Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1985, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1985, Síða 11
DV. LAUGARDAGUR 9. NOVEMBER1985. 11 Sjöfn Haraldsdóttir - komin heim með leirinn sinn. Tonnaf dönskum leir Sjöfn Haraldsdóttir listakona er komin heim til Islands með tonn af leir meðferðis og sýnir nú í Gallerí Borg. Sjöfn er búsett í Kaupmannahöfn. Þar hefur hún góða vinnustofu nærri miðborginni og kyndir leirbrennslu- ofninn frá morgni til kvölds. „Leirinn er lifandi efni, næstum óútreiknanlegt," sagði hún í viðtali. Og hið óútreiknanlega efni gerði henni þann greiða að hanga saman í heilu lagi í lest flutningaskipsins sem flutti sýningu hennar heim. „Ég bý í Danmörku en vil halda sambandi við ísland, helst vildi ég búa í báðum löndunum. En ég kann vel við Danmörku og Dani - loftslag- ið einnig. Mér líður illa í kulda og myrkri. Þegar kalt er vil ég helst liggja í dvala. Eiginlega vildi ég búa þar sem er enn hlýrra en í Danmörku, einhvers staðar sunnar. Kannski læt ég verða afþví.“ Leirlistin tímafrek Undanfarin ár hefur Sjöfn unnið að gerð veggmynda fyrir SDS, sam- band danskra sparisjóða. Það var verkefni sem hún fékk eftir að hafa sigrað í samkeppni sem sparisjóðirn- ir gengust fyrir. í kjölfar þeirrar keppni kemur svo verkefni sem hún vinnur að núna: lágmynd og vegg- skreytingar fyrir sjúkrahúsið i Stykkishólmi. „Ég gaf sjúkrahúsinu mynd í minn- ingu ömmu minnar sem bjó í Stykkis- hólmi. Hún var óvenjusterk kona, átti 15 börn og féll aldrei verk úr hendi. í kjölfar þeirrar gjafar fékk ég það verkefni að vinna veggskreyt- ingar i sjúkrahúsið. Það verður árs- vinna.“ Sjöfn segir að leirinn sé erfitt efni að vinna fyrir „litla stúlku“ - en að líkaminn stælist við að lyfta mynd- unum inn í og út úr ofninum. Og svo grípur hún þungt leirfatið og sveiflar upp á höfuð sér fyrir ljósmyndarann. Ekki munar hana heldur um að rölta yfir Austurstrætið með 10 kg mynd undir hendinni. Leirburð í Austur- stræti köllum við myndina. Sjöfn er sennilega ekki ein um að hafa stund- að þar leirburð. -GG Veistþú HVAÐ REYKELSI ER? ] Þaö rekur burt illa anda og færir friö og ró inn á heimilið. | Munið að það er í Gjafahúsinu sem þið fáið rétta reykelsið og það ódýrasta í bænum. Yfir 50 ilmtegundir, bæði stangir og toppar. Hjá okkur eruð þið alltaf velkomin. Sendu«'’P^Sallt tkröfu uffl lam GONfAiAÚste Skólavörðustíg 8, sími 18525 Ath. Rainy Day Friends á möguleika á óskarsverðlaunum við næstu úthlutun. Þessi mynd verður að fá óskarsverðlaun. Spennandi mynd með götuslagsmálum, slegist til að geta lif- að. Striðið fer fram á götunni, í fangelsinu og á sjúkrahúsinu. ESAI MORALES úr myndinni BAD BOYS fer á kostum í sinni aibestu mynd til þessa. THE HOLLYWOOD REPORTER Spennandi ævintýramynd um átta unglinga sem berjast upp á líf og dauða á móti vel þjálfuðum glæpamönnum. Topp paradis sem hefur bakhliðina sem eitt helviti. THEN.Y.TIMES „Hver verður fyrstur að leggja stelpu?" Full rúta af strákum kemur i sumarbúðir Harry Basset (leikinn af Fost- er Brooks). Basset er alltaf , fullur og missir I stjórn á strákun- um og stelpun- um sem eru á staðnum. Þú hefur aldrei séð neina mynd i likingu við þessa. Myndbandaleigut. pantanirísíma Ath., litrlk plaköt fylgja. MIDNIGHT W 1121^2)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.