Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1985, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1985, Blaðsíða 14
14 DV. LAUGARDAGUR 7. DESEMBER1985. SMART- BAND Á MYND- BAND - í Amsterdam „Þetta er örugglega ódýrasta tón- listarmyndband sem gert hefur verið af íslendingum. Ætli öll framleiðslan hafi ekki kostað um 70 þúsund ísl. krónur,“ sagði Sigrún Harðardóttir, myndlistar- kona í Amsterdam, í samtali við DV. Sigrún leikstýrði og stjómaði tökum á myndbandi þar sem Smartbandið lék lagið sitt, La Líf. Smartbandið samanstendur af þeim Kjartani ólafssyni og Pétri Grétarssyni en það er Kjartan sem leikur aðalhlutverkið og syngur á þessu myndbandi sem að öllu leyti var gert í Amsterdam. Lagðist íslend- inganýlendan þar á eitt við að gera myndbandið sem best úr garði en neyddist þó til að fá sér hollenskan kvikmyndatökumann til aðstoðar. Allt annað var íslenskt og þykir árangurinn góður miðað við fjár- haginn sem var þröngur Plata Smartbandsins hefur fengist í íslenskum hljómplötuverslunum að undanfömu þótt aðalmaðurinn, Kjartan Ólafsson, dvelji í Hollandi við tónlistamám. Leggur hann stund á tónsmíðar og rafeindamúsík í tón- listarháskólanum í Utrecht. - EIR. Islendingarnir í Amsterdam fylgjast með vinnubrögðum hollenska kvikmyndatökumannsins þegar Smartbandið var fest á band. Lengst til hægri má sjá Kjartan Ólafsson og næst honum er Sigrún Harðar- dóttir sem stjórnaði verkinu. fslendingarnir komnir upp á þak í Amsterdam. í kvistinum stendur Kjartan Ólafsson með saxófón og með honum Kristján Svavarsson sem stundar nám í píanóstiUingum ytra. Litlu munaði að stórslys yrði í jólabókaflóðínu og áttu þar hlut að máli sóknarpresturinn á Bíldud- al og ljón í mannsmynd, og allt gerðist þetta í nafni ísafoldar - eða með öðrum orðum séra Dalla Þórð- ardóttir, Leó Löve bókaútgefandi og bókaútgáfan fsafold. „Allt er gott sem endar vel,“ sagði Leó Löve í samtali við DV, „en það mátti ekki tæpara standa.“ LÍFSGLAÐA DELMAS Þannig var mál með vexti að Leó tók ákvörðun um að fá til þýðingar og gefa út bókina Stúlkan á bláa hjólinu eftir franska rithöfundinn Régine Deforges. Sú saga gerist í Frakklandi í síðari heimsstyrjöld- inni og fjallar um Leu Delmas sem er 17 ára stúlka, lífsglöð í meira lagi og vefur karlmönnum um fing- ur sér. En stríðið setur strik í reikn- inginn og fyrr en varir er stúlkan orðin sendiboði á bláu hjóli og flytur skilaboð á milli hins frjálsa og hernumda hluta Frakklands. EKKIKLÁM Frásögnin um Leu Delmas er hispurslaus í meira lagi þó ekki flokkist hún undir klám - eða eins og Leó Löve segir sjálfur: „í þessari bók eru ekki neinar þær lýsingar sem 95 prósent af öllu fullorðnu fólki kannast ekkí við úr eigin lífi. Að auki eru þær lýsingar stuttar og smekklegar, svona eins og kyn- lífið sjálft." i Það var úr ráði að Dalla Þórðar- dóttir, sóknarprestur á Bíldudal, var fengin til að þýða bókina og lauk hún því verki á tilsettum tíma. Frumvinnsla bókarinnar hófst og( Séra Dalla Þórðardóttir: - Vann þetta eins og hvert annað verk. Presturinn og Ijónið -ævintýri úr jólaflóðinu um svipað leyti horfði Leó Löve á sjónvarpsþátt um samtímaskáld- konur þar sem einmitt var fjallað um höfund Stúlkunnar á bláa hjól- inu, Régine Deforges. EKKISAMA BÓKIN „Þá varð mér ljóst að ýmislegt sem þar kom fram um innihald bókarinnar var alls ekki í þýðing- unni. Þegar betur var að gáð kom á daginn að séra Dalla hafði mildað kynlífslýsingarnar svo mjög að ekki var við unað. Það hefði ekki orðið sama bókin,“ sagði Leó Löve. Allt var sett í fullan gang og presturinn settist aftur við að þýða hina hispurslausu kafla. Og gerði það vel, að sögn forleggjarans. En hvað segir séra Dalla Þórðar- dóttir á Bíldudal? SÓKNARBÖRNIN MEGA LESA „Mér fannst þessi bók ekki mjög skemmtileg. Ég vann þetta verk eins og hvað annað sem maður tekur að sér. Ég staðhæfi að upp- hafleg þýðing mín var í góðu lagi; það vantaði ekkert í hana sem skipti máli. Ef til vill hef ég mildað einhverjar lýsingar og það líkaði útgefandanum ekki. En það hefði ekki átt að koma að sök.“ - Hefðir þú eitthvað á móti því að sóknarbörn þín læsu þessa bók um stúlkuna á bláa hjólinu? „Alls ekki. Þetta er spennandi bók og í henni er alls ekkert klám. En þetta er ekki ein af þeim bókum sem ég læsi gæti ég valið á milli fleiri.“ - EIR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.