Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1985, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1985, Page 36
36 DV. MÁNUDAGUR 25. MARS1985. VERKPALLAR Sala-Leiga Leitið upptýsinga: SJCTUN! 7 -121 REYKJAVlK-SÍMt 29022 FJðflRIN. REYKJAVÍK: AKUREYRI: BORGARNES: VÍÐIGERÐI V-HÚN.: BLÖNDUÓS: SAUÐÁRKRÓKUR: SIGLUFJÖRÐUR: HÚSAVÍK: EGILSTAÐIR: VOPN AFJÖRÐU R: SEYÐISFJÖRÐUR: FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: HÖFN HORNAFIRÐI: 91-31815/686915 96-21715/23515 93-7618 95-1591 95-4350/4568 95-5884/5969 96-71498 96-41940/41594 97-1550 97-3145/3121 97-2312/2204 97-5366/5166 97-8303 interRent KRAFTBLAKKIR ÚTGERÐARMENN Höfum á iagar 400 kg kraftbtokklr m«fl ein* ®ða tveggja spora hjóli. Gott varfl 09 gflflir graUMuakil- mélar. Atlas hf Borganunr 24. simi 26755 SKIPPER ,Allt mögulegt ef viljinn er fyrír hendi' — Tómas Ledin í DV-viðtali Tómas Ledin hélt, sem kunnugt er, tvenna hljómleika í Broadway fyrir skemmstu. DV náöi tali af kapp- anum í tilefni af komu hans hingaö. — Hvað hefur þú verið aö gera aö undanförnu? „Eg hef veriö aö hljóöblanda tvö- falda hljómleikaplötu sem veröur gefin út í apríl. Á henni veröa hljóö- ritanir frá nokkrum hljómleikum sem ég hélt í Svíþjóð í fyrrasumar, mest gömul lög í nýjum útsetning- um.” — Hefur þú komið til íslands áöur? „Nei, aldrei. Eg var nálægt því 1977 en missti því miður af fluginu. Ástæðan fyrir því aö ég kem núna er sú að Jón Ölafsson og Broadway buöu mér hingaö sérstaklega. Ferö mín hingaö er ekki liöur i neinni tón- leikaferð.” — Veistu eitthvaö um íslenska popptónlist? ,,Já, ég hef heyrt um Inter- Mezzo.” Þú meinar Mezzoforte? „Já, einmitt, þaö er alveg þaö sama. Þeim gekk nokkuð vel í Englandi fyrir u.þ.b. ári síöan, var þaö ekki? Svo sá ég íslenska stelpuiiljómsveit í sænska sjónvarpinu fyrir nokkrum árum. Þær voru mjög fríkaðar. Þetta er nú þaö eina sem ég hef heyrt afíslenskritónlist.” Stefnan settá V-Þýskaland — Þú hefur á undanförnum árum reynt aö koma þér á framfæri utan Noröurlandanna. Hefurþaötekist? „Já og nei. Plötur meö mér hafa< verið gefnar út alls staöar í Evrópu en fengið rrúsjafnar viðtökur. Þaö sem viö erum aö einbeita okkur aö núna er markaðurinn í V-Þýska- landi. Eg hef átt nokkur lög á listum þar en hef ekki ennþá komið lagi í fyrsta sæti. Viö höfum að undanfömu fariö þangaö í hljómleikaferöir og komið fram í sjónvarpsþáttum en viö eigum enn eftir aö gera mikiö áöur en hægt veröur aö tala um verulegar vinsældirþar.” Fetað i fótspor ABBA? — Nú er Stig Anderson, umboðs- maöurinn þinn, sá sami og gerði Abba að stórveldi á sínum tíma. Ætl- ar hann aö gera þig aö næstu tónlist- arstjömuSvía áalþjóðamarkaði? „Stig Anderson er ekki umboðs- maöurinn minn, sá heitir Leik Hen- riksson. Stig á hljómplötufyrirtækið sem gefur út plöturnar mínar og sér um þau mál sem snúa aö plötusöl- unni erlendis. En hann aðstoöar mig ekkert við tónlistina. Þú segir næsta tónlistarstjama Svía. Abba var sérstakt tilfelli. Hún var ein besta hljómsveit í heimi á sínum tíma. Það veröur mjög erfitt aöfetaí fótsporþeirra. En miðaðvið þaö sem ég er aö gera í dag, þá hef ég trú á því að ég geti náö langt. Þaö er allt mögulegt ef viljinn er fyrirhendi.” Stjórnar eigin upptökum — Semur þú þitt efni sjálfur? „Já, ég sem allt sjálfur, bæði lög og texta. Ásamt