Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1985, Qupperneq 12
12
DV. LAUGARDAGUR 7. DESEMBER1985.
STANSAÐ,
DANSAÐ
OG
ÖSKRAÐ!
, Hljómsveitin Grafík ásamt Helga
Björnssyni, söngvara og leikara,
sendir frá sér nýja plötu um helgina
- gott ef lögin á henni eru ekki
þegar farin að heyrast á „rásinni“.
Textamir á nýju plötunni, sem
heitir því frumlega nafhi „Stansað,
dansað og öskrað" (?), eru eftir
stjömu hljómsveitarinnar, Helga
Bjömsson - „stemmningstextar,
ortir til að falla að músíkinni".
- Rímaður kveðskapur?
,,-Nei, nei - ekkert svoleiðis. Þetta
er eiginlega atómkveðskapur."
- Um ástina?
„Nei, þetta er svona hvatning -
hvatning til fólks að vera nú ekki
að taka sig of alvarlega, ekki of
hátíðlega - en kýla bara á lífið og
rómantíkina."
- Öskrað? segirðu, Helgi, hefurðu
gaman af að öskra?
„Já. Ég hef gaman af því. Ef
maður öskrar þá losnar maður
undan þvingun hugans og losnar
við þessa tilfinningu að maður
þurfi að vera „eðlilegur“...“
- Hefurðu sérstakan áhuga á að
vera óeðlilegur?
„Nei, maður - „eðlilegur" svona
eins og nágrannamir vilja kannski
hafa mann - ég vil hrista upp í
hlutunum.“
- Áttu slæma nágranna?
„Jesús minn, nei! Og mig langar
ekkert frekar að hrista upp í þeim!“
- En þú varst að segja að...?
„Heyrðu, eigum við ekki bara að
gleyma þessu með nágrannana? En
platan sko - hún er svona um það
að maður eigi ekki að vera að gera
sér upp áhyggjur heldur sníða sér
stakk eftir vexti.“
- Bmnarðu fram úr sjálfum þér
með þessari plötu?
„Nei, það held ég ekki.“
- Heldurðu að hún verði „best-
seller"?
„Áreiðanlega næstbestseller.
Annars hef ég ekkert hugsað um
þau mál.“
- Þú þarft að hugsa um þau.
Annars verður hvorki stansað né
dansað í framtíðinni og heldur ekki
öskrað.
„Þú segir ekki.“-GG.
Helgi Björnsson - „gaman að
öskra“.
GERDA ANTTIÁ ÍSLANDI
- Að takast á við sjálfan sig
Sænski rithöfundurinn Gerda Antti
kom í stutta heimsókn til íslands í
síðustu viku. I haust hafa hlustendur
Ríkisútvarpsins heyrt Margréti
Helgu Jóhannsdóttur lesa skáldsögu
hennar, Skref fyrir skref, í þýðingu
Guðrúnar Þórarinsdóttur.
Gerda Antti á sívaxandi vinsældum
að fagna í heimalandi sínu - og
reyndar um Norðurlönd öll því
bækur hennar em núorðið þýddar á
Norðurlandamálin jafnharðan og
þær koma út.
„Mér finnst nánast óraunvemlegt
að ég skuli vera hér,“ sagði Gerda
Antti í spjalli við blaðamann. „Ég
hef um tíma áætlað að koma hingað.
Og ég ætla að koma hingað til þess
að fara í gönguför um landið - yfir
hálendið. Undanfarin ár hef ég geng-
ið á fjöll í Noregi.
Þessi skotferð mín hingað núna
kom til mér að óvörum - mér finnst
allt hér ákaflega „exótískt" - spenn-
andi og framandi."
Gerda Antti er reyndar manneskja
og höfundur sem fylgist vel með -
ekki aðeins því sem „opinberlega"
gerist heldur miklu fremur því smáa
og hversdagslega. Bókmenntafræð-
ingamir hafa sagt hana skrifa helst
um „hversdagsvandamálin“. Sjálf
svarar hún þeirri athugasemd með
því að segja að hún sjái enga ástæðu
til að fjalla um „sunnudagsvanda-
málin“ - „sunnudagsvandamálin eru
auðveld viðureignar,“ sagði hún.
