Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1984, Síða 20
20
t*por cjMTtTíT'STj to qT>n»nur/íM \rn
DV. MÁNUDAGUR 27. FEBRUAR1984.
11. umferð Reykjavíkurskákmótsins:
Þróttmiklir þremenningar
HELGITÓK Á
SPRETT í LOKIN
— skákir hans við Jóhann og Lobron
„Þessi skákáhugi er farinn aö
ganga út í öfgar,” sagöi vörpulegur
skákunnandi á Hótel Loftleiöum í
gærdag. Þar var í algleymingi loka-
umferö Reykjavikurskákmótsins, og
bæöi salir og gangar troöfullir af
áhorfendum svo aö illt var aö koma
sér fyrir.
Eins og ver ber var spennan í há-
marki fyrir þessa umferö enda óvíst
hver myndi að lokum hreiöra um sig
í hásæti sigurvegarans.
En vel má það vera aö ýmsir
áhorfendur hafi haldið vonsviknir
heim aö kvöldi því aö hyggindin sátu
í fyrirrúmi víöast hvar en bardaga-
fysnin á þrotum hjá mörgum
keppendum.
Helgi Ölafsson vann Jóhann
Hjartarson í næstsíðustu umferð og
lái honum hver sem vill þótt hann
semdi jafntefli viö undrabarniö
aldurhnigna, Samuel Reshevsky í
þeirri síöustu. Þar með voru þeir
tveir komnir meö 8 v. og Helgi þar að
auki fyrsta áfanga í stórmeistara-
titil.
Þaö hefur vægast sagt sóst heldur
brösulega hjá Helga aö ná þessum
áfanga — ekki svo aö skilja aö
skáklistin hafi brugðist hjá honum
heldur einbeitingin og sjálfsaginn
þegar mest á reyndi. En nú er Helgi
sem sagt búinn aö rjúfa þennan víta-
hring og vonandi er þess ekki langt
aö bíöa að hann vinni fleiri slíka
sigra.
Jóhann Hjartarson er maður
mótsins — hann tefldi á köflum blátt
áfram undursamlega og hafa menn
ekki í langan tíma litið önnur eins til-
þrif á Reykjavíkurmóti og þau sem
hann bauö upp á hvaö eftir annaö.
En Jóhann fékk aö reyna að þaö
tekur á taugamar aö vera í foryst-
unni og sitja undir allra augnaráöi.
Væntanlega munu skákskýrendur
hafa ýmislegt viö taflmennsku hans í
næstsíöustu umferðinni aö athuga en
í lokasennunni sat hann á strák sín-
um og þá jafnteflistilboð Gellers —
staðan var einföld og jöfn og ekki
eftir neinu að slæg jast.
Geller var þó orðinn nokkuö
naumur á tíma og því er ekki aö
leyna aö hinir blóöþyrstari meðal
áhorfenda hugöu gott til glóðarinnar,
enda voru margir þeirra þess
fýsandi aö Jóhann legöi gamla rúss-
neska bangsann og sæti einn aö
sigurlaunum.
En þetta jafntefli færði Jóhanni ná-
lega 100.000 krónur í veröiaun og
annan áfanga í stórmeistaratitil —
hann á nú aðeins þann þriöja og síö-
astaeftir.
Sú varð lokastaða efstu manna aö
Jóhann, Hclgi og Reshevsky fengu 8
v. og deildu því verðlaunum þriggja
efstu sæta.
Margeir barðist eins og ljón með
svörtu mönnunum gegn Hans Ree og
vildi sýnilega fá sess við hliö þre-
menninganna en þaö kom fyrir ekki.
Hollendingurinn er ekki fæddur í
gær, jafntefli varö niðurstaðan en
Margeir hlaut aö sætta sig viö 7,5 v.
Jón L. Árnason tefldi meö hvítu
gegn Karli Þorsteins og haföi sigur.
Jón fékk samtals 7,5 v., aöeins
hálfum vinningi færra en
þremenningarnir og þaö má mikið
vera ef hann harmar ekki ákaft
skákirnar gegn þeim de Firmian og
Christiansen — Jón átti unniö gegn
þeim báöum en lét ekki kné fylgja
k viði og sleppti þeim meö jafntefli.
