Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1984, Qupperneq 44
44
DV MÁNUDAGUR 27. FEBRUAR1984
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
LEIÐARLJÚS
Nýrkóngur,
nýtt fífl
Það hlýtur að vera öllum hugs-
andi mönnum íhugunarefni
þegar upp kemst um 40 ára gam-
alt ráðabrugg Dana um að setja
ónothæfan kóng til valda á
íslandi. Konungsefni sem þeir
vildu ekki nota sjálfir en
íslendingar máttu hirða. I
Utlendingum ætlar seint að
skiljast að hér á landi býr sjálf-
stæð þjóð sem lifir sjálfstæðu lífi
og býr í eigin húsnæði. Við erum
heimsmeistarar í þeirri lífskúnst
að búa í eigin húsnæði og því sárt
til þess að vita að ein fremstaj
óperusöngkona landsins skuli
þurfa að bíta í það súra epli að
standa á götunni, húsnæðislausj
vegna þess að hún hafðl vanist
því erlendis að geta leigt íbúðir
eins og henni hentaði á hverjum
tima. Sjálfstæðismetnaður
þjóðarinnar hefur ef til vill
gengið of iangt, þjóðin hlýtur að
hafa efni á því að byggja yfir
siingkonur sínar.
Það má vera að sjálfstæðis-
kennd þjóðarinnar, látlaust streð
hennar eftir eigin húsnæði sé ein
helsta orsök þeirrar tröllauknu
tíðni hjónaskilnaða sem best sést
á því að hér í borg eru haldin sér-
stök námskeið í þeim fræðum
sem kennd cru við skilnað.
Aðsókn er sögð framar öllum
vonum þó allir komist að sem
vUja.
Ekki er fráleitt að álykta sem
svo að um 1000 hjón hafi slitið
samvistum á síðasta ári á meðan
rétt rúmlega hundraö létu sig
hafa það að ganga í það heilaga.1
Hér er um óheillaþróun að ræða,
þróun sem verður að stöðva og
snúa við. Fjölskyldan er kjölfesta
samfélagsins, án hennar skiptir
litlu hvort fólk býr í eigin húsnæði
eða hvort hér eru danskir kóngar
eða ekki. Á þetta leggur Sviðs-j
ljósið sérstaka áherslu.
Við verðum að standa saman
og gæta séreinkenna okkar. Við
höfum erlend dæmi ljóslifandi
fyrir augum okkar hér á síðunni.j
Sjálfur James Bond, ein helsta
hetja nútímans, á í fjárhags-
erfiðleikum. Boy George, cin
helsta hetja ungu kynslóðar-
innar, nennti ekki aö læra.
Þannig má þetta ekki verða hér á
landi, við verðum að sýna þrótt
og ef nauðsynlegt er — sýna út-
lendingum í tvo heimana. Það
þarf ekki að troða upp á okkur
erlendum kóngum. Bæði Boy
George og James Bond lifa í
konungdæmi, annar blankur,
hinn óþekkur. AUavega geta
Bretar ekki þakkaö drottningu
sinni allt.
Lifum sjálfstæð i landi okkar
án kónga og minnumst orða
skáldsins sem sagði: — Nýr
kóngur, nýtt fífl.
Það er nefnilega alkunna aö
þegnarnir eiga það til að breyta
háttum sínum í hvert skipti sem
nýr kóngur tekur við. Ef til vill
má skýra hina auknu tíðni kyn-
villu í konungdæmunum Dan-
mörku og Bretlandi með því að í
löndunum ríkja nú kóngar sem
eru kvenmenn og kalla sig j
drottningar.
INGÓLFUR ÍSLANDSKÓNGUR
wMmm
Hilll
KONG INGOLFAF ;
ISLAND
Og s& fik j. g i gftr pá Chri
stinnsborg en historie om
Crov Ingolf, d«*r aldrig blev
konge af Dnnmark — men
teoretisk havde en chance
f r at bíive konge af Island.
Det har vist aldrig været
lrenirne for, men hor er hi-
storien.
Wm
Átti að gera Ingólf
greifa, frænda
Margrétar
Danadrottningar,
að konungi Islands
áriðl944?
Þær fréttir berast nú frá Danmörku
að ráðgert hafi verið að gera Ingólf
greifa, sem að öllu óbreyttu hefði átt
að vera Danakonungur núna, að
konungi Islendinga þegar sambands-
slitin stóðu fyrir dyrum í síðari heims-
styrjöldinni.
Er þetta haft eftir dagskrárgerðar-
manninum og Islandsvininum Preben
Dich sem um þessar mundir vinnur að
sjónvarpsmynd um sambandsslit
Islands og Danmerkur en á þessu ári
eru liðin 40 ár frá því að þeir atburðir
gerðust. Segist Dich hafa þetta eftir
íslenskum heimildum, fólki sem stóð í
eldlínunni er Island varð lýðveldi.
