Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1986, Blaðsíða 17
17
MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 1986.
dv Lesendur
„Það kemur aldrei neitt
fyrir mig, eða hvað?“
Margrét Sæmundsdóttir skrifar:
"\
Ég var á ferðalagi og hafði þess vegna
ekki lesið nein dagblöð lengi. Þegar
ég kom heim var stór bunki af blöðum
sem ég átti eftir að lesa, þar á meðal
var laugardagsblað DV.
Áf gömlum vana ákvað ég að lesa
greinina um umferðarmál. Ég byrjaði
á greininni um stefnumótið, mjög
áhrifamikil saga það. Við lá að ég fengi
gæsahúð við lesturinn. Síðan las ég
um konu sem lenti í þeirri hræðilegu
lífsreynslu að bíllinn hennar klipptist
í sundur með hana og ársgamalt bam
hennar innanborðs.
Þá rifjuðust upp fyrir mér þrjár sög-
ur sem ég hafði heyrt þennan sáma
dag. Sú fyrsta sagði frá konu sem tók
af sér bílbeltið og teygði sig til þess
að ná i ávöxt í aftursætinu, um leið
sveigði hún stýrið óafvitandi og missti
stjóm á bílnum sem hafnaði utan veg-
ar, konan stórslasaðist en billinn
skemmdist lítið.
Önnur sagan var um ökumann sem
teygði sig eftir sígarettu sem hann
missti á gólfið og ók á næsta bíl fyrir
framan.
Þriðja sagan var af pilti sem ætlaði
að skipta um snældu í tækinu sínu.
Hann gáði heldur ekki að sér og lenti
í hörðum árekstri við bíl sem kom á
móti. Það þarf ekki að tala við marga
til þess að heyra enn fleiri hryllings-
sögur úr umferðinni. Svona lagað
hendir í hverri viku. En það kemur
aldrei neitt fyrir mig eða þig, bara
hina, eða hvað?
Alltof fáir nota bílbelti
B.S. skrifar:
Samkvæmt könnun, sem Umferðar-
ráð gerði fyrir stuttu, kom í ljós að
aðeins þriðji hver ökumaður notar
bílbelti.
Nú voru bílbelti lögleidd fyrir
nokkrum árum og alltaf öðru hvoru
er í gangi herferð til þess að hvetja
fólk til að nota bílbelti. En hvers vegna
er fólk svona seint að taka við sér?
Að mínu áliti eiga allir að nota bíl-
belti því það er margsannað að þau
draga mikið úr slysahættu, sannleik-
urinn er sá að þegar dauðaslys hafa
orðið í umferðinni notuðu ökumenn í
fæstum tilfellum bílbelti. Er þetta ekki
nægilega mikil viðvörun?
Skoðim mín er sú að á meðan Islend-
ingar eru svona óhlýðnir ætti að sekta
hvern þann sem ekki notar bílbelti.
Það kostar nú einu sinni heilmikið
að lappa upp á þá sem stórslasast i
umferðinni og það eru yfirleitt þeir
sem ekki nota bílbelti.
ZED-bátarnir eru
sterkir og ódýrir!
Komið, hringið eða skrifið
og fáið myndalista.
Þeir „stóru“ eru sjaldan
í vaðstígvélafæri!
slöngubátur
er lausnin!
Þú skellir honum í skottið og blæst hann upp
við vatniö, þá mega þeir „stóru“ fara að vara
sig...
Gunnar Ásgeirsson hf,
Suöurlandsbraut 16 *22 91-35200
NISSAN CHERRY 1500 GL, ÁRG. 1984,
sérlega fallegur bíll, útvarp, 5 gira,
ekinn aðeins 32 þ.km. Bein sala. Verð
300.000. Höfum einnig árg. '83, '85 og
'86.
SUBARU 1800 STATI0N 4x4, ÁRG.
1985. Höfum tvo bila: 1) Sjálfskiptur,
vökvastýri, centrallæsingar, dökkblá-
sanseraður, ekinn 25 þ. km. Bein sala,
verð 550.0000.
2) Beinskiptur, vökvastýri, centrallæs-
ingar, grjótgrind, Ijósblásanseraður,
ekinn aðeins 14 þ. km. Bein sala, verð
540.000.
SUBARU 1800 SEDAN 4x4, ÁRG. 1985,
vel með farinn, vökvastýri, centrallæs-
ingar, útvarp, segulband, grjótgrind,
ekinn 21 þ.km. Ath. skipti á ódýrari.
Verð 520.000.
FORD ECONOLINE, INNRÉTTAÐUR,
ÁRG 1977. Eldhúsinnrétting, isskápur,
vaskur, eldavél, rennandi vatn, svefn-
pláss, útvarp, segulband, 7 manna,
sjálfskiptur, vökvastýri, 8 cyl. Ekinn
110 þ.km. Ath skipti á ódýrari. Verö
570.000.
NÝLEGIR BÍLAR
Á SÚLUSKRÁ
Honda Prelude ex '85
Corolla Twin Cam '86
VW Jetta '86
Lancer 1500 GLX '86
Lada Sport '86
Galant 2000 GLX '85
Escort 1600 station '85
Cherry 1500 GL Pulsar '86
Pajero, langur, high roof '86
Honda Civic '86
Toyota Tercel '86
Lada 1200 '85
Ford Sierra 1600 '85
Ford Sierra 2000 '84
Cressida turbo-disil '85
Cherry 1500 GL '84
Galant 1800 turbo '85
IVIercedes Benz 190 D 86
Mazda 323 1300 '85
Nissan Silvia '85
Sunny 1500 Coupé '85
Subaru 700 4x4 '85
Höfum opið þriðjudag, miðvikudag
og fimmtudag, þ.e. 29.,30. og 31.
júli, til kl. 21 (niu).
Ef? LAUSAR STOÐUR HJA
'V_ REYKJAVÍKURBORG
Viðskiptafræðingur
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar óskar
að ráða viðskiptafræðing í fjármála- og rekstr-
ardeild.
Hér er um að ræða nýja stöðu sem mun hafa
að viðfangsefnum innra eftirlit varðandi flár-
hagsaðstoð og umsjón með rekstri stofnana í
þágu aldraðra ásamt verkefnum á sviði tölvu-
væðingar.
Þetta er fjölbreytt starf sem gefur góða reynslu
og vinnuaðstaða er góð.
Upplýsingar gefur yfirmaður Qármála- og
rekstrardeildar í síma 25500.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á
sérstökum umsóknareyðublöðum, sem þar
fást, fyrir kl. 16.00 þriðjudaginn 5. ágúst 1986.
FASÍEIGN
TILSÖUJ
Tilboö óskast í fasteignina
nr. 2 viö Smiöjuveg í Kópavogi.
Stœrö hússins er 7.357 ferm,
og 32.220 rúmm. Stœrö
lóöar er tö.356 ferm, Tilboö •
skilist til undirritaöra fyrir
15. ógúst n.k,
IÐNLÁNASJÓÐUR
IÐNAÐARBANKIÍSLANDS HF.
IÐNÞRÓUNARSJÓÐUR
SJÓNVÖRP
GOD? BETRI?
BEST?
EIGENDUR ITT SJÓNVARPSTÆKJA
ERU EKKI í VAFA.
VID ERUM ÞAÐ EKKI HELDUR.
SKIPHOLTI 7 - SÍMAR 20080 & 26800
llllll