Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Blaðsíða 39
DV. MIÐVIKUDAGUR14. DESEMBER1983. 39 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Voffinn getur stundum veriö vandamál. Jón og séra Jón? Nýlega var gefin út ný og samræmd reglugerð varðandi hundahald á Suður- nesjum. Var í henni að finna ýmis hert ákvæði. Áður en reglugerðin sú arna öðlaðist gildi var hún tekin fyrir í öllum sveitarfélögum, þar á meðal Höfnum. Þar var hún samþykkt með meirihluta at- kvæða. En svo skeði slysið. Samkvæmt Víkurfréttum bar það við nýverið að hundur í eigu oddvitans í Höfnum var tekinn þar sem hann var í spássértúr. Var það gert samkvæmt ákvæðum nýju reglugerðarinnar. Þá varð uppi fótur og fit og var málið tekið aftur upp í viðkomandi bæjarstjórn. Var þá samþykkt að bann um iausa hunda skyldi framvegis ekki gildaiHöfnum. Þannig fór nú um sjóferð þá. Fjögurra ára Nú eru liðin f jögur ár síðan Mosfellspósturinn hóf göngu sína. Það er í sjálfu sér ekki. svo ýkjamerkilegt nema fyrir þær sakir að liklega hefur ekkert blað fengið eins mikl- ar hrakspár í veganesti og einmitt hann. Það var nefnilega mál Anna Bjamason ritstjóri. manna, þegar Pósturinn hóf göngu sina að ekkert þýddi að gefa út blað svona rétt við bæjardyr Reykjavíkur. Fólk- ið í Mosfellssveltinni myndi miklu frekar kaupa borgar- blöðin heldur en eitthvert staðarblað. En raunin hefur heldur betur orðið önnur því að Mosfellspósturinn hefur staðið sig mcð prýði, undir ritstjórn önnu Bjarnason. Og þvi ber að sjálfsögðu að fagna. Aðdráttarafl Sprellistúlkur þær sem undanfarið hafa dansað fata- litlar i Glæsibæ hafa vakið mikla eftirtekt, ýmissa hluta vegna. Þykir hreint með ólikindum hversu mikið aðdráttarafl þær hafa haft enda vissulega um að ræða nýmeti fyrir Iandann. Herma sagnir að fólk, einkum þó karlkyns, hafi flykkst til að sjá þær og hlotið nokkra sælu þar af. Sumir munu þó betur hafa setið heima því að enginn mun ó- hultur fyrir fjárans Ijós- myndavélinni. Þvi mun það hafa hent, bæði hér sunnan- lands svo og fyrir norðan, að sómakærar eiginkonur kenndu eiginmenn sina sem áttu að vera að „vlnna eftir- vinnu” á myndum frá um- ræddum danssamkomum. Hafa hinir sömu sjálfsagt sætt refsingum fyrir tiltækið þvi að lifið er stundum ekkert annað en saltfiskur. Einn fyrír hestamenn Jón i Garðsauka er þekktur fyrir að vera fljótur til svars. Segir sagan að hann hafi eitt sinn farið i stóðréttir á fjar- lægar slóðir. Þegar hann kom heim var hann að því spurður hvernig honum heföi litist á hrossin. Hann svaraði að bragði: „Mér sýndist þeir nú þannig ríðandi að þeir væru best settir gangandi.” Snúnar reglur Forráðamenn sjónvarps hafa mátt mæðast i mörgu ef marka má þær ýmsu reglur sem gilda innan þelrrar há- eðlu stofnunar. Til að mynda munu gilda ákveðnar reglur um lestur inn á auglýsingar og önnur þularstörf hjá sjón- varpi. Vér fréttum sem dæmi af manni einum sem mikið hefur fengist viö að þýða og þylja texta við fræðslu- og dýramyndir ýmíss konar. Svo varð honum það á nú ný- lega að tala inn á augiýsingu fyrir Nóa-Síríus. Skipti þá engum togum að hann var settur út af sakramentinu við þularstörfin. Það mun nefnilega vera bannað þeim sem slík störf stunda að tala inn á augiýsingar. Um fleiri dæmi vitum vér í þessum efn- um en hér vcrður látið staðar numið. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir. Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Tónabíó—Octopussy BOND SVÍKUR ENGAN Hvenær skyldi James Bond koma til Islands? Ef svo heldur fram sem horfir verður þess ekki langt að bíöa. Kappinn heldur áfram aö endasend- ast heimshorna á milli i viðureign sinni viö hiö illa hér á jöröu. Þaö er því ekki nema rökrétt aö álykta sem svo aö einhvem tíma muni hann bera hingaö þó ekki væri nema til þess aö sýna íslenskum aðdáendum, sem eru margir, örlítinn virðingarvott. Áfangastaöir James Bond í þess- ari mynd eru skrauthallir Indlands annars vegar og grámygla Austur- Evrópu hins vegar. Upphafsatriði myndarinnar gerist þó í ónefndu ríki Rómönsku Ameríku, þar sem einhver Castro- týpan ræöur ríkjum. Atburðir þar syðra koma myndinni annars ekkert viö og viröast hafa þann tilgang ein- an að sýna áhorfendum að Bond er ennþá í fínu formi. Og þaö er kappinn svo sannar- lega. Þrátt fyrir aö aldurinn færist yfir hann eru þreytumerkin lítil sem engin. Það er margt gervið sem spæjarinn þarf að bregða sér í. Hér hefur Bond dulbúist sem trúður og það hlutverk fór honum bara vel. Efni myndarinnar eru í stystu máli á þá leið að háttsettur sovéskur hershöfðingi meö mikilmennsku- brjálæöi á háu stigi hefur tekiö hönd- um saman viö bófaflokk sem er sér- hæföur í smygli á demöntum og öör- um dýrgripum. Generállinn er þann- ig á góöri leið meö aö tæma lista- verkageymslur Kremlar af raun- verulegum verðmætum en jafnframt aö fylla þær af skrani. Þá á hers- höfðinginn sér þá ósk æðsta aö sprengja Vesturlönd í loft upp og tekst það næstum því. Þaö er annars athyglisvert aö aörir sovéskir frammámenn viröast fremur vera inni á því aö semja um kjarnavopnin. Eltingaleikur í ýmsum myndum hefur lengi verið aöall Bond-mynd- anna og svo er einnig í þetta sinn. Og það er furöulegt hvemig aöstandend- um tekst alltaf að endumýja sig. Hér notast menn m.a. við þríhjóla ind- verska leigubíla og indverska fíla. Húmorinn er eitt helsta einkenni Bonds síöan Roger Moore tók við hlutverkinu og hér hafa handritshöf- undar verið í ágætu stuði viö samn- inguna. Ekki má gleyma Bond-stúlkunum. Þær hafa oft veriö margar en ég man ekki eftir þeim jafnmörgum og nú. Og flestar em þær gullf allegar. I stuttu máli er Octopussy hin besta skemmtan. Leikstjórinn hefur góö tök á efninu og honum tekst aö halda uppi góðum hraöa myndina út í gegn, dauðir punktar eru svo til hvergi. önnur tæknivinna er í sam- ræmi viö það, fyrsta flokks. Svo er Roger Moore alltaf Roger Moore. Mér finnst hann meö afbrigöum skemmtilegur. Þess vegna er hik- laust hægt aö mæla meö þessari mynd. Allir svíkja Bond en Bond svíkurengan. Guölaugur Bergmundsson. Heiti: Kolkrabbinn (Octopussy). Bretland 1983. Leikstjóri: John Glen. Handrit: George MacDonald Fraser, Richard Maibaum og Michael G. Wilson, eftir skáld- sögu lan Fleming. Kvikmyndataka: Alan Hume. Tónlist: John Barry. Framleiðandi: Albert R. Broccoli. Aðalleikondur: Roger Moore, Maud Adams, Louis Jordan, Kabir Bedi, Kristina Wayborn. ÍTALSKT - ÍTALSKT Stærðir: 36 — 40. Margirlitir. Verð kr: 2.290. PÓSTSENDUM Sími 29030 /M€€NS ÞINGHOLTSSTRÆTI l Æskunnar í ár eru: • Kári litli og Lappi - Hin sígilda barnabók Stefáns Júlíussonar. • Poppbókin — í fyrsta sæti - Fróðlega skemmtibókin með umtöluðu viðtölunum við Bubba, Ragnhildi, Egil Ólafsson, o.fl. skráð af Jens Kr. Guðmundssyni. • Við klettótta strönd - Mannlífsþættir undan Jökli - Stórbrotin viðtalsbók eftir Eðvarð Ingólfsson. • Olympíuleikaraðfornuog nýju - eftir Dr.lngimar Jónsson. • Sara - Falleg litmyndabók. • Frú Pigalopp og jólapósturinn - Litskrúðug ævintýrabók. • Margs konar dagar - Skopleg barna- og unglingabók. • Við erum Samar - Skemmtileg litmyndabók um Sama. • Til fundar við Jesú frá Nasaret- Fyrsta bókin í bókaflokki um fólk sem haft hefur mikil áhrif á aðra. • Lassi í baráttu - Hressileg unglingabók. Æskan Laugavegi 56 Sími 17336

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.