Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1985, Blaðsíða 27
DV. MÁNUDAGUR 25. MARS1985.
27
íþróttir íþróttir íþrótiir íþróttir
Leikmenn Bremen
gefa ekkert eftir
— í baráttunni við Bayem Miinchen í v-þýsku „Bundesligunni”
Frá Atla Hilmarssyni, fréttamanni
DV í V-Þýskalandi: — Það er greini-
legt að leikmenn Werder Bremen ætla
ekkert að gefa eftir í keppninni við
Bayem Miinchen um V-Þýskalands-
meistaratitilinn. Þeir léku mjög vel
gegn Frankfurt á laugardaginn og
unnu 3—1 í Frankfurt.
Uwe Miiller skoraði fyrst fyrir
heimamenr sem urðu siðan fyrir því
áfalli að missa Ralf Falkenmayer af
leikvelli, meiddan á fæti. Norbert
Meier jafnaöi 1—1 fyrir Bremen og
síðan skoruðu þeir Yasuhiho Okudera
og Rudi Völler mörk fyrir Bremen.
Völler, sem átti stórleik, hefur skoraö
STAÐAN
Bayern 24 14 6 4 52—32 34
Bremen 23 12 8 3 65—37 32
Gladbach 23 11 6 6 58—36 28
Uerdingen 23 11 5 7 46-34 27
Hamburg 22 9 8 5 40—31 26
Bochum 23 8 9 6 38—32 25
Mannheim 23 9 7 7 34—37 25
Stuttgart 24 11 3 10 62—40 25
Köln 23 11 2 10 45—43 24
Schalke 23 9 6 8 46—46 24
Frankfurt 24 8 7 9 48—51 23
Kaiserslautern 22 6 9 7 27—39 21
Leverkusen 24 6 8 10 36—40 20
Diisseldorf 23 6 7 10 39—44'19
Bielefeld 24 3 11 10 26—47 17
Dortmund 22 7 2 13 27-45 16
Braunschweig 23 7 2 14 30—54 16
Karlsruhe 23 3 8 12 31-62 14
18 mörk í „Bundesligunni” og er
markahæstur. Bremen gat bætt marki
við undir lok leiksins en þá misnotaöi
Wolfgang Sidka vítaspymu.
A sama tima og Bremen var að
vinna góðan sigur varð Bayern að
sætta sig við jafntefli, 0—0, gegn
Mannheim. Bæjarar léku vamarknatt-
spymu. 40 þús. áhorfendur sáu slakan
leik. Dómarinn Walz varð fyrir því
óhappi að slíta hásin í leiknum og varö
ungur línuvörður að taka við starfi
hans. Það var Bauer, sem dæmdi sinn
fyrsta leik í „Bundesligunni” — hafði
áður aðeins dæmt leiki hjá áhuga-
mannaliðum. Bauer stóö sig mjög vel
og sögðu blööin hér að hann hefði verið
sigurvegari leiksins. Þess má geta að
þetta er í þriöja sinn sem Walz dómarí
slítur hásin í leik og hefur hann nú hug
á að legg ja skóna á hilluna.
Stórleikur Magath
Leikmenn Hamburger eru
greinilega að ná sér á strik. Þeir léku
vel gegn Braunschweig og unnu stór-
sigur, 5—0. Bestur var Felix Magath
sem átti stórleik og skoraði fallegt
mark meö skalla. Hin mörk Ham-
burger skomðu þeir Mark McGhee,
Bernd Wehmeyer og Jurgen Milewski,
tvö.
• Stuttgart lagði Köln að velli í af-
spymulélegum leik — 3—1. Jimmy
Hartwig skoraði fyrst fyrir Köln en
þeir Karl Allgöwer, Peter Reichart og
Jurgen Klinsmann svöruðu fyrir Stutt-
gart.
Urslit urðu þessi í „Bundesligunni”
í V-Þýskalandi á laugardaginn:
Bochum-Karlsruhe 5—2
Frankfurt-Bremen 1—3
Schalke-Bielefeld 3—0
Hamburger-Braunschweig 5—0
Gladbach-Kaiserslautern 7—0
Stuttgart-Köln 3-1
Mannheim-Bayern 0—0
Diisseldorf-Uerdingen 2—2
Leverkusen-Dortmund 0—1
Leikmenn Borussia Mönchenglad-
bach áttu stórleik gegn Kaiserslautem
og unnu, 7—0. Michael Frontzek (2),
Uwe Rahn (2), Hans-Jörg Criens, Kai-
Erik Herlovsen og Frank Mill skoruðu
mörkin.
