Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1985, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1985, Blaðsíða 8
8 DV. LAUGARDAGUR 9. NOVEMBER1985. Frjáist.óháÖ dagblað U gáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaðurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkyaemdastjóriog útgáfustjórij! HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÚNAS KRISTJAnSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlASSNÆLAND JÖNSSON Fréttastjótar: JÓNAS HARALDSSON og OSKAR MAGNÚSSON Auglýsingasfjótar: PALLSTEFANSSON og INGÚLFUR P. STEINSSON Ritstjórn: SÍÐUMÚLA12-14,SlMI 686611 Auglýsingar: SlÐUMÚLA33, SlMI 27022 Afgreiðsla.áskriftir.smáauglýsingarogskrifstofa: ÞVERHOLTI 11,SlMI 27022 Sfmi ritstjórnar: 686611 Setning,umbrot,mynda- og plötugerð: HILMIRHF., SIÐUMÚLA12 Prentun:ÁRVAKUR HF.-Askriftarverðá mánuði 400kr. Verð f lausasölu virka daga 40 kr. - Helgarblaö 45 kr. Rataö f freðfiskraunir Frystiiðnaöur okkar hefur lent í miklum vanda. Eftir að hafa í nokkra áratugi verið einn af helztu hornsteinum þjóðfélagsins er hann nú skyndilega orðinn lítt eða ekki hæfur til samkeppni um hráefni og vinnuafl. Hann er að hrata í stöðu hins hefðbundna landbúnaðar. Nú er ekki lengur gott fyrir útgerð að vera í tengslum við frystihús. Þau skip standa sig fjárhagslega bezt, sem geta annaðhvort fryst sjálf mn borð eða selt fiskinn erlendum keppinautum frystihúsanna. Þetta hefur komið skýrt fram einmitt núna í ár. Dæmi eru um, að framleiðsluverðmæti á hvern skip- ver ja á frystitogara komist upp í sjö milljónir króna á ári. Hins vegar er framleiðsluverðmæti á hvern skipverja á hefðbundnum togara og hvern starfsmann í frystihúsi samanlagt ekki nema um hálf þriðja milljón. Hinir togararnir, sem ekki hafa aðstöðu til að frysta um borð, geta í mörgum tilvikum annaðhvort siglt með afl- ann eða selt hann um borð í gáma. Gámarnir eru síðan fluttir með kaupskipum og jafnvel flugvélum til útlanda, þar sem innihaldið er verðlagt á frjálsum markaði. Á þennan hátt hafa skipin losnað við að selja aflann á um og innan við 20 krónur kílóið til íslenzkra frystihúsa. Þau hafa að meðaltali fengið 47 krónur fyrir hann í út- löndum. Og menn hafa horft á bezta fiskinn seljast á 80 krónur, sem er fjórfalt innlenda verðið. Vandræði frystingarinnar eru þar með ekki fullrakin. Ofan á fallbaráttuna um hráefnið bætist fallbaráttan um vinnuaflið. Frystihúsin eru að verða óvinsælir vinnustað- ir, sem borga lágt kaup og bjóða slæma vinnuaðstöðu, en kref jast mikilla afkasta við færiböndin. I sumar greiddu íslenzk frystihús 126 króna tímakaup, en dönsk greiddu 260 krónur eða tvöfalt meira. Ljóst er, að þetta kaup stuðlar lítt aö góðum lífskjörum í landinu, enda gengur það eingöngu vegna þess, að víða um land er fiskvinnsla eini atvinnukostur fólks. Við þessar hörmulegu aðstæður er eðlilegt, að spurt sé, hvort frystingin sé orðin úrelt atvinnugrein eöa hvort finna megi einhverjar skýringar, sem geti leitt til gagn- aðgerða og lækninga. Þetta er mjög brýnt, til dæmis vegna atvinnuástandsins í mörgum sjávarplássum. Tómt mál er að tala um hömlur við gámafiski og ann- arri siglingu með afla. Svokölluð vinnsla í