Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1985, Blaðsíða 26
26
DV. LAUGARDAGUR 9. NOVEMBER1985.
Áskorendamótinu í Montpellier lokið:
STEFNIR í SOVÉSKA
HEIMSMEISTARAKEPPNI
Svo gæti fariö aö sex sterkustu
skákmenn heims, sem munu kljást
um heimsmeistaratitilinn á næsta ári,
verði allir Sovétmenn. A áskorenda-
mótinu í Montpellier áttu Sovétmenn
sjö fulltrúa af sextán keppendum og
þrír þeirra tryggöu sér þátttökurétt í
áskorendaeinvígjunum sem háð
veröa á næsta ári. Sá f jóröi, Mikhail
Tal, þarf að tefla til úrslita viö Hol-
lendinginn Jan Timman um það hvor
kemst áfram. Enn er því hart barist
um að komast upp aö fótskör meist-
aranna sem nú tefla í Moskvu. Ef
Timman fellur úr leik veröur heims-
meistarakeppnin alsovésk.
Þeir heppnu í Montpellier voru
Arthur Jusupov, Andrei Sokolov og
Rafael Vaganjan, sem skaust eins og
elding upp mótstöfluna í síðustu um-
feröunum. Hann stal örugglega sæt-
inu af Timman og Tal sem lengst af
voru meðal þriggja efstu. Er þrjár
umferðir voru eftir var Vaganjan
t.a.m. skráöur fyrir neöan miöju en
hann átti tvær biöskákir til góða. Þá
var sett á fulla ferö. Hann vann
Seirawan í þriöju síöustu umferð og
Spraggett og Nogueiras þvældust
heldur ekki um of fyrir honum í síö-
ustu umferðunum.
Vaganjan sigraöi einmitt svo
glæsilega á millisvæðamótinu í Biel í
sumar þar sem Margeir Pétursson
var meöal þátttakenda. Hann tefldi
leikandi létt á mótinu og svo var
einnig um annan sovéskan kepp-
anda, Sokolov, sem var yngstur
allra, 22ja ára gamall eins og Kasp-
arov. Sokolov kom á óvart með
frammistöðu sinni í Biel og ekki síö-
ur í Montpellier. Almennt var álitiö
aö mótiö í Biel heföi veriö best skipað
millisvæöamótanna þriggja og
frammistaða Vaganjans og Sokolovs
í Montpellier staöfestir þá skoöun.
Annars var Arthur Jusupov maöur
áskorendamótsins. Hann tefldi
traust og fágað og með svörtu
mönnunum geröi hann sig ánægöan
meö jafntefli. Fyrstu vikuna hélt
hann sig í hæfilegri fjarlægð en um
miöbik mótsins tók hann undir sig
stökk og var orðinn efstur í lokin.
Hann tryggði sig með tveimur jafn-
teflum í síöustu skákunum.
Þessi varð lokastaðan á áskor-
endamótinu:
1.-3.
Jusupov, Sokolov, Vaganjan 9 v.
4.-5.
Timman og Tal 81/2 v.
6.-7.
Spassky og Beljavsky 8 v.
8.-9.
Smyslov og Tsjernín 71/2 v.
10.-12.
Portisch, Short og Seirawan 7 v.
13.-14.
Kortsnoj og Ribli 61/2 v.
15.
Nogueiras6 v.
Skák
Jón L. Arnason
16.
Spraggett 5 v.
Mikhail Tal tefldi margar
skemmtilegar skákir á mótinu en án
efa er hann ánægðastur meö skák
sína við Kortsnoj í 8. umferð. Er þeir
hafa teflt hefur Kortsnoj langoftast
farið með sigur af hóhni, eins og
hann sjái í gegnum „Tal-flétturnar”.
Fyrst tefldu þeir saman á unglinga-
móti í Leningrad 1954 og þá fór jafn-
tefli en síðan fór aö syrta í álinn. Eft-
ir tólf innbyrðis skákir haföi sjö lokiö
með jafntefli en Kortsnoj unnið
fimm. I þrettándu tilraun vann Tal
loks, á áskorendamótinu í Curacao
1962. Á tuttugu ára tímabili frá 1954
tefldu þeir samtals 35 skákir,
Kortsnoj vann 12, jafntefli varö í 21
skák en Tal vann aöeins tvær! Seinni
skákina vann hann í áskorendaein-
víginu við Kortsnoj 1968 og þá hafið
þiö það.
