Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Blaðsíða 10
10 DV. MIÐVIKUDAGUR14. DESEMBER1983. Útiönd Útlönd Útlönd Útlönd Umsjón: Herdís Þorgeirsdóttir mjög möguleika Irana á sigri og slíkur sigur gæti orsakaö algert öng- þveiti í olíuútflutningsmálum svæðisins. Þá lítur Hafez Assad Sýrlandsfor- seti svo á aö stjórn hans sé síðasti málsvari araba fyrir palestínska málstaöinn á þessu svæöi. Þótt búast megi viö aö Hussein Jórdaníukonungur hafi í kjölfar þeirrar þróunar, sem átt hefur sér stað innan PLO nýlega, séð mögu- leika á aö endurheimta hlutverk sitt sem talsmaður Palestínu-araba. En áriö 1974 tók PLO sér einkarétt á því hlutverki. Hitt er annaö mál að Hussein hættir sér vart einn út á þann hála ís að standa í samninga- viðræöum viö Israela. Þótt eitthvaö hafi dregiö úr þeirri ögrun sem stafaði frá Sýrlendingum sérstaklega vegna óvissu um heilsu- far forsetans sem og óvissu um hversu miklu hann raunverulega ræöur við stjómvölinn í Damaskus búast menn ekki viö að Assad eöa stjórnvöld í Damaskus hætti á stór- ræöi á næstunni þrátt fyrir sovésk vopn. Ýmsar vangaveltur eru í gangi um fyrirætlanir Sýrlendinga á þessum slóöum. Yitzhak Shamir, forsætisráðherra Israels, sagöi í blaðaviðtali áður en hann heimsótti Bandaríkin fyrir hálfum mánuði aö markmið Assads á þessum slóöum væru augljós. Kvaö Shamir engan efa á því að Assad sæktist eftir því aö ná hernaðarsigri yfir Israel. Sagöi Shamir aö fyrir Assad væru Egyptar lagðir á flótta, Jórdani væri ekki hægt að taka alvarlega og Iranir væru flæktir í þetta fáránlega stríö viö Iraka en þá síöamefndu hataöi Assad meira en hann hataöi Israeli. Og sagöi Shamir aö yröi Assad ekki stöðvaöur nú í sókn sinni eftir yfir- ráöum í Líbanon myndi hann halda áfram krossf erö sinni y fir Israel. Ekki munu allir vilja taka undir orö ísraelska forsætisráðherrans um fyrirætlanir Sýrlendinga. Bent er á að líklega hafi Hafez Assad mikinn áhuga á að koma upp leppstjórn í Beirút, sem hægt sé að f jarstýra frá Damaskus, en í þeirri aöstööu verði einnig hægt aö ná samkomulagi viö Israela. Economist segir aö slíku fyrirkomulagi gætu bandarísk stjómvöld eiginlega ekki sett sig upp á móti. Vitað væri aö Bandaríkja- menn heföu sjálfir reynt aö fá maroníta til aö gefa múslimum og drúsum eftir eitthvaö af völdum sínum og þaö væri jafnframt mjög líklegt aö fengju drúsar og múslimar aukin völd myndi þaö ekki skaöa samband þeirra við Sýrlendinga. Hitt er annaö mál aö sá óvissuþátt- ur er enn til staðar hvort Assad eöa sýrlensk stjórnvöld myndu láta þar viö sitja en ekki nota aukin yfirráö í Líbanon sem stökkpall yfir til Isra- els, þótt vitað sé hverjum væri að mæta þá. A hinn bóginn hafa vopna- sendingar streymt til Sýrlands undanfarnar vikur frá Sovétríkjun- um og bandamönnum þeirra. I október bárast Sýrlendingum birgöir af sovéskum SS—21 eldflaugum sem draga u.þ.b. 120 kílómetra og eru mjög nákvæmar. Hins vegar hefur veriö bent á að þrátt fyrir þaö aö Assad hafi þegið alla þessa aöstoð frá sovéskum stjórnvöldum vilji hann ekki vera um of háður þeim og slíkt ætti Bandaríkjastjóm aö hafa í huga í samskiptum sínum viö Sýrlendinga. Eftir þvi sem blaðið Jerasalem Post skýrir frá eftir heimsókn Yitz- hak Shamirs til Washington nýlega sé ólíklegt að Shamir fái allt það sem hann vilji frá Bandaríkjastjórn. Blaöiö Economist bendir á að þrátt fyrir loforö Bandaríkjamanna um eflingu stjómmálalegra, efnahags-. legra og hernaöarlegra samskipta viö Israel sé Shamir ekki þaö ein- faldur aö sjá þaö ekki aö öll aðstoð Bandaríkjanna við Israel nú og í framtíðinni yrði að vera í samræmi við alhliöa hagsmuni Bandarikjanna og bandamanna á þessu róstusama svæöi. Framvinda mála á þessu svæöi á eftir að hafa fylgiverkanir í för meö sér fyrir alla heimsbyggöina. Augljósir