Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1986, Side 7
MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 1986.
7
Fréttir
Hreindýraveiðar:
700dýrveiddíár
Menntamálaráðuneytið hefur nú
gefið út heimild til veiða á 700 hrein-
dýrum og hefst veiðitímabilið 1. ágúst
en lýkur 15. september. Kvótinn skipt-
ist á milli um þrjátíu hreppa í
Norður-Þingeyjarsýslu, Múlasýslum
og Austur-Skaftafellssýslu og er þetta
um 100 dýrum fleira en síðasta ár.
Hreindýraeftirlitsmenn í hverjum
hreppi hafa umsjón með veiðunum og
greiðist andvirði felldra hreindýra i
sveitarsjóð en hver hreppsnenfd skipt-
ir fénu innan síns svæðis. Ber henni
íyrst og fremst að láta þá bændur sem
verða fyrir mestum ágangi af hrein-
dýrum á beitilönd sín njóta arðs af
veiðunum. Að sögn Egils Gunnarsson-
ar eftirlitsmanns er nokkuð algengt
að veiðunum sé skipt niður á bændur
i hveijum hi'eppi og er farið eftir lands-
stærð og íbúatölu hvers býlis. „Menn
hafa látið skiptingu ráðuneytisins óá-
talda og þó að eftirlitsmenn í hverjum
hreppi séu strangt til tekið veiðimenn
þá er nokkuð um að bændumir veiði
sinn kvóta sjálfir."
Nokkur umræða hefur verið um
meðferð á hreindýrakjöti en í reglu-
gerð segir að ekkert kjöt megi selja
án vottorðs dýralæknis. „Það er allt í
lagi að skrokkurinn bíði í 3-4 tíma frá
því dýrið er skotið en alls ekki leng-
ur. Ég veit þó til þess að menn hafa
verið að geyma þetta í 12 tíma og jafn-
vel lengur en það er kjöt sem ég vildi
ekki éta. Best er að skrokkurinn sé
fleginn á staðnum en það fer minnk-
andi að menn standi í því. Ef menn
ætla að selja kjötið ber þeim að fara
með það í sláturhús en ég hef þó heyrt
af bændum sem ýmist selja aðkomu-
mönnum veiðileyfi eða selja jafhvel
milliliðalaust í verslanir og ú veitinga-
staði,“ sagði Egill. -S. Konn.
Skátarnir Bo, Kari, Peer og Susanne vilja að fjölmiðlar fjalli meira um skáta-
starfið. DV-mynd S.
„Skátastarfið meira en
bara að hnýta hnúta“
„Skátastarfið felst ekki bara í því
að hnýta hnúta og slá upp skátatjald-
búðum eins og fjölmiðlar virðast
halda. í okkar starfi fjöllum við mikið
um þjóðfélagsmál, t.d. friðarstarfið,
vandamál unglinga og málefni Suðm'-
Afríku, svo eitthvað sé nefnt. Gallinn
er bara sá að fjölmiðlar hafa ekki
áhuga á að fjalla um þessa hlið skáta-
starfsins," sögðu skátamir Susanne
Ebdrup, Per Albin, Bo Lund Andersen
frá Danmörku og Kari Meling Havnes
frá Noregi, sem heimsóttu DV i gær.
Þessi hópur er staddur hér til að taka
þátt í landsmóti íslenskra skáta sem
haldið verður nú um helgina í Viðey.
Þau sögðu að í sínum löndum væri
skátahreyfingin mjög fjölmenn. I Dan-
mörku væru um 100 þúsund skátar og
í Noregi um 60 þúsund. Þrátt fyrir
þessa staðreynd ættu þau erfitt með
að koma sínum málum að í fjölmiðlun-
um.
„Þetta er kannski okkur að kenna
að einhveiju leyti því við eru hrædd
við að fá á okkur pólitískan stimpil
ef við förum að láta álit okkar í ljós
á þjóðmálunum. Markmið okkar er
hins vegar að vinna að betra þjóð-
félagi án þess að taka afctöðu til hægri
eða vinstri i stjórnmálum," sögðu
skátarnir. -APH
Póstur til Svíþjóðar:
DV tvo daga á leiðinni
Gunnlaugur A. Jónsson, DV, Lundi:
Póstsamgöngur milli lslands og Sví-
þjóðar hafa verið til mikillar fyrir-
myndar að undanfömu. Algengt er að
póstur sé ekki nema tvo daga á milli
landanna.
Sem dæmi get ég nefnt að í gærmorg-
un, föstudag, barst mér í hendur DV
frá miðvikudeginum. Og snemma á
föstudagsmorgni i síðustu viku fékk
ég express-sendingu sem póstuð hafði
verið síðdegis á miðvikudag.
Þess má einnig geta að póstsam-
göngur innanlands í Svíþjóð hafa lengi
verið til fyrirínyndar. Sá sem póstar
innanlands fyrir klukkan 18 að kveldi
getur treyst því að bréfið komist á
áfangastað daginn eftir.
Athyglin
beinist að
CANDY
uppþvottavélinni.
Verð kr. 32.750 (stgr.)
Góðir
afborgunarskilmálar.
Pfaff Borgartúni 20
Stórhöfða - sími 671100
SMIÐSHÚS
Sumarhús - Heilsárshús
Sýningarhús á staðnum.
Opið virka daga kl. 8-18.
Renndu við eða hafðu samband.
COSTADEL SOL - BENIDORM
MALLORCA - COSTA BRAVA
Eftirsóttar íbúðir og hótel -
sjálf verðsamanburð
Mii Beint leiguflug
** u í sólina
Fj ölsky ldutilboð
FLUCFERÐIR
SOLRRFLUG
Vesturgötu 17 símar 10661,15331. 22100.