„En mörgum reynist örðugt að lifa
hvem dag fyrir sig. En til þess að
betur gangi að lifa dag frá degi þá
verður manneskjan að þekkja sjálfa
sig, takast á við sjálfa sig, skref fyrir
skref. Um það snýst t.ilveran. Af
sjálfum sér kynnist maður öðrum.“
Heiti bóka hennar benda flest til
þess að hún vilji hvetja fólk til þess
að takast á við sjálft sig: „Skref fyrir
skref„kvöld eftir kvöld“.
SÆNSK SVEITAKONA
Hún er sveitakona, fædd og uppal-
in norður í Támedal. Þaðan er líka
annar frægur Svíi, skíðakappinn
Ingmar Stenmark. En Gerda gerir sér
ekki sérlega tíðförult á bemskuslóð-
irnar. Hún flutti suður á land 1949.
Giftist rithöfundinum Walter Ljung-
kvist. Þau settust að í Austur—
Gautlandi. Walter dó 1974 en Gerda
hefur búið áfram í bændasamfélag-
inu um tvö hundmð kílómetra sunn-
an við Stokkhólm.
Flestir hennar „hversdaga“ líða
þar í sveitinni við ritstörf í kyrrð og
ró. En stöku sinnum leggur hún land
undir fót. Hún situr á sænska
„Landsþinginu" fyrir Miðflokkinn
og þarf stundum á pólitíska fundi.
Og hún skrifar kímnigreinar fyrir
dagblað svæðisins, „Östgötaposten".
„Ég gæti ekki hugsað mér að búa
Gerda Antti - „Sunnudags-
vandamálin - þau eru auðveld
viðureignar!“
í stórborg eins og Stokkhólmi og
sakna ekki félagsskapar sem ég
kannski hefði þar. Kannski er það
víðáttan og nálægð náttúmnnar sem
veldur að mér líst vel á mig hér á
íslandi."
- Norðangolan er köld í lok nóv-
ember, finnst þér það ekki?
„Uss, nei. Við sem búum norðar-
lega í veröldinni verðum að kunna
að klæða okkur rétt,“ sagði hún og
hneppti pelsinum upp í háls.
SÖGUPERSQNUR SEM ÖÐL-
AST EIGIÐ LIF
Bækur Gerdu Antti, jafnt skáld-
sögur hennar sem smásögur, eru
krökkar af „venjulegu“ fólki: bænd-
um, búðarmönnum, verkamönnum
og öðmm þeim sem sjaldnast rata á
útsíður dagblaða eða í sjónvarpið.
Og tungumálið, sem Gerda skrifar
á, er einfalt, meitlað, norrænt. Sæn-
skan hennar er hvorki skotin ensku
né frönsku. Hún fer sparlega með
orðin og lesandinn hefur á tilfinning-
unni að hún liggi tímunum saman
yfir hverri setningu, hverri síðu.
„Já, stundum," sagði hún. „En svo
kemur jafnan að því að persónumar
fara að tala sjálfar. Eiginlega án
þess að ég blandi mér í það. Þá er
gaman að lifa! Þá hafa þær öðlast
eigið líf.“
Margrét Helga Jóhannsdóttir, sem
las sögu Gerdu Antti í útvarpið,
Skref fyrir skref, sagði blaðamanni
að aldrei fyrr hefði hún lesið sögu í
útvarp sem hefði vakið önnur eins
andsvör meðal hlustenda. „Það
hringdi í mig ijöldi manns,“ sagði
Margrét. „Fólk vildi láta í ljósi álit
sitt á sögunni og spyrjast fyrir um
bækur eftir Gerdu."
Skref fyrir skref byggist á atburð-
um sem urðu í lífi höfundar sjálfs.
„Þegar maðurinn minn dó leið mér
svo illa. Ég gerði mér grein fyrir því
að ég var að ganga í gegnum reynslu
sem svo margir aðrir höfðu gengið í
gegnum. Smám saman ákvað ég að
skrifa um þetta - á einhvern hátt.
Þegar þeir hjá forlaginu mínu
höfðu samband við mig og spurðu
hvað ég væri að skrifa þá svaraði ég
fáu til. Mér fannst svo út í hött að
segjast vera að skrifa um miðaldra
konu sem hefði verið gift kaupmanni.
Og svo deyr maðurinn - og það eina
sem gerist er að konan situr við
vefinn sinn með hugsanir sínar.“
En Gerda Antti hefur lag á að orða
hversdagslegar hugsanir venjulegs
fólks þannig að orðin lifna á pappírn-
um, hinn hversdagslegi texti verður
spennandi og safaríkur. -GG