Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1985, Page 26
26
DV. MÁNUDAGUR 25. MARS1985.
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
íþróttir
Fimmtán marka ósigur (17:32) FH íiúgósiavfu:
ff Þet ta vai r algjör
bro tler idi ing íZabac”
Heigi Bents-
son til
V-Þýskalands
Helgi Bentsson, leikmaður Kefla-
vikurliðsins í knattspynui, er nú á
förum til V-Þýskalands þar sem
hann mun lcika með áhugamanna-
liði næstu mánuðina. Þaö var Friz
Kissíng, fyrrum þjálfari Breiða-
bliks og KA, sem hafði samband
við Helga og bað hann að koma til
V-Þýskalands. Helgi mun koma
aftur lil landsins í maí og vcröur
hann löglegur með Keflavíkurlið-
inu mánuði síðar.
Enn velur
Bingham
óþekktan
leikmann
— Clarke á eftir að vekja athygtl
— hann er útsjónarsamur, hefur
góða knattmeöferð, er stór og
sterkur. Hann hefur skorað yfir 20
mörk fyrir Tranmere, sagði Billy
Bingham, landsliðseinvaldur N-
trlands, um Colin Clarke sem hann
valdi í landsUðshóp sinn fyrir vin-
áttuleik gegn Spánverjum á
miðvikudaginn.
Bingham hefur á stuttum tíma
valið óþekkta leikmenn í lið sitt.
Hann valdi Martin McGaughey frá
Lingfield í landsliðshóp sinn á
dögunum og nú velur hann hinn 23
áraClarke.
Landsliðshópur N-Irlands er
þannig skipaður: Pat Jennings,
Jim Platt, Jimmy NichoU, John
O’NeiU, John McClelland, Mal
Donaghy, Niegel Worthington,
Paul Ramsey, Sammy Mcllroy,
lan Stewart, Norman Whiteside,
Jimmy Quinn, Gerry Armstrong,
Noel Brotherston, Billy Hamilton,
Martin McGaughey og Colin
Glarke. -SOS.
— síðustu 15 mín. voru algjör martröð. Við sáum svart, sagði Kristján
Arason, landsliðsmaðurúrFH
FH-ingar máttu þola stórtap í
Evrópukeppni meistaraUða i hand-
knattleik þegar þeir léku fyrri undan-
úrslitaleik sinn gegn júgóslavneska
liðinu Metaloplastika í Zabac í
Júgóslavíu. Júgóslavarnir unnu með
fimmtán marka mun — 32—17. — Við
lékum ágætlega fyrstu 45. mín. leiksins
en þá fór að síga á ógæfuhliðina. Við
lékum þá óskynsamlegan sóknarleik
— áttum ótímabær skot og mis-
heppnaðar sendingar. Þegar staðan
var 17—12 skoruðu Júgóslavarnir
f jögur mörk í röð úr hraðupphlaupum.
Við vorum hreinlega skotnir niður.
Þetta var brotlending hjá okkur hér í
Zabac, sagði Kristján Arason, stór-
skyttan sterka úr FH.
Kristján sagði að FH-liöið hefði mælt
ofjörlum sínum. Júgóslavneska liðið
væri tvímælalaust besta félagslið
heims sem sæist best á því að
byrjunarliö ólympíumeistara
Júgóslavíu er frá Metaloplastika. —
Þeir léku mjög hratt gegn okkur og
tóku mikla áhættu í hraðupphlaupum,
sem heppnuðust fullkomlega. Veselin
Vujovic var frábær í leiknum og einnig
Vukovic. Þá nýttu Júgóslavarnir vel
hornamenn sína — og við áttum ekkert
svar viö tórleik þeirra, sagði Kristján.
— Þetta er mikiö áfall fyrir okkur.
6—7 marka tap heföi veriö viöunandi
en 15 marka ósigur er mikill skellur
fyrir okkur.
Leikmenn Metaloplastika höfðu
mjög góðar gætur á Kristjáni — fóru
yfirleitt út á móti honum og stöðvuðu
Áhorfendurgerðu
FH-ingum lífið leitt
Það var ekki nóg með að FH-ingar
glímdu við besta félagslið heims í
Zabac heldur settu 4000 áhorfendur þá
út af laginu. — Það var mikil
stemmning á áhorfendapöllunum og
gerðu áhorfendurnir okkur oft lifið
leitt. Ef sóknarleikur okkar gekk ekki
upp, þá fóru þeir strax að flauta
þannig að mikil pressa var á mínum
mönnum, sagöi Guðmundur Magnús-
son, þjálfari FH-liðsins.
Guðmundur sagði að um tíma hefði
verið nær vonlaust að ná sambandi við
leikmenn úti á vellinum, fyrir hávaða.
-SOS.
Keegan
til Derby?
Frá Sigurbirni Aðalsteinssynl,
fréttamanni DV í Englandi: — Það eru
miklar líkur á því að Kevin Keegan,
fyrrum leikmaður Liverpool, Ham-
burger, Southampton og Newcastle,
gerist leikmaður með Derby næsta
keppnistímabil.
