Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1986, Page 19
MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 1986.
19
Sanngjarnt jafntefli í
baráttuleik á Akureyri
Stefin Amaldsson, DV, Akoieyri.
„ Ég er sáttur við jafnteflið - sann-
gjöm úrslit - en ég er ekki ánægður
með jöfnunarmark Þórs. Vamarmenn
Víðis áttu að vera búnir að hreinsa
knöttinn frá,“ sagði Kjartan Másson,
þjúlfari Víðis, eftir að Þór og Víðir
höfðu gert jafntefli 1-1 hér á Akureyri
í 1. deildinni á laugardag. Þetta var
mikill baráttuleikur og flestir á því
að úrslitin hafi verið sanngjörn. Fyrri
hálfleikurinn heldur dapur, sá síðari
betri og eftir að Þór hafði jafhað í 1-1
á 62. mín. sótti Þór miklu meira. Tókst
þó ekki að tryggja sér sigurinn.
Það var gott veður þegar leikurinn
fór fram. Smá norðangola en heldur
kalt. í fyrri hálfleiknum voru aðeins
tvö minnisverð atriði. Það fyrra á
sjöttu mínútu þegar einn leikmanna
Víðis ætlaði að renna knettinum aftur
til markvarðar. Þar virtist engin hætta
en Halldór Áskelsson fylgdi vel á eft-
ir. Eitthvað fát kom á Gísla Heiðars-
son, markvörð. Hann missti knöttinn
utarlega i vítateignum og Halldór náði
honum. í stað þess að reyna að leika
á markvörðinn gaf Halldór þvert fyrir
markið og þar var enginn samherji.
- Þór-Víðir 1-1 í 1. d
Tækifærið rann því út í sandinn og
síðan kom það eins og köld vatnsgusa
á áhorfendur þegar Víðir náði fomstu.
Það var á 11. mín. Þór fékk auka-
spymu á vallarhelmingi Víðis, sem
Einar Arason tók. Allir leikmenn Þórs
fóm fram að vítateig Víðis en spyma
Einars var mjög misheppnuð. Sendi
beint á Grétar Einarsson. Hann lék á
miklum hraða upp að vítateig Þórs,
gaf síðan á út til hægri á Vilberg Þor-
valdsson sem hafði fylgt honum eftir.
Vilberg gaf til baka ú Björn Vilhelms-
son sem var fyrir miðju marki á
vítateigslínunni. Hann skoraði með
góðu skoti sem Baldvin Guðmundsson
átti ekki möguleika á að verja. Vel
að þessu skyndiupphlaupi hjá Víði
staðið.
Stangarskot báðum megin.
Á 59. mín. munaði ekki miklu að
Víðir kæmist í 2 -0. Ólafur Róbertsson
átti „sendingu" af 40 metra færi inn i
vítateig Þórs en knötturinn small í
stöng. Mér fannst að Baldvin hefði átt
að vera búinn að ná knettinum. En
sem sagt, litlu munaði þarna.
Sjö mín. síðar jafnaði Þór þegar Nói
fyrirliði Bjömsson skoraði. Það var
Litli glókollurinn, Jónas Róbertsson,
var bestur i leiknum.
eftir homspymu Sigurbjöms Viðars-
sonar. Hann renndi knettinum að
markteigshominu til Kristjáns Kristj-
ánssonar sem gaf á Nóa. Harrn var
óvaldaður við vítapunktinn og skoraði
með góðu skoti út við stöng. Þetta var
á 66. mín. Leikurinn hafði verið frekar
jafn fram að þessu í hálfleiknum en
eftir markið sóttu Þórsarar miklu
meira.
Á 78. mín. komst Kristján í dauða-
færi inni við markteig en var of seinn
og vamarmanni Víðis tókst að bjarga
í hom. Á 85. mín. átti Halldór Áskels-
son þrumuskot í stöng Viðismarksins
eftir góða sendingu Einars Arasonar
og á lokamínútunni skallaði Siguróli,
hörkuskalli, rétt framhjá marki Víðis.
Liðin vom þannig skipuð.