Jón hefur ekki teflt af þeirri snerpu
og festu sem var hans meginstyrkur
á mótunum erlendis í fyrra og þess
nutu andstæöingarnir núna.
Karl Þorsteins fékk 6,5 v., áfanga í
titil alþjóðameistara, og munaöi
minnstu aö hann næöi einnig áfanga í
stórmeistaratitil.
Einar S. Einarsson sýndi mér út-
reikninga yfir ELO-stig andstæöinga
Karis og ýmissa annarra íslenskra
keppenda og sýna þeir aö hann hefur
að jafnaði átt í höggi viö öflugustu
skákmennina. Hann tefldi við átta
stórmeistara, þrjá alþjóöameistara
og engan titillausan!
Eins og sjá má af meöfylgjandi
töflu voru Rússarnir heldur slakir á
þessu móti. Þaö hefur löngum þótt
vegur aö sovéskum skámönnum hér
vestantjalds og forvígismenn
Reykjavíkurmótsins ieggja á sig
ómælda fyrirhöfn til þess aö fá
einhverja þeirra hingað noröur en
eftir frammistööu Gellers og Bala-
sjofs munu ýmsir spyrja hvort sú hin
mikla fyrirhöfn sé ómaksins viröi. -BH
Jóhann Hjartarson haföi vinnings-
forskot fyrir næstsíöustu umferö og
var á góðri leið með aö stinga af meö
sigurinn. Þaö getur veriö erfitt aö
tefla undir slíkum kringumstæöum,
enda fór svo aö Jóhann mátti þola
sinn fyrsta ósigurí 10. umferðinni, er
hann mætti Helga Olafssyni. „Verra
gat þaö veriö, ” sögöu gárungarnir,
„vinningurinn fór þó ekki úr landi.”
Helgi komst þar meö upp aö hlið
Jóhanns og mikil spenna í lofti.
Þeir tefldu katalónska byrjun,
sama afbrigöi og Jóhann beitti gegn
Alburt í síöustu umferð Búnaðar-
bankamótsins. Þar nægöi Jóhanni
jafnteflið til þess að ná sínum fyrsta
áfanga aö stórmeistaratitli og Alburt
sætti sig viö skiptan hlut eftir aöeins
14 leiki. Helgi haföi aö sjálfsögöu
undirbúið sig vandlega, taldi sig sjá
glompu í bjTjunartaflmennsku
Jóhanns og var greinilega hvergi
banginn.
Hvítt: Helgi Ólafsson.
Svart: Jóhann Hjartarson.
Katalónsk byrjun.
1. Rf3 Rf6 2. c4 e6 3. g3 d5 4. d4
dxc4 5. Bg2 c5 6.0—0 Rc6 7. Da4 cxd4
8. Rxd4 Dxd4 9. Bxc6+ Bd7 10. Hdl
Dxdl 11. DxdlBcö.
Svartur er aðeins með hrók og
biskup fyrir drottninguna en staða
hans er ákaflega traust og
biskupamir gætu fariö aö láta skina í
tennurnar. Svíinn Ulf Andersson
hefur m.a. teflt svona og haldiö
auöveldlega jöfnu.
12. Rd2 c313. bx c3 0-0-014. Db3!
Alburt lék 14. Del og jafnteflisboð
fylgdi í kjölfarið, er hann tefldi við
Jóhann. Leikur Helga er þekktur en
ekki talinn vænlegur.
14, —Bc515. Rf3!?
Þetta er endurbót Helga. Israels-
maðurinn Gutman sem teflir á
Reykjavíkurskákmótinu lék 15. h3
gegn ianda sínum Kraidman fyrir
nokkrum árum til aö hindra
riddarann í aö sækja aö f-peöinu.
15. —Re416. Rd4 Hxd4!
I rauninni þvingað, því að 16. —
Bxd4 17. exd4 Hxd4 18. Be3 leiöir til
yflrburðastöðu á hvítt. Jóhann hefur
nú aöeins tvo létta menn fyrir drottn-
ingu og tvö peö en hann nær aö skapa
sér öflug mótfæri.
17. cxd4 Bxd4 18. Hbl Bxf2+ 19. Kfl
h5! ? 20. Bf4
Fellur eiki í gildruna 20. Be3? h4!
