Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1985, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1985, Blaðsíða 20
20 DV. LAUGARDAGUR 9. NOVEMBER1985. Nauðungaruppboð annaðog síðasta á eigninni Markholti 17, 2. h.f.m., Mosfellshreppi, tal. eign Margeirs Ólafssonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 13. nóvember 1985 kl. 17.00. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Hafnargötu 54 í Keflavik, þingl. eign Grétars Sigurðssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu bæjarsjóðs Keflavíkurfimmtudaginn 14.11. 1985 kl. 10.45. Bæjarfógetinn i Keflavík. Nauðungaruppboð annað og siðasta á fasteigninni Hátúni 18, neðri hæð, í Keflavík, þingl. eign Sigurðar Brynjólfssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Garðars Garðarssonar hrl. og Bæjarsjóðs Keflavíkur fimmtudaginn 14. 11. 1985 kl. 10.45. Bæjarfógetinn í Keflavik. Nauðungaruppboð annað og siðasta á fasteigninni Lyngholti 8, 3. hæð, í Keflavík, þingl. eign Sigurbjargar Kristjánsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Landsbanka Islands og Guðjóns Á. Jónssonar hdl. fimmtudaginn 14.11. 1985 kl. 10.15. Bæjarfógetinn i Keflavik. Nauðungaruppboð annað og siðasta á fasteigninni Skólavegi 9, jarðhæð, i Keflavík, þingl. eign Dagnýjar Haraldsdóttur en talin eign Olgeirs Þorvaldssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Garðars Garðarssonar hrl., Guðjóns Steingrímssonar hrl. og Bæjarsjóðs Keflavíkur fimmtudaginn 14.11. 1985 kl. 10.00. Bæjarfógetinn í Keflavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Faxabraut 39C i Keflavík, þingl. eign Guðmundar Jónatanssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Garðars Garðarssonar hrl., Jóhannesar Jóhannessen hdl. og Bjarna Ásgeirs- sonar hdl. fimmtudaginn 14.11. 1985 kl. 11.00. Bæjarfógetinn i Keflavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni ÍMorðurvör 6 i Grindavik, þingl. eign Helga Friðgeirssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Hafsteins Sigurðssonar hrl. fimmtudaginn 14.11. 1985 kl. 13.45. Bæjarfógetinn í Grindavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Hjallavegi 1J i Njarðvík, þingl. eign Sigurðar Eiríkssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Jóns G. Briem hdl. fimmtudaginn 14.11. 1985 kl. 11.30. Bæjarfógetinn i Njarðvik. Nauðungaruppboð annað og siðasta á fasteigninni Háholti 22 í Keflavík, þingl. eign þrota- bús Guðjóns Ómars Haukssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Sigriðar Thorlacius hdl., Keflavíkurbæjar, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl., Jónasar Aðalsteinssonar hrl., Ásgeirs Thoroddsen hdl., Veðdeildar Landsbanka Islands, innheimtumanns ríkissjóðs, Ólafs Gústafssonar hdl., Brunabótafélags Islands, Jóns Oddssonar hrl., Bæjarsjóðs Keflavikur og skiptaráðandans I Keflavik fimmtudaginn 14.11. 1985 kl. 11.15. Bæjarfógetinn i Keflavik. Nauðungaruppboð sem augl. hefur verið í Lögbirtingabl. á fasteigninni Gerðavöllum 15 í Grindavik, þingl. eign Sigurjóns Sigurðssonar, fer fram á eigninni sjálfri aö kröfu Guðjóns A. Jónssonar hdl., Skúla J. Pálmasonar hrl., Garðars Briem hdl., Bæjarsjóös Grindavikur og innheimtum. rikissjóðs fimmtudaginn 14.11. 1985 kl. 14.00. Bæjarfógetinn í Grindavík. Nauðungaruppboð sem augl. hefur verið í Lögbirtingabl. á fasteigninni Gerðavöllum 5 í Grindavík, þingl. eign Friðriks E. Hafberg, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Bæjarsjóðs Grindavikur, Veödeildar Landsbanka Islands og Tryggingast. rikisins fimmtudaginn 14.11. 1985 kl. 14.45. Bæjarfógetinn i Grindavík. F ■■ r AT0KI KATALÓNÍU Hópur aðskilnaðarsinna í Barcelona hefur uppi mótmæli. Reiknað er með skærum í framtíðinni því Katalóníumenn eru í vaxandi mæli að reka sig á horn í baráttu sinni. Katalónska var bönnuð þjóðtunga allan tímann sem Franco rikti á Spáni. En það eru tíu ár síðan hershöfðinginn og valdaræninginn safnaðist til feðra sinna og síðan Spánn varð frjáls úr greipum fal- angista hefur katalónska og kata- lónsk þjóðernishyggja sótt mjög á. Reyndar er þjóðernishyggjan rekin áfram af þvílíkum krafti að komið hefur til átaka í höfuðborg Kata- lóníu, Barcelona, síðustu vikurnar. f Katalóníu búa sex milljón manns og 60% íbúa Katalóníu tala hið forna tungumál svæðisins. Katalónska er skyld spænsku, ít- ölsku og Provence-frönsku. Allir spænskir stjómmálaflokkar styðja sjálfsstjórnarviðleitni Kata- lóníumanna, þar á meðal sósíalist- ar sem eru í ríkisstjórn. 