Stöðumynd úr skákinni hefur áöur
birst í DV en hér er skákin öll.
Hvítt: Mikhail Tal
Svart: ViktorKortsnoj
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bg5 e6 7. Dd2 Be7 8.
0—0—0 0—0 9. Rb3a5
Vinsælasti leikurinn í þessu af-
brigöi eftir aö Kasparov beitti hon-
um gegn Karpov í einvíginu enda-
Bandaríkjamenn unnu Austurríkismenn í
úrslitaleik um heimsmeistaratitilinn
Eins og kunnugt er af fréttum þá
sigruöu Bandaríkjamenn Austurríkis-
menn nokkuð auðveldlega í 176 spila
úrslitaleik meö 399 impum gegn 324.
Nýju heimsmeistararnir eru Hamm-
an og Wolff, Martel og Stansby,
Pender og Ross. Fyrirliöi án spila-
mennsku var Alfred Scheinwold.
Bandaríkjamennirnir voru hætt
komnir í undanleiknum viö Brasilíu
sem þeir sigruöu á síðasta spilihu.
Austurríkismenn sigruöu hins vegar
ísraelsmennina nokkuö örugglega í
hinum úrslitaleiknum.
Bandaríkjamennirnir tóku síöan
fljótt forystu í úrslitaleiknum og héldu
henni allan tímann.
I kvennaflokknum sigruöu
Englendingar meö nokkrum yfir-
burðum bandarísku ólympíumeistar-
ana,eöa 323gegn213.
Hér er slemma frá undanúrslitunum
sem olli sumum meistaranna erfiðleik-
Vestur gefur/allir utan hættu.
W'. i i n
A K10854
v’ KG1098
O 3
+ 63
Nhiiiiuh
A ADG9
A
•> K852
* AG97
Aimim
* 62
765432
Á64
* D2
.'H'IIIIK
* 73
v D
DG1097
* K10854
I leik Israel og Austurríkis gengu
sagnir á þessa leiö með Israel n—s:
Vestur
2T
pass
pass
Noröur
2S
5H
pass
Austur
4H
pass
pass
Suður
4G
6T
Tveggja tígla opnunin lofaöi 8—14
punktum með fimm spöðum og a.m.k.
fjórum hjörtum. Tveir spaðar hjá
noröri voru sterkt úttektardobl.
Eins og sést eru sex tíglar mjög góö
slemma, allavega betri en sex lauf sem
tapastmeötígli út.
Ahangendur Israelsmanna fögnuöu
samt of snemma því sagnhafi svínaði
laufi eftir að hafa náð trompásnum út.
Hann geröi sem sagt ráð fyrir aö
vestur hefði byrjað með skiptinguna 5-
4-1-3.
Á hinu borðinu spiluöu Austurríkis-
mennimir fimm lauf og græddu 10
impa í staö þess að tapa 11.
I kvennaflokknum náðu bandarísku
konumar sex tíglum gegn Taiwan og
Bandarísku heimsmeistararnir i bridge.
græddu 11 impa meö því aö taka laufið
beint en Englendingar komust í sex
lauf gegn Frökkum sem þær unnu
þegar tígull kom ekki út. Það var samt
aðeins 6 impa gróði því ensku
konurnar á hinu borðinu fórnuöu í sex
hjörtu og töpuöu 700.
Frá Bridgesambandi Reykja-
víkur:
Dagskrá Bridgesambands Reykja-
víkur fyrir starfsáriö 1985—1986
veröurþannig:
Undanrásir fyrir Reykjavíkurmótiö
í tvímenningi veröa:
Sunnudaginn 24. nóvember kl. 13 og
19.30 (tværumferöir).
Sunnudaginn 1. desember kl. 13 (ein
umferð).
Urslitakeppnin (28 para barómeter)
veröur svo helgina 14.—15. desember
(ein umferö á laugardegi og tvær um-
ferðirásunnudegi).
Undanrásir fyrir Reykjavíkurmótiö
í sveitakeppni veröa:
1. dagur: Mánudaginn 6. janúar í
Domus Medica kl. 19.30.