Keegan hefur fengið mjög freistandi
tilboð frá Derby sem hann á erfitt með
að hafna. Arthur Cox, fyrrum fram-
kvæmdastjóri Newcastle, er nú stjóri
Derby en þaö var einmitt hann sem
fékk Keegan til að byrja að leika knatí-
spyrnu að nýju — með Newcastle.
Keegan hefur ferðast um að undan-
förnu og leikið sýningarleiki. Um
næstu helgi leikur hann t.d. í N-
Sjálandi og Astralíu. Hann fær 20 þús.
pund fyrir að leika þar. -SigA/-SOS
• Þorgils Öttar Mathiesen — skoraði
sex mörk fyrir FH.
hann, og aörar skyttur FH-liðsins, úti
viö punktalínu. Kristján skoraöi ekki
nema þrjú mörk úr langskotum, Hans
Guðmundsson tvö og Guðjón Ámason
eitt. Það losnaði um Þorgils Ottar
Mathiesen á línunni við þetta og
skoraði hann sex mörk.
Júgóslavarnir eru
listamenn
— Þaö er sárt að þurfa að tapa meö
fimmtán mörkum. Viö héldum í við
Júgóslavana fyrstu 45 mínúturnar —
vorum undir, 8—14, í leikhléi en náðum
síðan að minnka muninn í 11—15 í
upphafi seinni hálfleiksins. Þá var
leikur okkar yfirvegaður og vel
skipulagður. Það fór síðan að síga á
ógæfuhliðina þegar staðan var 17—12.
Við náöum þá ekki aö skora mark þótt
við værum tveimur fleiri á vellinum.
Strákamir urðu þá of kærulausir og
náöu ekki að einbeita sér.
Júgóslavamir gengu á lagið og þeir
vom farnir að leika sér undir lok
leiksins, sagði Guðmundur Magnús-
son, þjálfariFH-liðsins.
— Þetta er leikur sem maður verður
að gleyma sem fyrst. Það er þó ekki
hægt að loka augunum fyrir því að viö
glímdum hér við listamenn í hand-
knattleik — uppistööu landsliös
Júgóslavíu, sem er OL-meistari, sagöi
Guðmundur að lokum.
FH-ingar mæta Metaloplastika
aftur í Laugardalshöllinni nk.
föstudagskvöld. -SOS.
Kristján Arason.
I
I
I
I
I
| Forráðamenn Metaloplastika
Ivoru yfir sig ánægðir með leik
sinna manna gegn FH, enda ekki
| nema von, þeir fengu að sjá sína
■ menn leika eins og handknattleikur
I gerist bestur — tættu FH-inga í sig
" á lokasprettinuin.
| Það sem vakti mikia athygli hjá
^ FH-ingum var að Zoran Zivkovic,
■ r
landsliðsþjálfari Júgóslavíu, sem I
var meðal áhorfenda, tók oft *
stjómina af þjálfara |
Metaloplastika - og gaf skipanir .
a f áhorfendabekk j unum. |
Það er kannski ekkí nema von. ■
Zivkovic þjálfaði liðið sl. keppnis- I
tímabil og með liðinu leika níu |
landsliðsmenn J úgósla víu. -SOS.
íslensk samvinna í Diisseldorf:
Atli Eðvalds skor-
aði sjálfsmark
— eftir misheppnað skot Lárasar Guðmundssonar
Frá Atla Hilmarssyni, fréttamanni DV
í V-Þýskalandi:
— Það er óhætt aö segja aö það hafi
verið íslensk samvinna sem vakti
mesta athygli þegar Diisseldorf og
Bayer Uerdingen gerðu jafntefli, 2—2,
í Dusseldorf. Atli Eðvaldsson varð þá
fyrir því óhappi að skora sjálfsmark
eftir að Lárus Guðmundsson hafði átt
misheppnað skot að marki Diisseldorf
á 42. mín. Wayne Thomas sendi
knöttinn til Lárusar, sem reyndi skot
— hann hitti knöttinn illa og stefndi
hann fram hjá marki Diisseldorf. En
þá skeði það að Atli hugðist sparka
knettinum frá marki. Heppnin var ekki
með honum — hann spyrnti knettinum
í eigið mark.
Þetta var mikið áfall fyrir Diissel-
dorf sem var rétt áöur búið aö skora
löglegt mark sem annar línuvörðurinn
dæmdi af, af óskiljanlegum ástæðum.
Hasse Holmquist náði að jafna metin,
1—1, fyrir Diisseldorf en síðan skoraði
Wolfgang Funke, sem kom inn á sem
varamaður fyrir Lárus á 61. mín.,
mark fyrir Uerdingen úr vítaspyrnu —
1-2.
* Atli Eðvaldsson.
Leikmenn Diisseldorf gerðu síðan
mikla hríð að marki Uerdingen og á 72.
mín. náði Atli að fiska vítaspyrnu eftir
að Funke hafði skellt honum inni í víta-
• Lárus Guðmundsson.
teig. Rudi Bommer skoraöi, 2—2, úr
vítaspymunni. Atli fékk síðan tækifæri
til að gera út um leikinn undir lokin en
honumbróst þá bogalistin. -AH/-SOS.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir