Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1985, Síða 2
2
DV. LAUGARDAGUR 7. DESEMBER1985.
Tilboö Eimskips í eigurHafskips:
Tilboðio er um
390 milljónir
— en raunviróið mun lægra vegna greiðslukjara
Eimskipafélag Islands hf. sendi
skiptaráðandanum í Reykjavík til-
boð í allar helstu eignir Hafskips
hf. strax og kveðinn hafði verið upp
úrskurður um töku bús félagsins
til gjaldþrotaskipta í gær. Sam-
kvæmt upplýsingum DV er fyrir-
hugað kaupverð rúmlega 390 millj.
kr., en raunverð mun lægra vegna
greiðslukjara. 55% verðsins eiga
að greiðast í erlendri mynt en eftir-
stöðvamar í íslenskum krónum.
Helstu eignir bús Hafskips hf.,
sem Eimskip gerir tilboð sitt í, eru
þessar: Fjögur skip, Hofsá, Rangá,
Selá og Skaftá, vörugeymsluhús og
geymslusvæði við Njarðargötu,
vöruafgreiðslan í Faxaskála og
framkvæmdir á geymslusvæði við
Faxaskála, svokallaðan A-skála og
Ingólfsgarð. Þá áskilur Eimskip sér
rétt til þess að ganga inn í samn-
inga um hafharaðstöðu í Austur-
höfninni með samningi við hafnar-
stjóm Reykjavíkur og aðra leigu-
samninga Hafskips. Loks tekur
tilboðið til alls kyns lausafjár, svo
sem allra gáma, allra lyftara, bif-
reiða og dráttarvagna, allra véla,
áhalda, tækja og annars búnaðar á
lyftara- og bifreiðaverkstæði og á
skipaverkstæði og ýmiss annars
búnaðar, svo sem alls skrifstofu-
búnaðar, þ.m.t. tölvubúnaðar og
ýmissa hlutabréfa er vom í eigu
Hafskips hf.
I tilboði Eimskips er heildarkaup-
verðið tæplega 9,4 millj. dollara,
eða sem samsvarar rúmlega 390
millj. kr. Er gert ráð fyrir að kaup-
verðið gangi allt til Útvegsbanka
íslands með því að Eimskip taki
að sér greiðslu á samsvarandi
upphæð af skuldum Hafskips við
bankann. Rúmlega helmingur
(55%) verðsins, eða jafnvirði tæp-
lega 5,2 millj. dollara, á að greiðast
í þeim gjaldmiðli sem Eimskip kýs.
Ekkert á að greiðast af láni þessu
fyrr en í febrúar 1989, en síðan á
það að greiðast upp með 7 jafn-
háum ársafborgunum þannig að
síðasta afborgun verður í febrúar
1996. Vaxtakjör af þessum hluta
verðsins miðast við millibanka-
vexti að viðbættum u.þ.b. 0,6%. Þó
að afborganir hefjist ekki fyrr en á
árinu 1989 er gert ráð fyrir að
vaxtagreiðslur fari fram á 6 mán-
aða fresti eftir að kaupsamningur
hefur verið gerður.
Hinn hluti kaupverðsins (um
45%), eða um 174,6 millj. króna, á
að greiðast í íslenskum krónum.
Af þessu láni á heldur ekkert að
greiðast fyrr en í febrúar 1989 og á
það að greiðast með jafnháum árs-
afborgunum til ársins 2001. Þessi
hluti lánsins verður vaxtalaus, en
verðtryggður miðað við lánskjara-
vísitölu.
Talið er víst að eitthvað eigi eftir
að dragast frá kaupverðinu til
Útvegsbankans eða bú Hafskips
hf. þurfi að greiða Eimskip ein-
hvem hluta kaupverðsins til baka
því að miðað er við að eignimar
afhendist Eimskip kvaða- og veð-
bandalausar að öðru leyti en því
sem nemur greiðslu kaupverðsins
til Útvegsbankans. Þetta leiðir
m.a. af sér að bankinn eða búið
þurfi að létta sjóveðskröfum af
hinum seldu skipum, sem munu
vera einhverjar, og ennfremur
veðskuldum af fasteignum sem em
við aðra aðila en Útvegsbankann.
Einnig getur komið til lækkunar
kaupverðsins vegna ástands skipa
og annarra eigna.
Tilboð Eimskips gildir til nk.
miðvikudags 11. desemberkl. 17.00.
Tveir skiptaráðendur hafa verið
skipaðir, þeir Ragnar Hall og
Markús Sigurbjamarson. Bústjór-
ar verða lögmennirnir Viðar Már
Matthíasson, Jóhann Nielsson og
Gestur Jónsson.
- APH
r
Utvegsbankinn tapar
minnst 350 milljónum
— Seðlabankinn hleypur undir bagga
Áætlað er að heildartap Útvegs-
bankans vegna Hafskips geti orðið
um 350 milljónir króna. Eigið fé
bankans nemur um 530 milljónum
króna þannig að tapið er vemlegur
hluti af því.
Seðalabankinn, í samráði við við-
skiptaráðherra og fjármálaráðherra,
ákvað í gær að hlaupa undir bagga
hjá Útvegsbankanum. Seðlabankinn
mun í því sambandi gera sérstakan
saming við Útvegsbankann um fjár-
hagslega fyrirgreiðslu er tryggi
greiðslustöðu hankans gagnvart
viðskiptaðilum innanlands og utan.
Þá hefur verið ákveðið að leita bestu
leiða til að endurskipuleggja banka-
viðskipti sem Útvegsbankinn hefur
nú með höndum. Megináherslan
verður lögð á skipulagsbreytingar
viðskiptabankakerfisins og að við-
skiptabönkum verði fækkað.