2. dagur: Miövikudaginn 8. janúar í
Hreyfilshúsinukl. 19.30.
3. dagur: Fimmtudaginn 9. janúar í
Domus Medica kl. 19.30.
4. dagur: Sunnudagur 12. januar í
Hreyfilshúsinu kl. 13.00.
5. dagur: Miðvikudaginn 15. janúar í
Hreyfilshúsinukl. 19.30.
6. dagur: Sunnudaginn 26. janúar í
Hreyfilshúsinu kl. 13.00.
7. dagur: Mánudaginn 27. janúar í
Domus Medica kl. 19.30.
8. dagur: Laugardaginn 1. febrúar í
Hreyfilshúsinu kl. 13.00.
9. dagur: Sunnudaginn 2. febrúar í
Hreyfilshúsinu kl. 13.00.
Spilaöar verða 17—19 umferöir (eftir
þátttöku), 16 spila leikir allir v/alla. 6
efstu sveitir úr undanrásum, komast
síöan í úrslitakeppni Reykjavíkur-
mótsins sem verður helgina 8.-9.
febrúar (sennilega á Hótel Hofi
v/Rauðarárstíg). Þar veröa spilaöir
5X16 spila leikir, allir v/alla. Leikir
allra sveitanna í undanrásum munu
gilda sem fyrri hálfleikur, þannig aö í
raun veröa spiluð 32 spil milli sveita í
úrslitum (íútreikning).
Reykjavíkurmótiö er jafnframt und-
ankeppni fyrir Islandsmótiö í sveita-
keppni 1986 og er vakin athygli á því aö
hlutur Reykjavíkur verður mjög stór
fyrir næsta landsmót. Munu vænt-
anlega 13—14 sveitir (af 24) eiga rétt á
þátttöku til Islandsmóts ef miöaö er
við þær reglur sem gilda til útreiknings
á „kvóta” hvers svæðasambands.
Bridgesamband Reykjavíkur
ítrekar að þessir gefnu spiladagar
standa. Þeim verður ekki breytt.
Skráningarlisti til þátttöku mun liggja
frammi í öllum bridgefélögunum í
Reykjavík.
Eftirtaldar bækur fást
hjá Bridgesambandi
íslands;
Simplified Standard American...Don Oakie,
kr.650
Completa Book of Balancing...M. Lawrence,
kr. 650
Two over One...Max Hardy, kr. 650
StandardBidding...W. Root, kr. 400
AU about Acol...Cohen/Lederer, kr. 450
Bermuda BowlStocholm 1983...kr. 1.000
The Acol System of Bidding...Reese/Dormer,
kr. 500
OmarSharif LifeinBridge...Formáli: Reese,
kr. 500
Complete Book of Patience...Morehead, kr.
250
First Book of Bridge...A. Sheinwould, kr. 200
Lebensohl Convention...M. Lawrence, kr. 200
Bridge Is My Game... Ch. Goren, kr. 300
Bridge the Modem Game...Reese/Bird, kr.
350
Bridge Course Complete...V. Mollo, kr. 350
Point Count Bidding...Ch. Goren, kr. 200
WinningDeclarer Play...D. Hayden-Truscott,
kr.300
BridgeHumour...Kantar, kr. 300
SvínaðíSeattle...Guðm. Sv. Herm., kr. 350
Hringsvíningar-hræringsþvinganir. Guðm.
Sv. Herm, kr. 350
Stytt leið til vinningsbridge (Sheinwould).
þýð. Sigurj. Tryggvason, kr. 300
IJr botni í topp (Novrup), þýð: Sigurj.
Tryggvason, kr. 300
öryggisspilamennska í bridge...
Reese/Trezel, þýð: EinarGuðm., kr. 200
Acol-bókin á íslensku, þýð. Viðar Jónsson
(Reese/Dormer), kr. 650
Spilaðu bridge við mig...Reese, þýð. Stefán
Guðjohnsen, kr. 350
Kennslubók í keppnisbridge (úr sænsku
kennslukerfi), þýð. Kristján Jónasson, kr. 300
Alþjóðalög í bridge, þýð. Jakob R. Möller, kr.
