Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1985, Page 50

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1985, Page 50
50 DV. MÁNUDAGUR 25. MARS1985. Þyria Albínu leigð úr landi? Albína Thordarson arkitekt og þyrlu- umboösmaöur íhugar nú aö leigja þyrlu sína úr landi. I samtali viö DV sagði Albína aö ástæöan væri fyrst og fremst sú aö hún sæi ekki fram á næg verkefni fyrir þyrluna hérlendis. Þyrlan TF-FIM er af Hughes-gerö, sams konar og minni þyrla Land- helgisgæslunnar. Hún var keypt ný til Þyrlan TF-FIM á óvenjulegum stað, Heklutindi. Þangað flutti hún skiða- menn vorið 1983. með daglegri mjólkumeyslu Átvítugsaldri hafa beinin ndð fullum vexti og þroska. Engu að síður þurfa þau á kalki að halda því líkaminn getur ekki framleitt það sjálfur til eðlilegs viðhalds á styrk beinanna. Eftir miðjan aldur byrja beinin að tapa kalki sínu og þá eru þeir tvímœlalaust betur settir sem neyttu mjólkur daglega. Hjá þeim verður kalktapið tœpast svo mikið að hœtta sé á alvarlegri beinþynningu og fylgikvillum hennar; viðkvœmum og stökkum beinum sem gróa illa eða skakkt saman, bognu baki, hryggskekkju o.fl. Tvö glös af mjólkurdrykkjum á dag innihalda lágmarks kalkmagn fyrir þennan aldurshóp. Mjólk er örugg vörn í baráttunni gegn beinþynningu. Mjólk í hvert mál Ráðlagður dagskammtur (RDS) afkalkiogmjólk Dagsþörfaf kalkiímg Samsvarandi kalkmagn í mjólk, 2,5 dl glös Böm 1-lOóra 800 3 Unglingar ll-18óra 1200 4 Ungt fólk og fullorðið 800 2-3 Konur eftir tíðahvörf 1200-1500 4-5 Ófrlskarkonurog brjóstmœður 1500 5 Mjólk inniheldur meira af kalkl en aðrar faBðutegundir og auk þess A, Bog D vftamfn, kalfum, magnfum, zlnk og fleiri efnl. Um 99% af kalkinu notar líkaminn til vaxtar og viðhalds beina og tanna. Tœplega 1 % er uppleyst í líkamsvökvum, holdvefjum og frumuhimnum og er það nauðsynlegt m.a. fyrir blóðstorknun, vöðvasamdrótt, hjartastarfsemi og taugaboð. Auk þess er kalkið hluti af ýmsum efnaskiptahvötum. Til þess að líkaminn geti nýtt kalkið þarf hann D vítamfn, en það er einmitt í hœfilegu magni f mjólkinni. Neysla annarra kalkríkra fœðutegunda en mjólkurmatar gefur sjaldnast meira en 300 mg af kalki ó dag en það er langt undir lógmarks þörf. Úr mjólk fœst miklu meira kalk, t.d. 800 mg úr um það bil þremur glösum og er auk þess auðnýttara en í flestum öðrum fœðutegundum. MJÓLKURDAGSNEFND landsins áriö 1983 og hefur síöan veriö eina þyrlan á Islandi í eigu einkaaðila. Albína hefur aöallega leigt þyrluna til ýmissa verkefna á hálendinu, einkum mælingavinnu. Erlendir aöilar hafa komiö til lands- ins aö skoða þyrluna. Meðal annars kemur til greina aö leigja þyrluna til Svíþjóöar. -KMU. Bjórinn úr nefnd eftir páskaleyfi Bjórfrumvarpið verður væntan- lega afgreitt frá allsherjarnefnd neðri deildar Alþingis í síöasta lagi strax eftir páska og ættí þá aö geta komið til annarrar umræöu í þing- inu. Meirihluti er í nefndinni fyrir að afgreiöa frumvarpiö en búist er viö að nefndin muni klofna i afstööu til málsins. Gert er ráö fyrir að nefndin setji ákvæöi í frumvarpiö um aö bjór skuli aöeins seldur í áfengisverslun- um og aö hámarksstyrkleiki verði á bilinu 4,6 til 5%. Einnig veröa settar reglur um aölögunartíma fyrir ís- lenska framleiöendur. Allar líkur eru taldar á að bjór- frumvarpið njóti stuönings meiri- hluta þingmanna eins og fram hefur komiö í skoðanakönnun sem DV hef- ur gert meðal þingmanna. OEF Ríkisbankamir auglýstufyrir 25 milljónir’84 Rikisbankamir, Landsbankinn, Búnaöarbankinn og Otvegsbankinn, auglýstu í fjölmiðlum fyrir tæpar 25 milljónir króna á árinu 1984, að því er fram kemur í svari viöskiptaráöherra við fyrirspurn Kjartans Jóhannssonar sem lagt var fram á Alþingi. Mestur hluti þessa auglýsinga- kostnaðar hefur runnið til Ríkisút- varpsins eöa um 3,7 milljónir króna samanlagt frá ríkisbönkunum. Auglýsingakostnaöur þeirra í Morgun- blaöinu nam 1,3 milljónum og i DV 715 þúsund krónum, í NT auglýstu þeir fyrir 394 þúsund og í Þjóðviljanum fyrir344þúsund. I fyrirspurninni var óskaö eftir svari um auglýsingakostnaö allra viöskipta- bankanna en einkabankarnir neituðu aö gefa umbeðnar upplýsingar. OEF Vímuefni, hvaðerþað? Foreldrar þurfa nú ekki lengur að fara I grafgötur um hvaöa vímuefni eru á markaði hérlendis fyrir börn þeirra. Æskulýösráö og Félagsmála- stofnun Reykjavíkur hafa nýlega fengiö úr prentun tvo bæklinga sem báöir nefnast „Vímuefni, hvaö er þaö?” Er annar ætlaöur foreldrum, hinn unglingum. I bæklingunum er fjallaö á lipran og léttan hátt um alls konar vímuefni, eöli þeirra, áhrif og ekki síst afleiðingar neyslu. Bæklingunum hefur enn ekki verið dreift.tíminn er ekki réttur nú. Páskaleyfi fer í hönd og síðan próf í skólum þannig aö lítill tími y röi til þess aðfjallauminnihaldiðviðþásem þaö snertir,” sagöi Omar Einarsson, fram- kvæmdastjóri Æskulýðsráös, en þaö heitir nú Iþrótta- og tómstundaráð. Þá hefur borgarstjóm Reykjavíkur ákveðið að ráðist verði í gerð kvik- myndar um fíkniefni og hættuna er þeim fylgir. í undirbúningsnefnd hafa verið skipaðir fulltrúar frá Félags- málaráöi, Iþrótta- og tómstundaráöi, Fræösluráöi, Heilbrigöisráöi og borgarráði. -EIR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.