í tilkynningu frá Seðlabankanum
er greint frá því að innlán Útvegs-
bankans hafi snúist til lækkunar
undanfamar vikur, m.a. vegna al-
mennrar umræðu um fjárhagsmál
bankans. Skammtímaskuldir Út-
vegsbankans við SeðJabankann hafa
hækkað um 370 milljónir króna á
undanfömum mánuðum og lausafj-
árstaða bankans rýmað um 482
milljónir króna. - APH
Stöðvið tafarlaust
hefndaraðgerðir
íslendinga
— segir Rainbow Navigation í bréfi til rannsóknamefndar
Óskar Magnússon, DV, Was-
hington:
„Rainbow hvetur þig til að nefndin
grípi tafarlaust til nauðsynlegra
aðgerða til að koma í veg fyrir
hefndaraðgerðir af hálfu íslenskra
stjómvalda." Þannig segir í bréfi
bandaríska skipafélagsins Rainbow
Navigation til nefndar þeirrar hér í
Bandaríkjunum sem að undanfömu
hefur rannsakað farmgjöld íslensku
skipafélaganna á flutningi fyrir aðra
aðila en vamarliðið.
Samkvæmt þeim upplýsingum, sem
DV fékk hjá Helga Ágústssyni,
sendifulltrúa í íslenska sendiráðinu
í Washington, þegar spurst var fyrir
um málið, er í bréfi Rainbow farið
frarn á að nefndin beiti einnig valdi
sínu hvað varðar vamarliðsflutning-
ana og útvíkki þannig yfirstandandi
rannsókn. Ekki kemur fram með
hvaða hætti umrædd nefnd getur
komið í veg fyrir meintar hefndarað-
gerðir. En aðgerðir íslendinga em
helst taldar geta orðið í formi laga-
setningar. Rainbow vísar í bréfi sínu
til vitnisburðar bandaríska sendiher-
rans á Islandi þess efnis að lagasetn-
ing kunni að vera í undirbúningi.
Rainbow hvetur nefndina til að hafa
ekki samráð við bandaríska utan-
ríkisráðuneytið um aðgerðir en slíkt
stríði gegn þeim kröfum sem þingið
geri til sjálfstæðis nefndarinnar. Þá
heldur Rainbow því fram að íslensku
skipafélögin hafi gefið afslátt ólög-
lega og stundað ólögmæta viðskipta-
hætti hvað varðar aðra flutninga en
fyrir varnarliðið.
Maður féll
af þaki
Maður slasaðist alvarlega þegar við húsið sem sést hér á myndinni
hann féll ofan af húsþaki í Hafnar- fyrir ofan. Maðurinn, sem var fluttur
firði á fimmtudaginn. Fallið var um ásjúkrahús, er úr allri lífshættu.
13 metrar. Maðurinn var að vinna DV-myndS
Rásarmenn norður
á elleftu stundu
— þegar vinsældalisti rásar 2 var valinn á Akureyri
Vinsældalistinn valinn í útvarpshúsinu á Akureyri. Þeir Páll Þ
steinsson og Gunnlaugur Helgason fengu aðstoð þeirra Helenu Eyc
(Finns og Helenu) og Huldu Stefánsdóttur til að svara í símann.
DV-mynd J
Frá Jóni G. Haukssyni, frétta-
manni DV á Akureyri:
Vinsældalisti rásar 2 var valinn
samtímis á Akureyri og í Reykjavík
sl. fimmtudag. Þetta er í fyrsta skipti
sem listinn er valinn á Akureyri.
Ekki vantaði áhugann hjá hlustend-
um á Norðurlandi. Síminn hjá út-
varpinu á Akureyri þagnaði ekki.
Þeir rásarmenn, Páll Þorsteinsson,
Gunnlaugur Helgason og Georg
Magnússon, að ógleymdum rásar-
stjóranum sjálfum, Þorgeiri Ást-
valdssyni, komu norður vegna vals
listans.
Litlu munaði að þeir kæmu of seint
í símatímann þar sem fluginu frá
Reykjavík seinkaði. Allt bjargaðist
þó fyrir hom á síðustu stundu, ekki
síst vegna hjálpar tveggja stúlkna frá
Akureyri, Helenu Eydal og Huldu
Stefánsdóttur. Þær aðstoðuðu rásar-
kappana við að svara í síma.
Vinsældalistinn var síðan sendur út
um kvöldið frá Akureyri. Það sáu
þeir Páll Þorsteinsson og Georg
Magnússon um. Topplagið, Cant
Walk Away með Herberti Guð-
mundssyni, hélt velli.
Kaffibauna-
málið bíður
„Það er ekkert farið að skoða það
mál eftir að það kom aftur hingað,"
sagði Jónatan Sveinsson saksóknari
er DV spurði hvenær vænta mætti
ákvörðunar ákæruvaldsins í kaffi-
baunamálinu svokallaða.
„Það er ákaflega ólíklegt að málið
verði nokkuð skoðað fyrir áramót.
Það er allt á öðrum endanum í kring-
um önnur mál,“ sagði Jónatan.
Rannsóknarlögregla ríkisins lauk
rannsókn kaffibaunamálsins í byijun
nóvember siðastliðinn, fyrir rúmum
mánuði, og sendi það til ríkissak-
sóknara. Rannsóknarlögreglan hafði
þá haft málið til rannsóknar að fyrir-
skipan saksóknara í átta mánuði.
Áður höfðu rannsóknardeild ríkis-
skattstjóra og gjaldeyriseftirlit
Seðlabanka rannsakað málið
- KMU.