200
Roman Key Card Blackwood (ljósrit)... Kant-
ar, kr. 100
Power Precision á íslensku, þýð. Július Sigur-
jónsson (ljósrit), kr. 450
Precision Club á íslensku (C.C. Wei/Goren),
þýð. Olfar Guðmundsson, kr. 300 (ljósrit)
Auk ofangreindra bókatitla eru til sölu hjá
Bridgesambandinu sagnabox (kr. 2.200 á
borðið) og lausir miðar í boxin (hver pakki á
1.200 kr.)
Skrifstofan sendir hvert á land sem er í
póstkröfu. Einnig má benda bókasöfnum á að
ýmsar þær bækur, sem taldar hafa verið hér
að ofan, eru hentugar til f jöldaútláns.
Bridgesamband Islands er til húsa að
Laugavegi 28,3. hæð, sími 91-18350 (Olafur).
Opið hús
22 pör mættu til leiks í opnu húsi sl.
laugardag í Borgartúni 18. Spilaöur
var tvímenningur og uröu úrslit þessi
(efstu pör):
N/S: Stig:
Ragnar Björnss,—Þórarinn Ámas. 292
Guðm. Péturss.—Magnús Torfas. 248
Hermann Erlingss,—Eymundur Sig-
urðss. 229
Jón I. Björnss.—Guöjón Jónss. 220
A/V: Stig:
Guðjón Jónss,—Friörik Jónss. 263
Baldur Amas.-SveinnSigurgeirss. 263
Albert Þorst.-Siguröur Emilss. 241
Guðl. Sveinss,—Róbert Sigurjónss. 228
Meðalskor 216 stig í báðum áttum.
Enn á ný er minnt á það að regluleg
spilamennska hefst kl. 13.30 (hálftvö).
öllu spilaáhugafólki, svo og öörum er
gaman hafa af leiknum, er velkomið aö
vera með í afslappaðri og rólegri
keppni.
Opna Samvinnuferðamótið
á Húsavík
Utlit er fyrir að hátt í 50 pör taki þátt
í 1. opna Samvinnuferða/Landsýn mót-
inu sem veröur um þessa helgi á Húsa-
vík. Er þaö mjög góð þátttaka, miöaö
viö allar aöstæður. Spilamennska hefst
kl. 13 á laugardeginum og verða spilaö-
ar tvær umferðir þá um daginn. Á
sunnudeginum veröur spiluö ein um-
ferö. Mótiö veröur tölvureiknað og sér
Vigfús Pálsson um þá hlið mála.
Keppnisstjó>-i er Ölafur Lárusson.
Frá Bridgedeild
Skagfirðinga Rvk
Eftir 6 umferöir í aöalsveitakeppni
deildarinnar er staöa efstu sveita oröin
þessi:
Stig:
1. s veit B j örns Hermannssonar 125
2. sveit Magnúsar Torfasonar 114
3. sveit H jálmars Pálssonar 101
4. sveitSigmars Jónssonar 98
5. sveit Siguröar Ámundasonar 97
6. sveit Hildar Helgadóttur 93
7. sveit Bernódusar Kristinssonar 90
8. sveit G uörúnar Hinriksdóttur 87
Ný stjórn var nýlega kjörin hjá
deildinni á almennum félagsfundi fyrir
skömmu. I henni eiga sæti: Sigmar
Jónsson formaöur, Karólína Sveins-
dóttir, Guöni Kolbeinsson, Hjálmar
Pálsson, Haukur Hannesson og Olafur
Lárusson.
Bridgedeild Barðstrendinga-
félagsins
Mánudaginn 4. nóvember hófst 5
kvölda hraðsveitakeppni félagsins (15
sveitir).
Staöa8efstusveita:
stig
1. Ragnar Þorsteinsson 572
2. Sigurðurisaksson 531
3. Viðar Guðmundsson 530
4. Daði Björnsson 525
5. Ágústa Jónsdóttir 521
6. Arnór Ólafsson 521
7. JónCarlsson 515
8. AsgeirBjarnason 515
Mánudaginn 11. nóvember verður
spiluö 2. umferð. Spilaö er í Síðumúla
25 og hefst kepprii stundvíslega kl.
19.30.