21. Bxf2 Rd2+ og vinnur
drottninguna til baka.
20. — g5?
Reynir aö afvegaleiöa biskupinn,
því aö 20. — h4 heföi veriö svaraö
meö 21. Hcl meö hótuninni 22.
Hxc6+ bxc6 23. Db8+ og hrókurinn
fellur. En nú nær hvítur að bægja
hættunni frá. Mun sterkara er 20. —
e5! og aö sögn Jóhanns er hæpið að
hvítur eigi nokkuð betra en 21. Dxf7
exf4 26. De6+ Kc7 23. De5+ Kc8 og
þvinga framþráskák.
21. Bxg5! h4 22. gxh4 Bxh4 23. Db2! f6
24. Bxh4 Hxh4 25. Hcl Kc7?
Betra er 25. — Hxh2 og enn getur
svartur veitt harövítugt viönám.
Framhald skákarinnar teflir Helgi
mjög vel.
26. Da3 Rd6 27. Dg3 Hh5 28. Hdl Bd5
29. Dg7+ Kc6 30. Hcl+ Bc4 31. Dg4
Hf5+ 32. Kel b5 33. h4!
Framrás kantpeösins ræöur úr-
slitum.
33. — e5 34. h5 Hf4 35. Dg2+ Kb6 36.
H6 Re4 37. h7 Hh4 38. h8=D.
— Og Jóhann gafst upp. Riddarinn
fellur.
Tveir stórmeistaraáfangar
Helgi og Jóhann náöu báöir áfanga
aö stórmeistaratitli og voru vel aö
sigrinum komnir. Jóhann varí farar-
broddi allan tímann og tapaöi aöeins
fyrir Helga. Vann stórmeistarana
Lobron, Friörik og Ree og í síðustu
umferðinni kom hann meö nýjung í
spænska leiknum gegn Geller og hélt
auðveldlega jöfnu.
Helgi náði einnig frábærum
árangri gegn stórmeisturum, eins og
mótstaflan ber meö sér. Tefldi viö
fimm, vann Friðrik, Chandler og
Lobron og gerði jafntefli viöGellerog
síöan Reshevsky gamla í síöustu um-
feröinni, sem tefldi eins og unglamb
á þessu móti.
Skák Helga viö Lobron í 9. umferö
var afar mikilvæg fyrir Helga en
honum tókst aö snúa á stórmeistar-
ann eftir tvísýna og skemmtilega
baráttu.
Hvitt: Helgi Olafsson.
Svart: EricLobron.
Benóní-vörn.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 c5 4. d5 exd5
5. cxd5 d6 6. Rc3 g6 7. Bf4 a6 8. a4 Bg7
9. e4 0—010. Be2 Bg411.0-0 Bxf312.
Bxf3 Re813. Db3!?
Þessi og næsti leikur eru hugar-
smíö Helga en Jóhann lék 13. Be2
fyrr í mótinu gegn Lobron. Benóní-
vörnin var áreiðanlega vinsælasta
byr jun mótsins.
13. — b6 14. Rbl!? Rd7 15. Ra3 Df6 16.
Bg3 h5 17. h3 Dxb2 18. Habl Df6 19.
Hfel De7 20. Be2 Be5 21. Rc4 Bd4 22.
Rxb6 Rxb6 23. Dxb6 h4 24. Bh2 Dxe4
25. Bxa6 Dc2 26. Khl Rf6 27. Bxd6
Hfe8 28. Bb5 Hxel+ 29. Hxel Dd2 30.
Hfl Re4.
Svartur hefur nú hættulegar
hótanir og c-peð hans gæti fariö af
stað þegar síst skyldi. Helgi finnur
eina leikinn til þess aö halda taflinu
gangandi.
31. dc7! Bxf2 32. Bf4 Dxd5 33. Dc6!
Hd8 34. Dxd5 Hxd5 35. Hcl g5 36. Bc6
Hd8 37. Be5 Be3 38. Hbl Rf2+ 39. Kh2
g4-
40. g3!
Eini leikurinn, annars veröur
hvíturmát.
