Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Blaðsíða 21
DV. MIÐVKUDAGUR14. DESEMBER1983.
21
Ólafur Ragnarsson, Vllh jálmur Hjálmarsson lita á nýju bókina.
Eysteinn í eld-
línu stjórnmálanna
Eysteinn — 1 eldlínu stjórnmálanna
heitir bók, sem bókaútgáfan VAKA
hefur sent frá sér. Bókin fjallar um ævi
og störf Eysteins Jónssonar, fyrrver-
andi ráöherra og formanns Fram-
sóknarflokksins.
Það er annar fyrrum ráðherra sem
skrifað hefur bókina, Vilhjálmur
Hjálmarsson, en hann hefur síöustu ár-
in helgað sig ritstörfum og meðal ann-
ars gefið út minningar frá ráöherratíð
sinni. Að ævisögu Eysteins hefur hann
unnið undanfarin tvö ár.
I forlagskynningu Vöku á bókarkápu
segir meöal annars: Fjöldamargt nýtt
kemur fram í þessari forvitnilegu bók
Vilhjálms Hjálmarssonar um ævi og
störf Eysteins Jónssonar, fyrrum ráð-
herra og formanns Framsóknarflokks-
ins. Hér er vitnað í ýmsar heimildir,
sem ekki hafa verið gerðar opinberar
fyrr, svo sem gerðabækur Fram-
sóknarflokksins og minnisblöð
Eysteins frá ýmsum tímum. Þá varpa
svör Eysteins við spurningum
Vilhjálms einnig ljósi á sitt af hverju
sem gerðist í stjórnmálunum á árum
áöur.
Hálf öld er nú liðin frá því Eysteinn
settist fyrst á þing og eru þingmennska
hans og ráðherradómur viðamiklir
kaflar í þessari bók. Hér er þó ekki síð-
ur fjallað um aðra þætti svo sem
uppvaxtarár Eysteins á Djúpavogi,
skólavist í Samvinnuskólanum, störf í
Stjórnarráðinu, áhugamál og minnis-
stæða menn og atburði.
Vilhjálmur Hjálmarsson hefur ein-
stakt lag á að gera frásögnina lifandi
og læsilega og kryddar hana gjarnan
með góöum sögum og minninga-
brotum, segir á bókarkápu.
Eysteinn — I eldlínu stjórnmálanna,
sem er fyrri hluti ævisögu Eysteins
Jónssonar, er nærri fjögur hundruð
blaðsíður að stærð og prýdd miklum
fjölda mynda sem margar hverjar
hafa aldrei birst áður. Bókin er sett,
prentuð og bundin í prentsmiðjunni
Oddahf.
Óiafur Jóhannesson og Dóra Guðbjartsdóttir með Ólafsbók.
OLAFSBOK
I bókinni eru greinar eftir ýmsa
samferöamenn Olafs, og fjalla sumar
þeirra um Olaf sjálfan og störf hans,
en aðrar um efni úr lögfræði og
samtíðarsögu, sem tengist fræða- og
stjórnmálastörfum hans. Eiríkur Páls-
son frá ölduhrygg skrifar um meira en
hálfrar aldar kynni sín af Olafi.
Jóhann Þorvaldsson segir frá því,
þegar kaupfélagsstjórnin á Siglufirði
reyndi að halda völdum eftir að hafa
lotiö i lægra haldi á aðalfundi og hlut
Olafs i lögfræðilegri lausn málsins. Dr.
Ármann Snævarr ritar um lögfræðirit
prófessors Olafs. Þór Vilhjálmsson
skrifar um rikisréttinn, kennslugrein
prófessors Olafs. Dr. Páll Sigurðsson
skrifar um kennarann Olaf Jóhannes-
son. Ágúst Þorvaldsson skrifar um
stjórnmálaferil Olafs. Grímur Gísla-
son lýsir Olafi sem þingmanni Norður-
lands vestra. Stefán Guðmundsson
segir frá kosningaslag. Páll Pétursson
skrifar um Olaf sem samþingsmann
sinn úr Norðurlandskjördæmi vestra.
Viðtal er við Guðmund Benediktsson í
forsætisráðuneytinu. Magnús Torfi
Olafsson segir frá þætti Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna í
myndun og endalokum ríkisstjórnar
Olafs Jóhannessonar 1971—1974. Bogi
Sigurbjörnsson skrifar um byggða-
stefnu ríkisstjórnar Olafs 1971—1974.