landi er hreint og klárt rugl, ef hún eykur ekki verðmæti hráefnisins. Og staðreyndin er einfaldlega sú, að góður ferskfiskur er miklu verðmætari vara en freðfiskur. Nokkrar vonir eru bundnar við endurfrystingu á afla, sem þegar hefur verið frystur um borð í togara. Slíkan afla er hægt að taka úr frystigeymslum eftir hendinni og nýta í tiltölulega dýra framleiðslu, ef rétt reynist, að fiskurinn tapi ekki umtalsverðum gæðum. Frystiiðnaðurinn hefur hingað til einblínt á færibanda- framleiðslu á tiltölulega ódýrum fiski handa banda- rískum skólum, sjúkrahúsum og fangelsum. Menn verða hissa, þegar japanskir kaupendur biðja um fisk með haus og sporði og vilja sjá tálkn og augu eins og íslenzkir neytendur. Ef frystiiðnaðurinn getur fært sig nær sérhæfðri fram- leiðslu handa kröfuhörðum og dýrum markaði, er hugsanlegt, að hann nái sér upp og geti á ný hafið sam- keppni um hráefni og vinnuafl. Þetta verður að reyna, því að þjóðin telur sig ekki hafa efni á öðrum ómaga við hlið hins hefðbundna landbúnaðar. Jónas Kristjánsson. Úr annarri Eins og ég hef áður sagt £rá sit ég reglulega fundi með nokkrum vel meinandi, lífsreyndum mönnum, þar sem við leggjum á ráðin um hvað betur má fara í þjóðfélaginu. Ég held ekki aö ég ljóstri upp neinu leyndar- máli þegar ég segi að það er margt sem betur mætti fara í íslensku þjóð- félagi, t.d. ber okkur öllum saman um að betra væri að Steingrímur færi. En það verður ekki á allt kosið, eins og virtasti meðlimurinn sagði. Það liggur í augum uppi að þar sem þjóðfélagsástandið er svo alvar- legt, sem raun ber vitni, skortir okkur ekki umræðuefni. Okkur kem- ur saman um það á hverjum fundi að við þyrftum að funda mun oftar. En þess er enginn kostur. Fundarmenn eru flestir önnum hlaðnir menn, drif- fjaðrir íslensks efnahagslífs, slíkt sem það nú er. Virtasti meðlimurinn sagði reyndar einu sinni að eins og ís- lenskt efnahagslif væri þyrfti engum að koma á óvart að íslenskir kaup- sýslumenn tryðu flestir á líf eftir dauðann. — Þeir meina auövitaö efnahagslíf, sagði hann og roðnaði ei- lítið, meðan ístran og undirhökurnar titruðu. Virtasti meðlimurinn er ekki virt- asti meðlimurinn að ástæðulausu. Fundarmenn eru allir lífsreyndir menn sem lagt hafa gjörva hönd á margar krónurnar um æfina. Mennt- unarstig þeirra er mismunandi. Sumir hafa allan sinn lærdóm af reynslunni, eins og aldraöur höfðingi einn sem hætti í barnaskóla til þess að komast í Bretavinnuna á sinni tíð, komst svo yfir vörubíl, ónýtan, sem hann reyndi aldrei að aka en seldi hins vegar fjórum sinnum sama dag- inn og lagði þar með grundvöllinn að auðsöfnun sinni. Annar fundargestur lauk stúdents- prófi og hóf nám í guðfræði. Þegar hann fór að vinna í frystihúsi að sumri til að fjármagna námið kallaði frystihússeigandinn hann á fund og spurði hvort guðfræðineminn treysti sér ekki til þess að kveikja í fyrirtækinu. Bæði væri kominn tími til að endurnýja tækjakostinn og auk þess væru skattyfirvöld að gera sig líkleg til að skoöa bókhaldið — og þú verður að sjá til þess að skrifstof- urnar brenni líka. Guðfræðineminn féllst á að sjá um þetta viðkvæma mál og í stystu máli sagt fékk hann orð á sig fyrir að vera sérlega