40. - Hd2 41. Hb8+! Kh7 42. Hb2
hxg3+ 43. Kxg3 Bf4+??
Lobron var í miklu tímahraki og
tókst ekki að reikna framhaldið rétt.
Eftir 43. Hxb2 44. Bxb2 gxh3 eru
jafntefli líklegustu úrslitin. Nú
vinnur Helgi.
44. Kxf4 Rd3+ 45. Ke2 Rxb2 46.
Be4+! Kg8 47. Kxd2 Rc4+ 48. Kc3
Rxe5 49. hxg4.
— Og Lebron gafst upp, því aö
hann ræður ekki viö hvíta kantpeðið
eftir 49. — Rxg4 50. a5 Re5 51. a6 Rd7
52.Kc4o.s.frv.
1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. R. V.
1. E. Geller, USSR, SM 2560 1/2 32 38 1 1/2 24 21 1/2 1/2 6 23 0 1 10 26 1 1 11 1/2 16 25 V2 7
2. L. Christiansen, USA, SM 2550 31 1/2 1 33 20 1/2 1 22 13 1/2 0 16 18 1 1/2 11 27 1 V2 9 1/2 23 7
3. Balashov, USSR, SM 2535 33 1/2 1/2 3. 14 V2 1/2 20 34 1 1/2 22 1 19 30 1/2 1/2 13 11 1/2 1/2 18 6V2
4. Byrne, USA, SM 2520 34 1 0 22 3. 0 1 50 37 1/2 1 36 20 1/2 24 1/2 0 18 1 15 10 1 6V2
5. E. Lobron, FRG, SM 2520 56 1 0 25 34 1 ’/2 3, 27 0 1 39 22 1 1 12 0 21 «0 0 30 5’/2
6. L. Alburt, USA, SM 2515 35 1 1 57 22 1 0 6 , '/2 0 27 31 1/2 0 20 36 1 30 1/2 12 0 5’/2
7. Chandler, ENG, SM 2515 36 1/2 V2 55 39 1/2 1 49 31 1 21 0 28 1 0 23 19 1 18 1/2 1 24 7
8. De Firmian, USA, AM 2515 1 37 19 1 1 21 6 1 V2 9 30 1 0 25 16 0 0 23 22 0 V2 38 6
9. Jón L. Árnason, AM 2500 1/2 38 32 1 1 27 26 1 8 1/2 O25 1 24 2, ’/2 1/2 17 2 1/2 31 1 IV-VI 7’/2
10. Friðrik Ólafsson, SM 2495 39 1 21 0 1 37 1 56 25 0 1/2 20 , 0 1 42 1/2 24 26 1 0 . 6
11. T. Wedberg, SVI, AM 2495 1 40 23 1 V2 30 25 1/2 1 24 17 V2 1/2 21 2 V2 , 0 V2 3 ,. 0 6
12. Gutman, ISL, AM 2480 60 1 24 V2 0 28 0 39 47 1 1 41 1 35 ,0 0 22 50 1 1 6 6'/2
13. H! Ree, HOL, SM 2480 0 4, 46 1 1 43 23 1 1/2 4, 28 1 V2 17 35 0 3 V2 1 5 16 1/2 7
14. Guömundur Sigurjónsson, SM 2470 1 42 28 V2 V2 3 0 24 1 29 35 1/2 1/2 26 31 0 1 39 27 1 1 11 7
15. V. McCambridge, USA, AM Margeir Pétursson, AM S. Reshevsky, USA, SM P. Ostermeyer, FRG, AM M. Knezevic, JUG, SM 2465 0 ,3 50 1 '/2 -- ’/2 1 56 24 0 1 37 34 1 20 0 . 0 1/2 39 51/2
16. 2465 1 44 30 0 1/2 45 4. 1 1 26 2 1 27 1/2 1 8 1/2 25 , '/2 1/2 13 IV-VI IV2
17. 2460 45 1 41 1 1/2 25 1 28 1/2 30 1/2 1. 13 1/2 1 27 9 1/2 22 1 1/2 21 l-lll 8
18. 2460 46 1 43 1 1/2 26 30 0 0 28 37 1 0 2 35 1 4 1 1/2 7 3 1/2 6V2
