Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1986, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 1986.
9
Verktakar - Nýi miðbærinn
Óskum eftir viðræðum við byggingaverktaka sem
tekið gætu að sér framkvæmdir við ca 2500 m2 ný-
byggingu í nýja miðbænum.
Þeir sem áhuga hafa á ofangreindu verki vinsamleg-
ast skili til auglýsingadeildar DV, Þverholti 11, fyrir
1. ágúst upplýsingum með nafni og símanúmeri,
merkt „Nýr miðbær 101“.
Utlönd
Gonzalez skipaði
enga konu ráðherra
Pétur Pétuisson, DV, Baroelom
Felipe Gonzalez hefur nú myndað
þriðju ríkisstjóm sína. Litlar breyting-
ar hafa verið gerðar fyrir utan það að
verkalýðsarmur flokksins hefur styrkt
stöðu sína og þar með fært stjómina
lítillega til vinstri. Ekki er vænst mik-
illa breytinga á stjómarháttum frá
fyrri stjóm en búist er við að Felipe
stokki upp stjómina á næsta ári og
breyti þá miklu.
Felipe hafði lýst því yfir að hann
myndi skipa að minnsta kosti eina
konu í ráðherraembætti og olli það
því mikilli óánægju að ráðherramir
em allir karlkyns. I dag kemur svo
stjómin saman í fyrsta sinn.
Heimsmeistaraeinvígið
í skák hefst í dag
Barátta sovésku skáksnillinganna
Karpovs og Kasparovs um heims-
meistaratitilinn í skák hefst á nýjan
leik í London í dag og er búist við
harðri baráttu.
Einvígi þeirra um heimsmeistaratit-
ilinn hófst í Moskvu fyrir tveim árum
og hefur einkennst af mikilli baráttu
bæði á skákborðinu og utan þess.
Fyrra einvígi meistaranna var frest-
að eftir 40 skákir er spilaðar höfðu
verið í tæpt hálft ár, án nokkurrar
niðurstöðu.
Kasparov sigraði síðan í síðara ein-
víginu er bundið var við 24 skákir,
með 13 vinningum gegn 11, og varð
þar með yngsti heimsmeistari í skák
frá upphafi, aðeins 22 ára gamall.
Fyrsta einvígisskák meistaranna
hefst í dag klukkan sextán og hefur
Karpov hvítt.
Skáksnillingarnir Garri Kasparov, til vinstri, og Anatoli Karpov hefja i dac
þriðja einvígi sitt um heimsmeistaratitilinn í skák i London.
Hvor er pabbi?
Fifi Trixibelle Geldof, dóttur poppstjörnunnar og Live Aid frumkvöðulsins Bob Geldof, leist ekkert á að sjá tvo pabba
á sunnudaginn er stytta af föðurnum var formlega sett upp í vaxmyndasafni Madame Tussaud i London á laugardag.
Fifi Trixibelle sést hér i fangi móður sinnar Paulu og hinn raunverulegi Bob Geldof síðan lengst til vinstri.
FT - 901 LV
Útvarp með LW, MW, og FM stereo og mono,
auk tónstillinga o.fl. Stereo segulband með afspil-
un og hraðspólun áfram.
Verð aðein& kf. 8.394.- ( 7.975. stgr)
\ - .// -
SANYO bg JEMSEN hátalarar frá kr. 2.200.
Ef þú viit gott tækL veldu þá
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Sími 91 35200
TOPP
TONGÆÐI
I BIUNN
bílaútvarps- og segulbandstækin sjá
þér fyrir hinum einasanna tóni.
FT - 980 LVN-LN
Útvarp með FM stereo/mono, MW og LW. 5
stöðva minni, ýmsar tónstillingar, sjálfvirk afspil-
un í báðar áttir, hraðspólun í báðar áttir, með
stillingum fyrir cr02 og metal kassettur.
KdSStJUUr.
Verð aðeins kr. 14.963,- (14.215. stgr.)
OfAOEfl «VOL R£V
*ar
mx /n
■'■''SffWfS*' ,52S2£íf
A A
FT - 2300 LV-L
Fullkomið 40 watta tæki með öllum möguleikum
topptækis, FM stereo/mono, LW og MW, 18
stöðva rafeindastýrt minni, rafeindastýrður
stöðvaveljari, sjálfvirk afspilun í báðar áttir, o.m.fl.
Verð aðeins kr. 21.659,- (20.577. stgr.)
Bildt vill hörð
skoðanaskipti
Guimlaugur A. Jónsson, DV, Lundi
Carl Bildt, formannsefrii sænska
íhaldsflokksins, lofar „heitu hausti“
í sænskum stjómmálum. Bildt sagði
í ræðu sem hann flutti um helgina
að tími væri kominn til að lát yrði
á þeirri lognmollu sem færst hefði
yfir sænsk stjórnmál í kjölfar morðs-
ins á Olof Palme í vetur. Bildt
hrósaði vissulega Ingvari Carlsson,
forsætisráðherra, fýrir að hafa inn-
leitt nýjan og viðfelldnari pólitískan
stíl í sænsk stjórnmál en bætti því
viö að hörð skoðanaskipti stjóm-
málamanna væm kjósendum
nauðsynleg.
Meðal þess seni Bildt gagnrýndi
ríkisstjórh jafnaðamianna fyrir vöru
áform hennar imi nýjai- álögur á elli-
lifeyrisþega. Bildt hét því að stjóm-
arandstaðan mvndi ekki taka slíkum
áfonnum þegjandi og hljóðalaust.
Carl Bildt er aðeins þrjátíu og sjö
ára gamall en þykir engu að síður
langlíklegastui4 til að verða fyrir
valinu sem fonnaður íhaldsflokksins
í lok næsta mánaðar.