lipur brennuvargur og stálheiöarlegur áð auki, sem viðskiptavinum hans á ýmsum tímum þótti ekki verra að vita til. En náminu er enn ólokið. Ólafur B. Guðnason En virtasti meðlimurinn hefur komiö víðar við en allir aðrir fundar- menn til samans. Einskis manns nafn í samanlagðri Islandssögunni hefur verið nefnt í jafnmörgum gjaldþrotamálum, einskis manns nafn jafnoft verið hvíslað á göngum Skattstofunnar. Engar nýjungar um' árabil hafa verið reyndar í iðnfram- leiðslu svo að hann hafi ekki átt hlut aö máli og enginn boriö vonbrigðin sem fylgdu óhjákvæmilegri mislukk- un og gjaldþrotaskiptum slíkra fyrir- tækja jafnkarimannlega. Og jafnvel í þessum félagsskap þrautreyndra framkvæmdamanna talaði hann um mismunandi löglega fjármagnsút- vegun eins og páfinn úr sæti sínu. Það sem virtasti meðlimurinn sagði um þau mál var óumdeilanlega rétt, eins og opinberaður sannleikur. Og á síöasta fundi ræddi hann ein- mitt peningamál meðan aðrir fund- argestir þögöu lotningarfullir og hlustuöu. — Uppgötvun dagsins er okur! Nú er öllum gert kunnugt að til séu menn hér sem lána fé gegn 200% vöxtum á ári! Við megum búast við að næst fari menn að hneykslast á því að aðdráttarafl jarðar valdi ótal beinbrotum á ári hverju! — Hafa þessir menn aldrei lesið Biblíuna? Þekkja þeir ekki dæmisög- una um manninn sem ávaxtaöi sitt pund? — Ef ég gæti ávaxtaö öll mín pund væri ég ríkur nú, ríkari en ég er, bætti hann við og ístran titraði létt meðan viðstaddir tístu innilega en þó af fullri kurteisi. En virtasti meðlimurinn lætur gamansemi aldrei keyra úr hófi og sneri sér að efninu aftur, eins og fok- reiður spámaöur úr Gamla testa- mentinu. — Það er einkennandi fyrir stjórn- málamenn að þeir sjá aldrei samhengið í hlutunum. Það er kannski eðlilegt. Ef samhengi er milli hlutanna verða menn aö hugsa. Stjómmálamönnum finnst auðveld- ara að líta á hvern atburö sem ein- angraða katastrófu því þá geta þeir horft á álengdar og lýst þungum áhyggjum sínum. En ef menn tengja nú saman tvo hluti má sjá aö lausnimar eru oft fyr- ir hendi. Lítum á efnahagsvandann! Þegar hann er skoðaður fordóma- laust og mér liggur við að segja vís- indalega er það deginum ljósara að undirrót hans er peningaskortur. Ef menn ættu peninga gætu þeir keypt og þá væri selt, þá gætu menn byggt og þá gætu menn f járfest. Nú vilja menn taka hér upp her- gagnaframleiðslu! Það er nú pólitísk hugmynd í meira lagi! Þegar grjót- kast varð úrelt hernaðaraðferð hurfu möguleikar fslendinga á sviði her- gagnaframleiöslu. Svo ráðast menn gegn hávaxtalán- um. Þó er það ljóst að þar sem efna- hagsvandi okkar stafar af peninga- leysi eru okurlán besta leiðin til að útvega peninga! Það er í hávaxta- lánum sem vaxtarbroddur íslensks viðskiptalífs er um þessar mundir! Ríkið ætti að notfæra sér það og fá þessa framtakssömu menn til þess að sjá t.d. um lán til íbúöakaupa og bygginga frekar en að ofsækja þá og hrekkja á allan hátt! Við stóðum upp og klöppuðum. Al- mennum lesendum kann að finnast þetta furðuleg hagfræði en við fund- armenn vitum að viðskiptaheimur- inn er að sumu leyti í annarri vídd en hinn raunverulegi heimur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.