuræktin Nes-sól opnaöi nýlega í nýju húsnæöi á Austurströnd 1, Seltjarnamesi. Þar veröur boöið upp á leikfiini, þjálfunartæki, gufu- böö, nudd og ljósabekki. Heilsuraktin Nes-sól hefur opið á eftirfarandi tímum: Á mánudögum frá klukkan níu til 22, eingöngu fyrir konur, á þriðjudögum frá klukkan níu til 20, eingöngu fyrir konur, miövikudögum frá klukkan níu til 16, fyrir konur, og frá 16 til 20 fyrir karla, á fimmtudögum frá níu til 22, eingöngu fyrir konur, á föstudögum frá klukkan tíu til 16 fyrir konur og frá 16 til 20 fyrir karla og á laugar- jr ii\m\n áöllum blaðsölustöðum á morgun FNI M.A.: **»***&££**■ ■ga aöeinshorrnung ^ dLorenz. fcSSSSS—1 • sSsSS5— \ txv ®W:"' sssgss”*'" ÁSKRIFTARSÍMINN ER 27022. ^ -fr Heilsuræktin Nes-sól er ætluð fólki ó öllum aldri og eru sérstakir tímar ætlaðir konum og körlum. dögum frá klukkan níu til 14 fyrir Eigandi hinnar nýju heilsuræktar karla. er Gréta Tómasdóttir. TVÆR SÝNINGAR í LISTMUNAHÚSINU Á laugardag voru opnaðar tvær sýn- ingar í Listmunahúsinu, Lækjargötu 2. Þar mun Haukur Dór leirlistamaöur sýna leirlist, en hann sýnir verk sem hann hefur unnið í Danmörku, þar sem hann er nú búsettur. Þá sýnir Hólmfríöur Árnadóttir pappírsverk á Ioftinu, en Hólmfríður er myndlista- kennari við Kennaraháskólann. Hún hefur tekið þátt í mörgum samsýning- um, síðast FlM sýningunni í haust þar sem pappírsverk voru sýnd. Hólmfriður Árnadóttir við eitt verka sinna. Lionsklúbburinn Múli á Egils- stöðum afhenti nýlega sjúkrahúsi staöarins sérstakan lyftibaðstól. Stóll þessi kostar um eitt hundrað þúsund krónur og hann er aðeins eitt af mörgum tækjum sem Lions- menn hafa gefið sjúkrahúsinu. Vlð stólinn stendur Jónas Magnússon, formaöur verkefnanefndar Múla. DV-mynd Einar Rafn Haraldsson. Nýlega var opnuð í Vestmaunaeyjum byggingavöruverslunin Carol. Að sögn eig- andans, Ölafs Granz, verður bann með innréttingar fró Haga ó Akureyri, mikið teppaúrvai og innréttaður hefur verið 250 fermetra salur ó efri hæð, þar sem upp- settar innréttingar og ýmislegt til húsbygginga verður sýnt. Þá mun Ólafur einnig verða ráðgefandi um val og uppsctningu á innréttingum. FÖV/DV-mynd Guðmundur Sigfússon.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.