Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1986, Side 2
2
MÁNUDAGUR 28. JÚLl 1986.
Fréttir
Lýðveldi
í Viðey
„Leitað verður eftir samþykki
þingmanna við tillögu að stjóm með
naínakalli" sagði Benjamín Axel
Ámason, forsætisráðherra hins nýja
lýðveldis í Viðey, við setningarat-
höíh hins fyrsta þingfundar í
gærdag. Síðan taldi hann upp nöfn
þingmanna, bæði erlendra og inn-
lendra, sem allir svömðu játandi
skýrt og greinilega. Atkvæðagreiðsl-
an gekk greiðlega enda maðurinn
ábúðarfullur og drífandi á palli. Lík-
lega hálfhað þegar hann kallaði:
„Halldóra D. Torfadóttir!"
„Nei,“ kallar reiðileg rödd í hópn-
um sem greinilega á sér stuðnings-
menn í þingmannaliðinu.
Stjómandinn hægir ferðina og
skiptir síðan um kyn í snatri:
„Halldór D. Torfason!"
Svarið sem hann fær við þvi er
jákvætt og samhljóða öðrum þannig
að hægt er að halda áfram og ljúka
nafnakalli. Stjóm lýðveldis skáta í
Viðey hefur verið samþykkt sam-
hljóða með öllum greiddum atkvæð-
um. Að því loknu er forsetinn Ágúst
Þorsteinsson settur í embætti, þing-
fundi slitið og þjóðsöng hins nýstofn-
aða ríkis syngja menn hver með sínu
nefi.
Vandi í utanríkismálum
„Stærsta vandamálið í utanríkis-
málum er skipting útlendinganna,"
segir Yngvinn Gunnlaugsson, utan-
ríkis- og fjölskyldumálaráðherra.
„Það þarf að koma þeim fyrir
héma og finna fjölskyldur fyrir þá
eftir mótið þar sem þeir geta dvalið
um vikutíma. Og vandinn er sá að
allir vilja fá þá þannig að ekki em
nægilega margir til skiptanna. Núna
em þeir um eitt hundrað og eiga
eftir að verða fleiri þegar líður á
mótið.“
Mótsgestir em famir að dreifa sér
um svæðið með spjöld í hendi og
greinilegt að einhver flokkun i hópa
á sér stað. Öðm hverju heyrist :
„Aaaaa - eða er einhver með dé?“
„Þetta er stafamgl og þeir eiga að
mynda orðið skátavinur - þannig
verða til mismunandi hópar sem síð-
an vinna saman allt mótið. Við þetta
myndast tengsl sem geta orðið til
þess að fólk hefúr samband árum
saman - dæmi til þess að slíkt endist
í ein fjömtíu ár. Hingað er komið
fólk frá fjórtán löndum - Japan,
Finnlandi, G enlandi, Ástralíu og
Færeyjum svo eitthvað sé nefht.“
Svona fólk
Við tjald Grænlendinganna em
Brynhildui- Smáradóttir og Kristín
Jónsdóttir frá Akureyri að hefja
samræður og fá menn til að skrifa
niður nöfnin sín.
„Við erum að safna rithandarsýn-
ishomum, sérstaklega frá svona
fólki. Erum búnar að tala við Japani
og Finna en við viljum helst fólk frá
fjarlægum stöðum. Og þau skrifa
allt öðm vísi - miklu flóknara."
Grænlendingamir brosa og skrifa.
Segjast heita Karsten Poulsen frá
Jakobshavn, Nuka Eliassen frá Na-
nortalik, Kristine Jensen frá
Umanak og Margrethe Silassen frá
Nanortalik. í Grænlandi þrífst
skátahreyfingin með ágætum, tæp-
lega þrjátíu starfandi félög. í ferða-
lögum notast þau helst við þyrlur
og báta vegna þess að samgöngur á
landi em með erfiðara móti.
Röndótt Skagamær og kópa-
vogsbátur
Röndóttar húfur í skærum litum
sjást um allt svæðið og einn rand-
höfðinn, Bergþóra Sigurðardóttir,
segir þetta einkenni á Skagamönn-
um ásamt hjörtum á rassi og appels-
ínulitum regnstökkum. Við hlið
hennar er Margrét Baldursdóttir úr
Kópavogi sem hefur til auðkenning-
ar bát á höfði og er íklædd víðu
pilsi. Og þær em báðar á staðnum í
fyrsta skipti.
Neðar á svæðinu em Yuniko Mo-
rikawa frá Tókíó og Noriko Kishi
frá Gunma. Þær tala fátt annað en
japönsku þannig að erfiðara verður
með samskipti, segja þó Island gott
og þær fari ekki strax heim eftir
mótið. Fyrst er að búa hjá íslenskum
fjölskyldum og eftir það er heim-
ferðin á dagskrá.
Heilmikið líf og fjör er í hinu nýja
lýðveldi í Viðey, samfelld dagskrá
verður fram á næsta sunnudag en
þá verður þessu landsmóti skáta árið
1986 slitið fyrir hádegi. Fram að þeim
tíma verða alla daga stöðugar báts-
ferðir frá Sundahöfninni út í eyjuna
og til baka þannig að áhugamenn
um milliríkjatengsl ættu auðveld-
lega að geta bmgðið sér yfir í hina
nýju Viðey. -baj
Niðri i fjöm voru stundaðar sprettfiskaveiðar af miklu kappi. Þegar höfðu
náðst nokkrir snöggir og einn krabbi.
Utanríkis- og fjöiskyldumálaráðherra hins nýstofnaða
lýðveldis i Viðey - Yngvi Gunnlaugsson.
Skagamær og Kópavogsbui i einkennisfatnaði deild-
anna.
Bátsferðir verða út í lýðveldið nýja oft á dag. Meðal farþega getur aö líta borgarstjórann í Reykjavik sem þama
hefur væntanlega verið að opna möguleika á stjórnmálasambandi við eyjuna. DV-myndir KAE
Grænlendingarnir í klóm rithandarsafnaranna og ekki annað að sjá en menn láti sér vel lika.
Allir stafir komnir í leitirnar og kominn samstarfshópur. Skyldu þau hafa samband ennþá eftir fjörutiu ár?