Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1985, Blaðsíða 3
DV. LAUGARDAGUR 9. NOVEMBER1985.
3
„Egerekki
að hætta
rekstrinum”
- segir Pálmi Lórensson,
hóteleigandi
íVestmannaeyjum
„Það koma erfiöir tímar hjá öllum,
sem standa í rekstri fyrirtækja.
Rigningarsumarið 1984 setti strik í
reikninginn hjá mér. Allir erfiðleikar
eru úr sögunni og ég mun halda
ótrauöur áfram rekstri mínum hér í
Eyjum,” sagöi Pálmi Lórensson, eig-
andi Hótel Gestgjafans og Skansins í
Vestmannaeyjum.
1 nýjasta hefti Lögbirtingablaðsins
er auglýst í þriðja og síöasta sinn upp-
boð á eigum Pálma. „Nei, það verður
ekkert boðið upp hér. Ég er ekki að
hætta,” sagði Pálmi.
-sos.
Stökkva af
Úlfarsfelli
— ífirmakeppni
Svifdrekafélagsins
Fullhugar úr Svifdrekafélagi
Reykjavíkur efna í dag til firmakeppni
á Ulfarsfelli. Af hálfu félagsins ætla
ekki færri en fimmtán kappar aö fljúga
í nafni ýmissa fyrirtækja hér suðvest-
anlands. Svifdrekafélagið hefur lagt
veg upp Ulfarsfellið til að létta fé-
lögunum og hægfara fjallgöngu-
mönnum sporin. Er keppnin haldin til
að afla f jár fyrir kostnaði við vegar-
gerðina. Fyrstu keppendurnir steypa
sér til flugs um kl. 14.00. og lenda eftir
tilsettan tíma á útvöldum stað nærri
Korpúlfsstöðum.
-GK.
Landsfundur
Kvennalistans
Landsfundur Samtaka um kvenna-
lista hefst í dag.
Fundurinn stendur yfir í dag og á
morgun. Fjölmörg mál eru á dagskrá
fundarins. Meðal mála má nefna:
. menntamál, efnahagsmál, skólamál,
heilbrigðismál og launamál.
Landsfundurinn verður haldinn að
Gerðubergi 9 í Breiðholti og er opinn
öllum konum sem áhuga hafa á
störfum Kvennalistans.
-APH.
fb
BÍLASÝNING J
---------->—>---'ð5'<5t
laugardag
og sunnudag
kl. 10-16
1986
Fólksbílar og Sport
Nú fáanlegir með 5 gíra kassa
Afar hagstæð greiðslukjör
Kaffiveitingar - Gosdrykkir frá Sanitas
og blöðrur fyrir börnin.
(PEPSIJ
Mikið úrval af notuðum bílum til sýnis og sölu
< BIFREIÐAR OG LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
iiy iíj SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEDLD: 31236