Þórarinn Þórarinsson skrifar um land-
helgismálið. Viðtal er við Baldur Möll-
er í dómsmálaráðuneytinu. Dr. Guð-
mundur Alfreðsson skrifar um land-
helgisútfærsluna 1972 og Alþjóðadóm-
stólinn í Haag. Viðtal er við Þórhall
Ásgeirsson í viðskiptaráðuneytinu. Dr.
Jóhannes Nordal skrifar um Olaf og
Seðlabankann. Halldór E. Sigurðsson
skrifar um samstarf við Olaf í tveimur
ríkisstjórnum. Björn Bjarnason
skrifar um störf sín í stjórnarráðinu
með Olafi og síðan á Morgunblaðinu.
Alfreð Þorsteinsson skrifar um Olaf
sem þingmann Reykvíkinga og utan-
ríkisráðherra. Viðtal er við Ingva S.
Ingvarsson í utanríkisráðuneytinu.
Guðmundur Eiríksson skrifar um
Jan Mayen-málið. Eiríkur Tómasson
skrifar um löggjafarstörf Olafs á ráð-
herraárum hans. Leó E. Löve segir frá
kynnum sínum af Olafi, fyrst sem
föður Guðbjartar vinar síns, og síðan
sem vini og samherja.
Olafur segir sjálfur frá bernsku sinni
og skólaárum í 50 blaösíöna viðtali við
Gylfa Gröndal.
Rúmlega 100 ljósmyndir prýða bók-
ina, sem er 519 blaösiður að stærð og
kostar á almennum markaöi kr. 898.
Utgefandi er Isafoldarprentsmiöja hf.
12
BÍLAR
12
VIDEOTÆKI
12
STEREO-
SAMSTÆÐUR
•
330
AÐRIR GÓÐIR
VINNINGAR
Hver er þinn
lukkudagur?
VERÐ KR. 300
VERÐ KR.300
366 >>
V VINNINGAR M
Apríl
1984
HJÚKRUNARVÖRUR
lIm og lImbönd
SNYRTIVÖRUR
SUN MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 ia 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30
Hansaplasf
strips
J.S. HELGASON HF.
OBAGHAISI 4
HÓTELIÐ f HJARTA HÖFUÐBORGARINNAR
Morgunverður og rjúkandi kaffi frá kl. 8 á hverjum morgni. HÓTELBORG
VINNINGSNLMI-RIN Askrif
BIRTAST DAGL.EGA í vr 270
NHimatn st, siw »no
VINNINGUR DAGLEGA
ALLT ÁRIÐ
1984
366
VINIMIIMGAR
HEILDARVERÐMÆTI
VINNINGA ER
5,5
MILLJÓN KRÓNUR.
TILSÖLU
í BÓKABÚÐUM
PENNANS,
EYMUNDSSYNI
OG ÍÞRÓTTAFÉLÖGUM
UM LAND ALLT
VINNINGSNÚMERIN BIRTAST DAGLEGA Á BAKSÍÐU DV
UPPLÝSINGAR í SÍMUM 20068 OG 81325.
Ein í Hafnarfirði
og ein í Kópavogi.
, Tvær góðar" sameinast um
að eiga nytsamar og fallegar vörur
á góðu verði!
önnuraf„tveim góðum"ættuað vera íieiðinni?
Svart og hvítt myndarammar myndir
hvítt postulin
Krukkur til ýmissa nota
■---------- '
Setjarahillur, minnistöflur vegglampar
smákökukrukkur
Nú, það er margt annað sem „Tvær Góðar" bjóða upp á.
Frístund sér um föndrið, t.d. fiit, vattkúiur, fataliti, túpuliti, o.fi.
Já, það er hreint ótrúiegt úrval af föndurvörum í Frístund. Nú,
ef þú þarft að fá þér hjónarúm, matborð eða eitthvert annað
húsgagn þá áttu leið íSetrið. Hefurþú séð allan reyrinn í Setr-
inu? Létt húsgögn úr furu og reyr. Það er okkar takmark. Gerðu
þitt eigið setur með húsgögnum frá Setrinu!
HÚSGÖGN 0G GJAFAVÖRUR,
• A HAMRAB0RG 12
3$>EIFUJ kópavogi,
SÍMI46460
Sendum ípóstkröfu
FRÍSTUND,
e^5
Miðvangi 41,
Hafnarfirði,
s. 54277.