hagsmunir en óljós markmið Áframhaldandi aðgangur að oliunni er HfsspursmáI fyrir vestræn riki. Ríkin umhverfis Persaflóaeru „púöurtunna” okkar tíma. Þaö er á þessu svæöi sem gangur heimsmála á komandi árum verður aö miklu leyti ráöinn. Hvernig ástandi er hátt- aö á þessu svæöi er lífsspursmál fyrir vestræn ríki, sem í skugga vax- andi sovéskra áhrifa á umliðnum árum og hversu háö þau era olíuút- flutningi frá Persaflóa, geta ekki látiö þróunina þama afskiptalausa. Eins og Jimmy Carter komst aö oröi * í forsetatíð sinni, aö þá yröi litið á til- raun „utanaökomandi” aöila til aö ná yfirráöum á svæöinu umhverfis Persaflóa sem aöför aö grundvallar- hagsmunum Bandaríkjanna. Slíku yröi bægt frá meö öllum tiltækum ráöum, þ.á.m. hemaðaraðgerðum. Hvernig „utanaökomandi” aöili var skilgreindur eöa hver vora mörk umrædds svæöis hefur hins vegar ekki veriö eins augljóst og hin töluðu orö. Þegar Reagan Bandaríkjaforseti ákvaö aö senda friöargæslusveitir til Líbanon á síöastliönu ári var rökstuöningur aö baki þeirrar ákvörðunar ekki véfengdur að því marki aö hún yröi aö engu gerö. Hins vegar kom í ljós eftir nokkrar vikur að hlutverk umræddra friðargæslu- sveita átti eftir að vera nokkuð háð atburöarás og ekki var um þaö aö ræða að þama væri eitthvert verk- efni, sem biöi úrlausnar, og því næst gætu friðargæsluliðin snúiö heim. Veruleikinn átti eftir aö reynast flóknari eöa iivaö? Italir tóku að sér aö vernda eftirlifandi Palestínu-ar- aba í flóttamannabúöum í suður- hluta Beirút á meðan hinar friöar- gæslusveitirnar soguöust smátt og smátt inn í stjómmál á svæðinu. Frakkar héldu stíft á lofti hagsmun- um síns ríkis í Líbanon, Bretar Hafez Assad Sýrlandsforseti. studdu viö bakið á Bandaríkjamönn- um sem eru fjölmennastir þama og veittu maronítum og öörum herjum Líbana aöstoö til aö verjast gegn drúsum í bardögum í hæöunum fyrir ofanBeirút. Samtímis vora Bandaríkjamenn •aö reyna að fá maroníta til aö gefa eftir eitthvað af þeim pólitísku völdum sem þeir hafa haft í nær fjóra áratugi. Um þaö ætlunarverk segir breska blaðiö Economist aö stundum sé nauðsynlegt aö verja mann með annarri hendi og giröa niður um hann meö hinni þótt slíkt sé erfitt útskýringar fyrir viökomandi og umheiminum. Blaöiö segir að bandarísk stjómvöld hafi reynt aö réttlæta afskipti sín af málum á þessum slóöum meö frösum saman- ber: „aö koma á friði” eöa „endur- Hussein Jórdankikonungur. reisn líbanska ríkisins”. „Þessir frasar hylma gróflega yfir flókinn veruleika,” segir Economist og telur aö nú þurfi bandarísk stjórnvöld að leggja höfuöið í bleyti og kryfja til mergjar hverjir séu raunverulegir hagsmunir þeirra í Miö-austurlönd- um. Telur blaöiö aö skipta megi hagsmunum Bandaríkjanna og bandamanna þeirra á þessum slóöum í tvennt. Annars vegar aö viöhalda oliuútflutningi frá Persa- flóa og hins vegar aö hafa stjóm á áratuga ágreiningi milli gyöinga og araba. Varöandi oliuútflutning frá Persa- flóa eiga bandamenn Bandaríkj- anna, þ.e. ríki Vestur-Evrópu, enn meiri hagsmuna aö gæta aö þeim út- flutningsleiðum sé ekki lokaö. 57 prósent af oh'uinnflutningi ríkja Vestur-Evrópu kemur frá ríkjum við Persaflóa. Og öraggt er aö Evrópu- löndin munu halda áfram aö vera háö þeim útflutningi á komandi árum og áratugum. Það er Bandaríkjastjórn brýnt hagsmunamál aö tryggja öryggi Israela í deilum þeirra og skorti á samkomulagi við Palestínu-araba. Varðandi lausn þessa máls eöa þáttar Bandaríkjamanna þar þá er hann mjög samofinn þætti Sýrlend- inga í þeim átökum sem nú eiga sér staö. I stríðinu á milli Irana og Iraka hafa Sýrlendingar stutt dyggilega við bakið á Irönum. Meö þeim stuöningi hafa Sýrlendingar aukiö Yitzhak Shamlr, forsœtisráðherra ísraels.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.