Hugmyndin var sú aö gera Island að
konungsveldi, sækja Knút, bróöur
Friðriks, sem síðar varö Danakóngur
og faðir Margrétar sem nú ríkir, eöa
Ingólf son hans, og gera annan hvom
þeirra að Islandskóngi. Svo varö þó
ekki og hugmyndin um lýöveldi á
Islandi varðofaná.
Eins og fyrr greindi ætti Ingólfur
þessi að vera Danakonungur í dag ef
stjórnarskrárbreyting heföi ekki verið
gerð í Danmörku 1953, breyting sem
heimilaöi konu aö erfa krúnuna.
Þannig stóð nefnilega á aö Friðrik IX
Danakóngur eignaðist engan son,
aðeins þrjár dætur og því var komið að
Knúti bróöur hans að takaAdð konung-
dómi næst og þar á eftir Ingólfi syni
hans sem hér er til umræðu.
Ekki þótti þetta nógu góöur kostur
því Ingólfur var ófrjór og gat ekki
eignast erfingja.. Einnig stóö útlit
þeirra frænda þeim fyrir þrifum ef
trúa skal almannarómi.
Málið var leyst með stjómarskrár-
breytingu og nú ríkir Margrét II Dana-
drottning eins og ekkert sé sjálfsagð-
ara en Ingólfur frændi hennar er aftur
á móti orðinn bóndi á Jótlandi. Þar
fékk hann til ráöstöfunar stóran
búgarð og á sl. ári ákvað danska
þjóðþingið að Ingólfur, fyrrverandi
ríkisarfi, skuli þiggja sem svarar einni
og hálfri milljón króna á ári sem
skaðabætur fyrir missi krúnunnar á
sínumtíma.
Ingólfur gekk að eiga vinkonu sína
árið 1968, nýlenduvörukaupmannsdótt-
ur sem hann kynntist í dansskóla en sú
var ekki með blátt blóö í æðum. Varð
Ingólfur því að afsala sér prinstitli
sínum en fékk greifatign í staðinn.
Segist hann vera í sjöunda himni yfir
að hafa ekki þurft að verða kóngur í
Danmörku, sveitalífið eigi betur við
sig.
I V-rcpori crcn x icucii
Dich er en flittig gæst i Rigs-
urkivet i Kobenhavn. Han er
nemlig bidt af Island og i
gang med at fordybe sig i
detaljerne omkring Islands
losriveJse fra Danmark un
der anden verdenskrig i
1944. Det er atudier til enl
TV-reportage i 4U-áret for
denne begivenhed, der vakte
Htnr forargelse i Danmark.'
ikke mindst var kong Chri*
stian rigtig sur i maskeo
over, at Islund kunne gore
det i ly nf verdenskrigen
Hos kilder i Reykjavik, der
var ta t pá losrivelses-begi-
venhederne, har Preben
Dich fáet at vide, at man
faktisk overvejede at gore
det selvstændige Islana til
monarki. Tnnken var at hen-
te enten prins Knud eller
sonnen prins Ingolf til sa-
gaoen og udrábe en af d**m
til konge at Islaud. Men i
.-udste runde vslgie rnan alt
sð at gore Islami tii repuVilik
Frétt í dönsku dagblaði þar sem
fjallað er um Ingólf íslandskóng.
Skyldu þessi hjón vera á leið á námskeið?
Ingólfur greifi við störf sin á búgarðinum: — Feginn að hafa ekki orðið
kóngur.
SKILNAÐARNAMSKEIÐ
í REYKJAVÍK
— mikill áhugi enda skildu nær þúsund hjón í fyrra
Nú er hægt aö komast á skilnaöar-
námskeið í Reykjavík, ekki þannig aö
skilja að það sé ætlað þeim sem eru í
þann mund að skilja heldur hinum
sem þegar hafa gert það. Að sögn for-
svarsmanna ráðgjafar- og fræðslu-
þjónustunnar Tengsla sf., sem gengst
fyrir námskeiðinu, er áhugi fólks mik-
ill enda markaðurinn stór. I fyrra af-
greiddu yfirvöld 577 skilnaðarmál og
skráðu hjá sér 99 slit á óvígöri sambúö.
Skilnaöir eru að sjálfsögðu miklu fleiri
því óvígð sambúð leysist gjarnan upp
án þess aö kóngar né prestar séu látnir
vita. Á sama tíma og á öllu þessu gekk
voru aöeins skráðar 182 hjónavígslur.
Enda hafa hjónavígslunámskeið
hvergi sést auglýst.
Á skilnaðarnámskeiðinu er þátttak-
endum skipt niður í sex-manna hópa
sem hittast sex sinnum. Félagsráö-
gjafar fræöa um hina praktísku og til-
finningalegu hliðar skilnaðar. Reyna
að leiöbeina fólki hvemig það getur
byggt sig upp að nýju eftir skilnað, á
hverju það getur átt von þegar sam-
vistum lýkur og nýir aðilar koma til
sögunnar. „Tilfinningakreppan sem
fylgir skilnaði getur orðiö mikil, jafn-
vel fólki ofviða og við vonumst eftir aö
geta orðiö að liði með þessu nám-
skeiöi,” sagði Sævar Guðbergsson hjá
Tengslum sf.