aöstoöarmanni mín- um, Lennard, hef ég líka stjórnaö eigin hljómplötuupptökum seinustu 5 ár.” — H vaö er framundan h já þér ? „Eg stefni aö því aö senda frá mér litla plötu í maí. Síðan ætla ég aö taka mér gott frí og einbeita mér aö því að semja nýtt efni. í framhaldi af því tek ég svo væntanlega upp plötu og reyni að fylgja henni eftir með hljómleikaferö til V-Þýskalands. Þangaö er stutt að fara og ég lít svo á aö gangi mér vel þar þá muni mér einnig ganga vel annars staöar í E vr- ópu.” Ekki frábrugðinn öðrum — Hvað gerir Tómas Ledin svo í frítíma sínum? „Eg er hamingjusamlega giftur og hef nóg aö gera. Svo þykir mér gam- an aö fara á skíði, lesa bækur og horf a á a nnars flokks bíómyndir. ’ ’ — Ertu hrifinn af þeim? „Nei, ekkert sérstaklega. Þaö sem ég meina er aö ég geri bara þaö sem fólk gerir almennt í frítíma sínum. Eg er ekkert frábrugöinn öörum aö þvíleyti.” -ÞJV Bætt aðstaða fyrír sjúklinga og starfsfólk á Borgarspítala 405 Trillumælar Hagstætt verð og greiðsluskilmálar 2 ára ábyrgð Friðrik A. Jónsson h.f. Skipholti 7, Reykjavík, Símar 14135 — 14340. Aðalfundur Félags velunnara Borgarspítalans var haldinn nýlega. Félagsmenn eru nú um 350. Tilgangur félagsins er m.a. aö bæta aöstööu sjúklinga sem njóta þjónustu Borgar- spítalans, stuðla aö auknum skilningi almennings og stjórnvalda á starfsemi Borgarspítalans meö málefnalegri kynningu og umræðu og stuöla aö því aö Borgarspítalinn sé aðlaðandi og vin- sæil vinnustaöur. Félagiö selur minningarspjöld til styrktar starfseminni og eru þau af- greidd í anddyri spítalans og er einnig hægt aö panta þau í síma spítalans, 81200. Félagiö hefur þegar fest kaup á myndbandstæki og spólum sem þaö gaf Borgarspítalanum. Eru mynd- bandasýningar daglega fyrir sjúkling- ana. Þá hafa veriö í athugun kaup á smásjá til nota við nákvæmar skurðað- gerðir. Á döfrnni er aö skreyta ganga og anddyri spítalans meö blómum. Likan af núverandi og fyrirhuguðum byggingum á lóð Borgarspitalans. Lengst til hægri á myndinni er B-álman sem nú er i byggingu. Loks má nefna aö nú á skírdag kemur Lögreglukórinn í heimsókn til aö skemmta sjúklingum og starfsfólki með söng sínum. Útvegun skemmti- krafta er eitt af verkefnum á stefnu- skrá félagsins. Stjóm FVB skipa: Egill Skúli Ingi- bergsson, formaöur, Brynjólfur Jóns- son, Anna Bjamason, Bjarki Elíasson, Björg Einarsdóttir, Hafsteinn Guö- mundsson og Tómas Sveinsson. Tólf manna trúnaðarráð skipa: Axel Jóns- son, Áslaug Boucher, Friðrik Einars- son, Helga Gröndal, Kalla Malmquist, Otto Michelsen, Olafur Þ. Jónsson, Beynir Ármannsson, Sigríöur Lister, Víöir Þorgrímsson, Sigurlín Gunnars- dóttir og Þórir Daníelsson. Endurskoð- endur eru Gerður Hjörleifsdóttir og Gunnlaugur Pétursson. Eftirfarandi ályktun var gerð á aðalfundinum: Aðalfundur Félags velunnara Borgarspítalans skorar á viökomandi stjórnvöld aö draga ekki úr fram- kvæmdahraða viö byggingu B-álmu Borgarspítalans. Félagiö bendir á brýna þörf fyrir þá þjónustu sem ráö- gert er aö veita meö starfsemi B-álm- unnar. -A.Bj. Skeifan 3h - Sími 82670 ÚTSÖLUST AÐIR: ATLABÚÐIN - AKUREVRI VERSL. AXELS SVEINBJÖRNSS. - AKRANESI BYKO - KÓPAVOGI OG HAFNARFIRÐI HÚSPRÝÐI - BORGARNESI JÓN BENEDIKTSSON - HÖFN SKÓBÚÐ SAUÐÁRKRÓKS ÞRÖSTUR MARSELlUSSON - ISAFIRÐI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.