Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1985, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1985, Síða 12
12 DV. LAUGARDAGUR 9. NOVEMBER1985. I Hollywood skjálfa stjörnurnar: Mikkimúser ekki með Ai Rock Hudson var lengi vel ímynd alls þess sem heilbrigt er, fyrirmynd bandarískra ungmenna, draumur hverrar móður. Hann var hommi og dó úr AIDS. Þegar franska leikkonan Simone Signoret lést birti hið virta banda- ríska dagblað; New York Times, tveggja dálka frétt af andláti hennar og mynd að auki. Þegar kvikmynda- leikarinn Rock Hudson lóst í þeirri sömu viku lét blaðið sér nægja að segja frá því í litlum eindálki, án myndar. Simone Signoret lést úr krabba- meini, Rock Hudson úr ónæmistær- ingu. í Bandaríkjunum þykir það ekki glæsilegur dauðdagi, ónæmis- tæring er flokkuð sem kynsjúkdómur og á dánarbeði sínum viðurkenndi Rock Hudson það fyrst opinberlega að hann væri hommi og hefði verið lengi. Þess vegna fékk hann ekki meira rúm á síðum New York Times. Eins og klettur f sjálfu sér er það kaldhæðnislegt að Rock Hudson skyldi falla úr ónæmistæringu, maðurinn sem lengst af var ímynd alls þess sem heilbrigt er í Hollywood, hjartaknús- arinn sem stóð eins og klettur upp úr úrkynjuninni í kvikmyndaborg- inni. Tímaritið Look birti meira að segja mynd af honum á forsíðu árið 1958 og kynnti hann sem heilbrigð- asta mann í heimi, fyrirmynd allra bandarískra ungmenna, draum hverrar móður. Roy Scherer Rock Hudson hefði orðið sextugur í næstu viku. Nítján ára settist hann að í Los Angeles og hóf að aka vöru- bifreið eins og svo margar aðrar stjörnur hafa gert bæði fyrr og síðar. Honum leiddist brátt sá leikur og greip því til þess ráðs, að áeggjan kunningja síns, að senda ljósmyndir af sér til umboðsmanns skemmti- krafta og leikara í Hollywood. Sá hét Henry Wilson og var ekki lengi að taka við sér. Hann kvaddi Roy Scherer á sinn fund, en svo hét Rock Hudson í raun réttri, og lét það verða sitt fyrsta verk að breyta nafni hans. Rock varð fyrir valinu sem fornafn vegna þess að það þýðir „traustur" og Hudson var síðan skeytt aftan við til að mýkja samsetninguna og minna á hið fræga fljót sem rennur hægt en með þunga. Phyllis Gate Rock Hudson kvæntist Phyllis Gate árið 1956, þá 31 árs, en hjóna- bandið leystist upp þremur árum síðar. Rock sneri sér þá alfarið að strákunum en hélt kynhneigð sinni leyndri fyrir öllum almenningi af skiljanlegum ástæðum. Hjartaknús- arar á hvíta tjaldinu geta ekki líka verið hommar. Dauði Rock Hudsons hefur hrist heldur betur upp í kvikmyndaheim- inum, þar sem flestir liggja nú undir grun um að vera haldnir ónæmistær- ingu. Eða eins og einn innanbúðar- maður í kvikmyndaveri orðaði það: „Það virðist enginn óhultur hér nema Mikki mús og fjölskylda hans.“ Ósýnilegur morðingi Bo Derek neitar að leika á móti karlmanni sem ekki getur sannað með læknisvottorði að hann sé ekki haldinn ónæmistæringu. Framleið- andi Dynasti-sjónvarpsþáttanna býður öllu starfsfólki sínu upp á ókeypis bióðrannsókn þannig að hægt sé að fylgjast með hver sé öruggur og hver ekki. George Hamil- ton hefur komið sér upp sínum eigin blóðbanka svo hann þurfi ekki að taka neina áhættu ef hann þyrfti allt í einu á blóði að halda. „Lífið hér er orðið verra en í hryll- ingsmynd," er haft eftir ónefndum kvikmyndaframleiðanda. „Það er eins og ósýnilegur morðingi sé á meðal okkar.“ „Drepum sjúklingana“ Það er vandlifað í Bandaríkjunum. Á hverjum degi koma fram þrjú ný tilfelli af ónæmis- tæringu og í hverj- um mánuði látast 37 af völdum henn- ar. Á veggjum sjúkrahúsa f New York er algengt að sjá áletranir eins og: „Drepum AIDS-sjúklingana! Burt með pestina!" Dagblöð og tímarit fylla hverja síðuna á fætur annarri með ráðlegg- ingum um hvernig varast eigi AIDS. Lauslæti er orðið bannvara. Ein- hleypingar eru hvattir til að skrá hjá sér alla rekkjunauta og sýna nýjum listann. Og svo mætti lengi telja. Mikið er í húfi því engin er lækning- in. -EIR. Fjórir A iDS-sjúklingar á íslenskum sjúkrahúsum „AIDS á tæplega eftir að útrýma mannkyninu. Það verða alltaf eftir einhverjir einlífismenn og hjón sem lifa eingöngu kynlífi innan hjóna- bandsins og geta ekki smitast,“ sagði Haraldur Briem smitsjúk- dómalæknir í samtali við DV. - En ef eingöngu er stuðst við vaxtarhraða sjúkdómsins fram að þessu, hvað tæki þá langan tíma að útrýma mannkyninu? „Ég þekki engan sem hefur vogað sér að reikna það út. En það tæki tiltölulega skamman tíma ef slíkar reikningskúnstir yrðu viðhafðar. Hins vegar er Ijóst að „kúrfan" getur ekki haldið áfram aó stefna beint upp í loft. Það hlýtur að fara að draga úr vaxtarhraða sjúk- dómsins og þess eru þegar merki, til dæmis í New York. Skiptir þar íslendingar eru að vakna til vitundar um þá ógn er stafar af ónæmistæringu. Þjóðin sat sem límd við sjónvarpstækin síðastliðið þriðjudagskvöld er fyrsti íslenski sjónvarpsþátturinn um AIDS var sendur út. D V-mynd S. mestu að áhættuhóparnir, hommar og eiturlyfjasjúklingar eru farnir að gæta sín betur.“ Að sögn Haralds Briem eru fs- lendingar, sem smitast hafa af ónæmistæringu, nú um 10 talsins. Þar af hafa 4 forstigseinkenni og hafa J)urft á spítalavist að halda vegna sjúkdómsins. 1 öðrum 6 hefur svo mælst mótefni og bíða læknar átekta hverju fram vindur i máli þeirra. Allt eru þetta ungir menn, einhleypir, sem smitast hafa í Danmörku og Bandaríkjunum. Fiestir þessara 10 sýktu íslendinga eru hommar. „Það er sama munstrið á AIDS- málum hér á landi og í nágranna- löndum okkar," sagði Haraldur Briem. -EIR. Haraldur Briem smitsjúkdóma- Iæknir: - AIDS á ekki eftir að útrýma mannkyninu. DV-mynd Bjarnleifur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.