19. 2450 47 1 0 » 55 1/2 1/2 59 57 1/2 1 45 3O 50 1 0 7 1/2 42 ., '/2 5’/2
20. L. Shamkovich, USA, SM 2450 1/2 48 54 1 '/2 2 3 1/2 1/2 35 10 V2 '/2 - 6 1 1 15 1/2 31 0 22 6V2
21. Helgi Ólafsson, AM 2445 49 1 1 10 .0 '/2 , 39 1 1 7 11 1/2 1/2 9 5 1 25 1 ,7'/2 l-lll 8
22. H. Schússler, SVI, AM 2445 1 50 4 1 0 6 2O 1 44 3 V2 0 5 28 1 12 1 1 8 20 1 IV-VI IV2
23. L. Schneider, SVI, AM 2440 51 1 0„ 57 1 0 ,3 59 1 1 1 V2 30 7 1 8 1 0 ,7 2 '/2 7
24. King, ENG, AM 2435 52 1 V2 12 1 1/2 14 1 „ 0 1 15 • 0 '/2 - 10 V2 1 41 70 5
25. Jóhann Hjartarson, AM Pia Cramling, SVI, AM+SM 2415 1 53 1 5 ,7 ’/2 V2 11 1 10 9 1 8 1 1 13 ,6 '/2 0 21 '/2 , l-lll 8
26. 2405 1 54 48 1 ’/2 0 9 16 0 1 57 ,. ’/2 0 , 40 1 0 10 V2 52 5’/2
27. A. Ornstein, SVI, AM 2405 55 1/2 1 36 90 45 1 1 5 6 1 16 1/2 17 0 0 3 0 ,. 29 1/2 5’/2
28. C. Höi, DAN, AM 2400 1 59 1/2 14 12 1 17 0 18 1 0 13 0 7 0 22 46 1/2 1/2 40 45 1/2 5
29. Haukur Angantýsson, AM V. Zaltsman, USA, AM 2395 57 0 1 47 56 0 1 58 ,- 0 0 50 1 49 45 1/2 1 55 52 1/2 1/2 27 5’/2
30. 2395 1 58 1 16 1. V2 1 18 17 1/2 0 8 23 1/2 1/2 3 Oj, '/2 6 51 6’/2
31. Karl Þorsteins 2375 'h 2 3 '/2 1 4 5 ’/2 0 7 38 1 1/2 6 1 14 30 1 20 1/2 0 9 6’/2
32. Sævar Bjarnason 2375 1 V2 0 9 58 1/2 0 57 50 0 1 60 «0 1 53 42 0 1/2 49 59 1/2 4
33. Benóný Benediktsson 2355 1/2 3 20 0- «0 1 53 52 0 1 54 55 0 0 37 5, 0 1/2 43 3
34. J. Hector, SVI 2350 0 < 531 0 5 42 1 0 3 56 1 1 58 0 ,5 41 0 380 1 36 5
35. Elvar Guðmundsson 2330 0 6 49 1/2 1 48 55 1 20 1/2 ’/2 ,. ,20 0 18 52 0 1 56 0 50 4'/2
36. Taylor, KAN 2325 ’/2 7 27 0 0 49 1 53 1 48 -0 1/2 52 56 1 0 6 O57 34 0 4
37. Dan Hansson 2320 a 0 51 1 10 0 43 1 ’/2 . 0 18 «0 '/2 -6 33 1 0-5 43 1/2 4'/2
38. K. Burger, USA, AM 2305 9 1/2 0 . 59 0 1 51 49 1 0 31 4. 1/2 1/2 52 48 1 1 34 8 1/2 6
39. M. Meyer, FRG 2305 0 10 52 1 1/2 7 12 1 0 21 sO V2 45 58 1 14 0 1 46 15 1/2 51/2
40. M. Nykopp, FIN 2300 „ 0 0 56 V252 5- 0 1 60 48 1 1/2 57 47 1 0 26 28 1/2 0 55 4’/2
41. Róbert Harðarson 2295 13 1 0 ,, 15 1/2 0 16 1 52 12 0 1/2 38 571 1 34 2.0 V2 19 5'/2
42. Bragi Kristjánsson 2295 ,4 0 1/2 58 47 1/2 0 34 1 54 59 1 1/2 50 10 0 1 32 19 1/2 1/2 57 5’/2
43. Ágúst Karlsson 2285 15 1 0 18 ,3 0 0 37 58 0 54 1 1/2 55 0 48 49 V2 0 60 33 1/2 31/2
