Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1985, Blaðsíða 4
DV. MÁNUDAGÚR 25. MARS1985.
Frumgerð ferðabókar Gaimards:
Geymir undirskriftir forystu-
manna sjálfstæðisbaráttunnar
Frá Arna Snævarr, fréttaritara DV í
Paris:
Skjal meö undirskriftum ýmissa
forystumanna íslensks stjórnmála-
og menntalifs á 19. öld hefur fundist i
París. Skjalið á rætur sínar að rekja
til veislu sem Islendingar í París
héldu franska vísindamanninum
Paul Gaimard hinn 16. janúar 1839 en
hann var þá nýkominn úr miklum
vísindaleiðangri á Islandi.
Veisla þessi á sér sess i Islandssög-
unni því þar fiutti Jónas Hallgríms-
son velþekkt lofkvaeði umGaimard.
Gaimard þessi fór tvær ferðir um
Island á árunum 1835 og 1836 fyrir
flokki franskra vísindamanna. Upp-
skeran var 12 binda verk um ferðina.
Því fylgdi veglegur myndaatlas.
Frumgerð hans hafði Gaimard með
sér í veisluna og á öftustu blaösíðu
frumgerðarinnar lét hann alla við-
stadda Islendinga rita nöfn sín, fæö-
ingarstað og tíma. Þeir sem rituðu
nöfn sín voru meðal annarra, Jón
Sigurðsson, Jónas Hallgrímsson,
Grimur Thomsen, Þorleifur Guð-
mundsson Repp, Jón Hjaltalín, Finn-
ur Magnússon, í allt 33 Islendingar.
Siguröur Jónsson líffræðingur í
París fann frumgerð myndaatlass
Gaimards, sem inniheldur þennan
undirskriftalista, og keypti hann
dýru veröi. Enda má segja að auk til-
finningalegs og táknræns gildis und-
irskrifta forystumanna islenskrar
sjálfstæðisbaráttu á 19. öld sé bókin
sem slík geysimerkileg því talsvert
af efni hennar var ekki með í prent-
aðri útgáfu.
Það þurfti oft að kippa í. Vegvísarnir visa veginn að Surtshelli og Reykjavatni.
Arnarvatnsheiði:
Veiðimenn
festusig
Arnarvatnsheiöi hefur löngum
heillað menn og margir hafa lagt leið
sína þangað til veiða. Um helgina
ætluðu nokkrir vaskir veiðimenn að
reyna að komast þangað til veiða
gegnum ís en veðurguðimir tóku í
taumana og ekkert varð úr veiðinni
aðsinni.
Eitthvað hafa menn farið inn á
heiði í vetur og sumir haft árangur
sem erfiði. Stóra Arnarvatn gaf
þessa veiði, nokkra væna silunga. En
menn höfðu gaman af og svo var nóg
að moka þó að snjór væri ekki
mikill. En útiveran heillar og allir
hafa gaman af.
G. Bender.
Moka, moka og moka — það þurfti oft að moka á leiðinni á Arnarvatns-
heiði um helgina og þrátt fyrir góðan vilja komust menn hvergi.
DV-myndir G. Bender.
Landsmót í Langholtskirkju:
Atta hundruð
syngjandi böm
Landsmót íslenskra barnakóra var
haldið í Langholtskirkju á fóstudag og
laugardag. 19 kórar víðsvegar af land-
inu tóku þátt í mótinu, alls 800 börn.
Mót þetta er haldið annað hvert ár og
var nú með breyttu sniði þannig að
samhliða tónleikum unnu kóramir í
hópum að ýmsum tónlistarverkefnum
undir stjórn leiðbeinanda.
Að sögn Jóns Stefánssonar kór-
stjórnanda tókst mótið framúrskar-
andi vel og var aðsókn á tónleika kór-
annamjöggóð.
-ÞJV
Einn keppenda reynir sig i pilukastinu.
DV-mynd GVA.
Keppni í pflukasti:
írskur sigurvegari
Síödegis á laugardag hélt Islenska
pílukastsfélagiö mót í húsnæði Pöbbs-
ins við Hverfisgötu. Sigurvegari var.
Irinn Wilhelm O’Connor sem nú er bú-
settur hér á landi. I ööru sæti varö
Olafur Th. Olafsson og þriðji varð Jón
SnorriSnorrason.
