Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Blaðsíða 9
DV. MIÐVIKUDAGUR14. DESEMBER1983. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd WALESA STEFNT TIL SAKSÓKNARA Lech Walesa hefur veriö boöaður til yfirheyrslu hjá ríkissaksóknara í Gdansk í dag. Ekki var þess getiö í stefnunni af hvaða ástæöum en stefnan beiö þeirra hjóna Lech og Danutu þegar þau komu heim til Gdansk í gær. Umsjón: Guðmundur Pétursson Herdís Þorgeirsdóttir Skriftafaöir Walesa, séra Henryk Jankowski, sagöi blaðamönnum í gær að þau hjón heföu verið tafin af lögreglunni í tvær klukkustundir á heimleiöinni. Bifreið þeirra var marg- sinnis stöövuö viö vegatálma og allir í bifreiðinni drifnir á lögreglustöð í einu tilvikinu. Gaumgæfileg leit var gerö í bifreiöinni aö segulbandsupptökum þegar þau óku um bæinn Lodz. Prestur einn í Varsjá, sem haldiö hefur uppi opinskárri gagnrýni á kommúnisma, var haföur í haldi í tvo sólarhringa eftir húsleit heima hjá honum. Honum var sleppt í gær. Sagt var aö fundist heföu í íbúð hans skjöl og fleira sem prestar heföu venjulegast ekki undir höndum. Ekki var þaö tilgreint nánar. Prestur þessi er einn af nokkrum klerkum sem sæta rannsókn vegna stuönings við hina óháöu verkalýðs- hreyfingu. John Glenn getur ekki gert sér vonir um mörg atkvæöi kynvilltra í Banda- ríkjunum eftir að hafa sagt þá ekki hæfa til margra starfa eins og kennslu. Jólamarkadur Kerti, sælgæti, búsáhöld, leikföng og gjafavörur Vörumarkaðurinn hf. EIÐISTORG111 ARMULA 1a GLENN EKKI UPP Á PALL- BORÐIÐ HJÁ KYNVILLTUM Átta talsmenn fyrir réttindum kynvilltra gengu snúöugt út af fundi meö John Glenn, einu framboðsefna demókrata, eftir aö hann í gær neitaði aö veita stuöning tilraunum til aö koma á nýjum Iögum um aukin rétt- indi kynvilltra. Þeir höfðu óskaö fundarins eftir aö Glenn hafði á blaðamannafundi látiö svo ummælt aö hann áliti kynvillta ekki hæfa til að gegna sumum störfum. Þar var tilgreind kennsla, herþjónusta og njósnir. Glenn er sá eini af framboðsefnun- um sem ekki styöur viöleitni er hafin er til þess aö breyta mannréttinda- lögunum á þann veg aö þau banni mis- rétti byggt á tilhneigingum fólks í kyn- lífi. FÁ AÐ FARA FRÁ KUWAIT Þaö er búist viö því að yfirvöld í Kuwait aflétti ferðabanninu sem sett var á ýmsa erlenda gesti frá Asíu og Austurlöndum nær eftir hryðjuverkin þarífyrradag. Palestínuaröbum, Irökum, Irönum, Jórdönum, Líbönum og Sýrlendingum aöallega var meinað aö yfirgefa land fyrst eftir sprengitilræöin í fyrradag sem kostuöu 7 menn lífiö og skildu 62 eftirsæröa. Yfirvöld eru litlu nær um hverjir tilræöismennirnir hafi verið en fyrir liggur yfirlýsing frá samtökum sem kalla sig „Heilagt stríö” um aö tilræðið hafi verið á þeirra vegum. w^RFRÉTT t3P^C\RRf//Z7Æ7 TÖLVA FYRIR HEIMILI OG FYRIRTÆKI NÝJA EINKATÖLVAN SEM ÞÚ ÞRÓAST MEÐ ÁTÖLVUÖLD SV 318 EINKATÖLVA, 32K ROM, 32K RAM, KR. 10.800, 3V 328 EINKATOLVA, 48K ROM, 80K RAM, KR. 16.800,- ÖRTÖLVArZ80AÁ 3,6 MHZ. LESMINNI: 32 K (ROM), / stækkanleg í 144K. 1. SUPER EXTENDEO MICROSOFT MSX/BASIC/ 16,8 TÖLVUSTAFA NÁKVÆMNI. VIÐBÓTARSKIPANIR, T.D. merge, width, tron, troff, beep, sound, swap, wait, erase, def usr o.fl. REIKNIAÐGERÐIR, T.D. mod, xor, or, eqv, imp, hex$ o.fl. 11 TÓNSKIPANIR (3 tónrásir 8 oct á rás). 14 GRAFÍSKAR SKIPANIR; t.d. draw, circle, o.fl. 16 LITIR (256 x 192punktar). 2. RITVINNSLUFORRIT. 3. SAMSKIPTAFORRIT við aðrar tölvur og tölvubanka. 4. CP/M STÝRIKERFIII! sem veitir aðgang að CPM forritum. Miklir möguleikar, t.d. í viðskiptalífinu. VINNSLUMINNI: 80K (64K RAM 16K VIDEO). JADARTÆKI: Diskettu-drif, kassettu-drif, prentari, skjáir, coleco- vicion leiktengi. TENGI: Centronics, RS 323, leikstýringar, sími, RF, video, grafik-bretti o.fl. FORRIT: Fyrir CP/M: Spectra spread sheeth TH, multiplan, multitool og bókhaldsforrit, 17 spectravideo-leikir og 13 heimilisforrit. MSX: Framtiðarstaðall fyrir Mikrotölvur samþykktur af fjölda framleiðenda. TÖLVAN SEM ÞÚ KEMST EKKI HJÁ AÐ SKOÐA; LAUGAVEGI 89, SÍM113008.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.