Markið sem Norðmaðurinn Herlov-
sen skoraði var útnefnt mark dagsins.
Hann skoraði meö glæsilegu langskoti.
• Rolf Russmann tryggði
Dortmund sigur, 1—0, gegn
Leverkusen með skalla á 83. mín.
• Peter Stichler, Olaf Thon og
Dieter Schatzschneider skoruöu mörk
Schalke, 3—0, gegn Bielefeld.
• 155 þús. áhorfendur sáu leikina í
„Bundesligunni” á laugardaginn. 35
mörk voru skoruð og átján gul spjöld
voru á lofti.
-AH/-SOS.
• UweRahnogFrankMill — söfnuðu mörgum mörkum þegar Gladbach
vann stórsigur, 7—0, á Iaugardaginn.
LITTLE TRAMP CHARACTER LICENSED BY BUBBLES. INC . S A GGK <€>
Matvörukaupmaðurinn
notar hana til þess að fylgjast
með vörubirgðum.
Forstjórinn notar hana
til að leita í
upplýsingabankanum.
Tannlœknirinn geymir í henni
sögu allra sjúklinganna
og tölvan sér um að gefa þeim
tima þegar við á.
Auglýsingamaðurinn Skókaupmaðurinn notar hana
notar hana til vinnslu- til að fylgjast með sölunni.
skráningar.
Einkaritarinn notar hana
til skýrslugerðar og
bréfaskrifta.
Nemandinn notar hana til að
ná betri árangri.
Matsveinninn notar hana
til að setja saman matseðil
dagsins, reikna hita-
einingar o.fl.
Bílaleigan notar hana
til að reikna leigugjöld.
Skrifstofustjórinn notar hana
til að geyma og senda skilaboð.
Bóndinn notar hana til að
fylgjast með fóðurgjöf
og bæta hana.
Verktakinn notar hana til Tryggingamaðurinn notar
að gera hagkvæm tilboð. nana til að flýta fyrir
útreikningi á iðgjöldum.
Rithöfundurinn notar hana
til að skrifa handrit.
Ferðaskrifstofan notar hana
til að gera ferðaáætlanir
um allan heim.
Bankinn notar hana til að
veita greiðari upplýsingar og
betri þjónustu.
Hótelstjórinn notar hana
til að skrifa reikninga.
Vísindamaðurinn notar hana
til að leita i gagnaskrám.
Arkitcktinn notar hana til að
spara sér undirbúningsvinnu.
Opinberar stofnanir nota hana
til þess að draga úr álagi
á stóru tölvunum.
Lyfjafræðingurinn notar hana
til að muna 45000 lyfjaheiti.
Fólk á borð við þig, hundruð
þúsunda sem sinntu kalli tölvu-
væðingarinnar. Fólk sem hafði
ekki litið á sig sem tölvusérfræð-
inga. (Sumir voru meira að segja
lélegir í stærðfræði í skóla). Þá
kom IBM PC einkatölvan til
sögunnar með fjölda forrita og
allt varð svo einfalt. Fólk komst
að raun um að hæfhi tölvunnar
var slík að notandinn þurfti ekki
að vera tölvusérfræðingur. Það
þurfti heldur ekki forritunar-
nám - þægileg forrit voru til í
miklu úrvali og ný bætast við
daglega. Allt sem til þurfti var
ákveðin peningaupphæð og
einlægur vilji til þess að standa
sig í samkeppnisþjóðfélagi nú-
tímans. Ertu með? Hafðu sam-
band við einhvem söluaðila
IBM PC, hann kemur þér á
sporið.
Söluumboð fyrir IBM PC einkatölvur :
Gísli J. Johnsen Skrifstofubúnaður sf.,
Smiðjuvegi 8, Kópavogi, sími 73111
Skrifstofuvélar hf. Ottó A. Michelsen,
Hverfisgötu 33, Reykjavík simi 20560
Örtölvutæknihf., Ármúla 38
Reykjavik, sími 687220 =:==.=