1979 voru gefm út heimastjórnarlög fyrir Katalóníu. Þeim lögum er fram- fylgt til hins ýtrasta af „Generali- tatinu“, eða yfirstjórninni sem þjóðernissinnar stjórna - og er í raun ríkisstjórn Katalóníu. Kennarar mótmæltu En þjóðernishyggjan í Katalóníu kemur illa við marga. Aðskilnaðar- sinnar, þeir sem vilja algeran að- skilnað Katalóníu frá Spáni, eða stjórninni í Madrid, hafa krafist þess að katalónska verði eina tungumál héraðsins og ekki kennt á öðrum tungumálum í skólum Katalóníu. Aðskilnaðarsinnarnir hafa lagt þunga áherslu á þessa kröfu sína og það eins þótt böm af spænsku bergi brotin séu mun fleiri en kata- lónsk börn í skólunum. Það stafar af því að árum eða áratugum sam- an hafa Spánverjar úr öðrum hér- uðum Spánar streymt til Katalóníu í atvinnuleit. Embættismenn, sem ekki eru katalónskir, sem og kennarar, hafa staðið gegn því sem m.a. kennarar hafa kallað „málhreinsunarstefnu - teygða til hins ýtrasta“. Viðleitni „Generaiitatsins" til að gera alla skóla katalónska hefur og verið kærð til hæstaréttar Spánar. Opinbertunga Rektor háskólans í Barcelona, Antoni Badia I Margarit, segist vera bjartsýnn fyrir hönd kata- lónskunnar. Hún var ritmál hér- aðsins allt frá því á miðöldum, um það leyti sem Snorri dró til stafs á íslandi. En erfiðleikar hafa oft steðjað að Katalóníumönnum. „Katalónskan hefur orðið að ganga í gegnum þvílíkar hremm- ingar að stundum ímynda ég mér að hún muni ekki lifa af - nema fyrir kraftaverk." Katalónskan er núna opinbert tungumál. „Generalitatið" hafði með höndum yfirstjórn mennta- mála í héraðinu og þegar komið var á fót katalónskri sjónvarpsstöð naut sú stöð frá byrjun mikilla vinsælda. 1983 voru sett lög um skyldunám í katalónsku í öllum barna- og framhaldsskólum Katalóníu - en sú lagasetning hefur mætt harðri mótspyrnu þeirra spænskumæl- andi í héraðinu. 15% skólanna eru alveg kata- lónskir. Þar er spænskan aðeins kennd sem sérstakt fag. Lögfræð- ingur einn, búsettur í Katalóníu en spænskur að uppruna, hefur kært það fyrir rétti í Madrid að mörg fög séu kennd aðeins á kata- lónsku. Úrslit þeirrar kæru eru ekki fyrirliggjandi en málið hefur þvælst lengi í kerfinu - úrslitum lofaðfyrirjól. Spænskan jafnrétthá Þótt margir katalónskir kennar- ar vilji helst aðeins kenna á kata- lónsku þá nýtur spænskan enn lögverndaðs réttar. Esteban Gomez Rovira vann nýlega mál fyrir rétti og voru dæmdar bætur vegna þess að börnum hans var ekki kennt á spænsku í skólanum sínum. En lögum samkvæmt ber kennurum einnig að kenna á spænsku. Mál Rovira vakti mikla athygli í Katalóníu. Þegar úrslit voru kunn ruku þjóðernissinnar margir upp til handa og fóta, mótmæltu dómn- um og hótuðu Gomez Rovira jafn- vel lífláti. En Rovira er hvergi banginn. Hann hefur boðist til að stjórna lögsókn spænskra embætt- ismanna á hendur hinu opinbera vegna mismununar af völdum þjóð- ernisofstækis. Aðskilnaðarsinnar Þeir Katalóníumenn sem vilja algeran aðskilnað frá stjórninni í Madrid, eru kannski ekki svo margir - en þó til. T.d. má nefna lítinn hóp sem kallar sig „Terra Lliure" (Frjálst land) og er tilbúinn til að beita „baskískum meðulum" málstaðnum til framdráttar. Hætt er þó við að ofbeldisflokkar nái seint fótfestu í Katalóníu; Barce- lona er rótgróin verslunarborg þar sem kaupmenn, skrifstofublækur og iðnrekendur hafa takmarkaðan áhuga á vopnaðri baráttu í anda ETA. Stefna „Terra Lliure“ er að þrýsta viðurkenndum stjórnmála- flokkum í Katalóníu út í „þjóð- frelsisstefnu" - segir foringi „Terra Lliure", Angel Colom I Colom. Hreyfing hans er losaralegt sam- band ýmissa róttækra hópa sem myndað hafa samstöðu í áróðurs- málum undir kjörorðinu „Crida a la solidaritat" (ákall um samstöðu). „1 framtíðinni verður katalónsk- an að verða eina tungumálið hér um slóðir," sagði Colom I Colom nýlega í viðtali. „Við bjóðum vel- komna hingað alla sem vilja læra katalónsku og katalónska siði - en við lítum á þessa 100.000 opinberu starfsmenn, sem hér eru á vegum Madridstjórnar, sem innrásarlið," sagði hann. „Þeir sem ekki elska þetta land munu ýmist lenda í miklum erfiðleikum eða þá að þeir neyðast til að fara héðan. Það verður litið á aðkomumenn sem innrásarlið." (Reuter)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.