44. Leifur Jósteinsson 2275 16 0 1/2 59 33 1 1/2 15 22 0 056 056 60 0 5, 0 '/2 5. O53 2'/2
45. Magnús Sölmundarson 2265 0 ,7 60 1 16 1/2 0 27 1 55 19 0 39 V2 ’/2 39 0 50 37 1 1/2 28 5
46. Ásqeír Þ. Árnason 2260 18 0 0 ,3 V2 53 52 0 1 51 55'/2 1 59 37 1/2 1/2 28 39 0 0 58 4
47. Guðmundur Halldórsson 2260 0 19 290 V2 42 60 1 0 12 49 1/2 1 32 0 40 57 0 53 1 1/2 37 4'/2
48. Bragi Halldórsson 2245 20 1/2 0 26 35 0 1 33 36 0 0 40 1 51 43 1 0 38 65 0 0 56 31/2
49. Þröstur Bergmann 2240 0 21 1/2 35 36 1 7O 0 38 1/2 47 29 0 59 V2 1/2 43 32 1/2 1 51 4'/2
50. K. Tielmann, FRG 2225 22 0 0 ,5 1 54 - 0 1 32 29 1 42 1/2 0 19 45 1 0 12 35 1 5’/2
51. Arnór Björnsson 2220 0 23 O37 60 V2 38 0 46 0 0 53 48 0 5.0 1 44 1 33 49 0 2'/2
52. Hilmar Karlsson 2220 0 24 0 39 40 1/2 1 46 4, 0 1 33 36 1/2 38 1/2 1 35 V2 29 26 1/2 5’/2
53. Haraldur Haraldsson 2215 25 0 0 34 46 1/2 0 36 33 0 5. 1 0 60 32 0 1 54 0-7 44 1 3'/2
54. Gylfi Þórhallsson 2215 26 0 0 20 50 0 40 1 42 0 0« 33O 1 51 53 0 «'/2 1 60 3'/2
55. Benedikt Jónasson 2210 1/2 27 7 1/2 V2 19 O35 45 0 1/2 46 43 1/2 1 33 29 0 1 48 40 1 51/2
56. Lárus Jóhannesson 2200 0 5 40 1 1 29 10 0 15 0 034 44 1 0 36 1/2 58 35 0 48 1 4'/2
57 Pálmi Pétursson 2200 1 29 6 0 0 23 32 1 '/2 ,9 26 0 40 1/2 0., 1 47 36 1 42 1/2 5'/2
58. Halldór G. Einarsson 2200 0 30 42 1/2 1/2 32 29 0 1 43 44 1 34 0 0 39 56 1/2 1/2 59 46 1 5
59. Björgvin Jónsson 2200 0 28 44 1/2 1 38 19 1/2 0 23 0-2 46 0 V2 49 60 1 58 '/2 1/2 32 4'/2
60. Andri Á. Grétarsson 2200 0 12 0-5 1/2fi1 0-7 40 0 32 0 53 1 1 44 0 59 43 1 5. 0 3'/2
Inga Maria Sverrisdóttir hjá Tímaritinu Skák var svo væn að útbúa þessa lokatöflu Reykjavikurskák-
mótsins fyrir lesendur DV. Keppendum er raðað eftir ELO-stigum en lengst til hægri er vinningafjöldi
hvers og eins. Lesa má úrslit keppenda í hverri umferð og litla letrið gefur til kynna við hvaða and-
stæðinga þeir tefldu — ef númerið er til hægri í reitnum hefur andstæðingurinn haft hvítt. Teflt var sam-
kvæmt svonefndu Reykjavikur-afbrigði svissneska kerfisins en eðli þess er i stystu máli á þá lund að
sterkustu mennirnir keppa innbyrðis og þeir veikari sömuleiðis. Það má því segja að hver og einn hafi
keppt á móti við sitt hæfi. Takið eftir að fjórir islendingar eru í sex efstu sætum! -BH.