Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1986, Side 11
MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 1986.
11
Bandarísk yfirvöld íhuga hömlur á férðir flugvéla til Chicago:
Aukin árekstrarhætta
við OHare-flugvöll
Nefnd á vegum bandaríska sam-
gönguráðuneytisins íhugar nú að
leggja hömlur á ferðir flugvéla um
OHare-flugvöll í Chicago. Skortur á
flugumferðarstjórum og aukin um-
ferð mn völlinn hafa valdið því að í
ár hefúr oft litlu munað að þar yrði
árekstur milli flugvéla.
Bandaríska stórblaðið Washing-
ton Post skýrði frá þvi í gær að
fjórtán sinnum hefði litlu munað að
árekstur yrði við OHare-flugvöll í
ár. Aftur á móti hefðu yfirvöld að-
eins greint frá tveimur þessara
tilvika. Blaðið segir að flest þessi
atvik megi rekja til skorts á flugum-
ferðarstjórum. Þeir væru nú 52 að,
tölu en ættu með réttu að vera 94,-
Starfandi flugumferðarstjórum hefúr
fækkaði stórlega í Bandaríkjunum
eftir að fjölda þeirra var sagt upp
störfum í kjölfar verkfalls árið 1981.
Washington Post segir að fjölgi
ekki brátt flugumferðarstjórum við
þennan stærsta flugvöll heims muni
yfirvöld sjá sig knúin til að setja
hömlur á ferðir flugvéla um völlinn.
Margrét Hauksdóttir hjá kynning-
ardeild Flugleiða sagði í samtali við
DV i morgun að vélar félagsins hefðu
ekki orðið fyrir töfum eða vandræð-
um vegna aukinnar umferðar um
OHare-flugvöll í Chicago. Það væri
eflaust vegna þess að annir væru
mestar við völlinn i hádeginu en
vélar Flugleiða færu þar um á kvöld-
in.
-EA
Vökvadrifin spil fyrir
línu og net.
fíafdrifnar Elektra
færavindur, 12vog24v.
Tvær stærðir.
ELEKTRA HF.
HJALLAHRAUNI 8, HAFNARFIRÐI
SÍMAR 53688, 53396
GEGN
STEYPU
SKEMMDUM
STEINVARI2000 _
hefur þá einstöku eiginleika aö
vera þétt gegn vatni í fljótandi
ástandi, en hleypa raka i
loftkenndu ástandi auöveldlega í
gegnum sig, tvöfalt betur en
heföbundin plastmálning.
Viljir þú verja hús þitt skemmdum
skaltu mála meö
STEINVARA 2000.
I LANDSBANKANUM FÆRÐU
DOLLARA, PUND, MÖRK,
FRANKA, PESETA, FLÓRÍNUR,
ESCUDOS OG LÍRUR
HVORT SEM ÞÚ VILT í SEÐLUM EÐA FERÐATEKKUM
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
g þá er ekki allt upp talið. í öllum afgreiðslum Landsbankans geta
ferðalangar nánast fyrirvaralaust gengið að gjaldmiðlum allra helstu viðskiptalanda
okkar vísum.
Ferðatékkar, bankaávísanir og seðlar
eru ávallt fyrirliggjandi, í öllum
helstu gjaldmiðlum.
Við minnum líka á Visakortið,
- athugaðu gildistímann áður
en þú leggur af stað.
Góða ferð.
03/V5IA