Islenska pilukastsfélagiö hefur hald-
ið nokkur mót að undanfömu en þetta
var fyrsta mótið sem stutt er af fyrir-
tæki. Það var Iþróttabúðin, Borgar-
túni, sem gaf öll verölaun. -þjv
I dag mælir Dagfari
I dag mælir Pagfari
I dag mælir Dagfari
Ekkert mál fyrír lón Pál
Jón Páll ætlar ekki að láta teyma
sig á tipplnu um allan bæ og verður
að segja eins og er, að þjóðinni létti
mjög við þessi tíðindi. Það hefði al-
deilis verið sjón að sjá sterkasta
mann í heimi dreginn á tippinu um
götur bæjarins, bæði hans vegna og
áhorfenda. Fyrir nú utanþað að ekki
er víst að margir tslendingar væm
færir um að draga sterkasta mann í
heimi um göturaar, hvort heldur á
tippinu, hárinu eða höndunum.
Jón Páll hefur verið sakaður um að
neita að gangast undir lyfjapróf hjá
Iþróttasambandinu. Þetta lyfjapróf
fer þannig fram að viðkomandi þarf
að pissa í glas og þvagið síðan próf-
að. Á þá að koma í ljós hvort íþrótta-
maðurinn er á hormónalyfi. Þau lyf
auka hormónastarfsemina og
styrkja vöðvana og ýmislegt fleira.
TU að mynda hafa slíkar hormóna-
tökur verið vinsælar og eftirsóttar af
Iþróttakonum austan járntjalds með
þeim árangrí að stundum reynist erf-
itt að greina hvort þær em konur
eða karlar. Þannig er lyfið vinsælt og
eftirsótt af konunum þó konurnar
verði ekki að sama skapi vinsælar og
eftirsóttar af körlum. En hvað gera
menn ekki fyrir árangur í íþróttum?
Hér á landi er sífeUt verið að reyna
að sanna að íslenskir íþróttamenn
neyti þessara lyfja þótt islenskar
konur hafi útlitið með sér og raunar
árangurinn lika því ennþá hefur eng-
in þeirra komist á verðlaunapaU
nema i fegurðarsamkeppnum. Vera
má að fegurðardisir séu látnar pissa
í glös, áður en sýningar hefjast, en
hingað tU hefur það ekki tiðkast að
faUegar stúlkur pissi i glös, fyrir það
eitt að vera faUegar.
Jón PáU hefur margsinnis sannað
að hann er hinn myndarlegasti karl-
maður, vöðvastæltur og kraftmikUl.
Þar að auki hefur hann sannanir
fyrir því að hann er ekki ófrjór og
dregur konu sina tU vitnis um getu
sina.
Samt er Iþróttasambandið sifeUt
að hvekkja hann með kröfum um
þvagprufur út og suður tU að sanna
að hann sé karlmaður af guðs náð.
Hvers á Jón PáU að gjalda? Hefur
hann ekki unnið sæmdarbeitið
„sterkasti maður heims” hjálpar-
laust? þarf hann frekar en aðrir
sterkir og myndarlegir menn að af-
sanna að hann sé eitthvað annað en
hann er? Halda mennirnir kannski
að Jón PáU sé kona?
Það væri nú laglegur andskoti ef
karlmenn upp tU hópa þyrftu að
plssa í glas og sanna getu sína í lyfja-
prófum í hvert skipti sem þeir gera
það (hitt, þið vltið). Og heldur erþað
ömurlegt hlutskipti að þurfa að láta
teyma sig á tippinu um aUan bæ,
fyrir þá sök eina að líta sæmUega út.
Hitt er aUt annað mál, og kemur
þessarl deUu ekkert við að ýmsir
myndarlegir menn hafa Iátið tippið
draga sig um aUan bæ. En það er
ekki það sem Jón PáU á vlð enda eru
það aðrir en hann sem heimta
þennan tippadrátt, þegar meistarinn
á í hlut. Og þó er upplýst, að engar
konur elga sæti i lyfjaprófanefnd
Iþróttasambandsins svo ekki stafa
þessi fyrirmæU af kynferðislegum
hvötum.
Nú er það vitaskuld sárasaklaust
og næsta auðvelt fyrir hvera sem er,
að pissa i glas ef þvi er að skipta. Það
gera menn iðulega þegar þeim er
mál. Það hlýtur hins vegar að vera
mál hvers og eins án þess að heU
nefnd þurfi að taka ákvörðun þar
um. Jón PáU þarf ekkl á nefndum að
halda tU að segja sér hvenær hann á
að pissa. Hormónastarfsemin í Jóni
PáU er örugglega í góðu lagl. Það
hefur hann sýnt og sannað. Hann á
að fá að pissa þar sem honum sýnist
og þegar honum sýnist. Það er ekk-
ert mál fyrlr Jón Pál.
Dagfari