Þór. Baldvin, Sigurbjöm, Einar,
Nói, Ámi Stefánsson, Siguróli, Kristj-
án, Hlynur Birgisson, Júlíus Tryggva-
son, Jónas og Halldór.
Viðir. Gísli, Klemens Sæmundsson,
Bjöm, Vilhjálmur Einarsson, Ólafur,
Daníel Einarsson, Guðjón Guðmunds-
son, Vilberg (Hlíðar Sæmundsson),
Mark Dufiield, Grétar Einarsson
(Svanur Þorsteinsson) og Helgi Bents-
son.
Dómari Óli Olsen og dæmdi vel.
Ami Stefánsson, Þór, og Daníel Ein-
arsson, Víði, bókaðir. Áhorfendur 770.
Maður leiksins: Jónas Róbertsson.
hsím
Þjófnaður sumarsins er
KR sigraði á Akranesi
Fengu varia færi en skoruðu tvívegis í 0-2 sigrinum
Sigurgeir Sveinssan, DV, Akianesi.
KR-ingar unnu mikinn heppnissigur
á Skagamönnum í 1. deildinni á laug-
ardag, - skomðu tvö mörk gegn engu
og fengu þó ekki beint færi í leiknum.
Úrslitin i meira lagi ósanngjörn og
einhverjir vom að tala um „þjófnað
sumarsins" í knattspymunni. „Ég hef
sjaldan eða aldrei verið jafnsvekktui-
eftir leik,“ sagði Sigurður Lárusson,
fyrirliði Skagamanna. Fyrri hálfleik-
urinn mikil barátta en lítið spil en
siðari hálfleikurinn góður, sérstaklega
af hálfu Skagamanna. Þeir áttu að
gera út um leikinn í byrjun húlfleiks-
iris. Fengu til þess færin. Hins vegar
skomðu KR-ingar tvívegis. Fyrra
markið um miðjan hálfleikinn langt
utan af velli beint úr aukaspymu. Það
var á 65. mín. og fyrir markið höfðu
KR-ingar ekki komist inn ú vitateig
Skagamanna með knöttinn.
Það skeði lítið við mörkin í fyrri
hálfleiknum. Gunnar Gíslason átti
langskot á mark Skagamanna ú 13.
mín. en knötturinn fór beint í fang
Birkis Kristinssonar markvarðar. Á
22. mín. fékk Valgeir Barðason dauða-
færi við mark KR eftir undirbúning
Harðar Jóhannessonar. Hann skaut
framhjá þegar auðveldara var að
skora, Stefán Jóhannsson, markvörð-
ur KR, hafði kastað sér og lá á vellin-
um. Á 35. mín. varði Stefán mjög vel
hörkuskot frá Ólafi Þórðarsyni.
Síðari hálfleikurinn var miklu fjör-
ugri. Á 53. mfn. urðu mistök i vörn
KR. Varnarmaður ætlaði að gefa
knöttinn til Stefáns en sendi hann í
staðinn beint ú Valgeir. Allt opið, -
Stefán kastaði sér niður og Valgeir
spymti knettinum í hann. Aftur var
Stefán á ferðinni ;á 56. mín. Varði
meistaralega hörkúskot Harðar frú
vítateignum.
Gullmark Gunnars
Skagamenn höfðu sótt nær látlaust
fyrstu tuttugu mínúturnar í síðari
hálfleiknum en á 65. mín. fengu KR-
ingar aukaspymu um 35 metra frá
marki. Gunnar Gíslason tók spyrnuna
og skoraði glæsilega efst f markhor-
nið. Sendi knöttinn yfir vamarmenn-
ina og Birkir markvörðui- átti ekki
möguleika að verja. Gullfallegt mark
og KR-ingar höfðu náð forustunni
mjög óvænt.
Enn fékk hinn ungi Valgeir tæki-
færi til að koma knettinum í mark
KR. Hann fékk knöttinn í góðu færi
á 72. mín., nokkuð þó aðþrengdur af
vamarmönnum. Sp\Tnti knettinum í
stöng og aftur fyrir. Mínútu síðar var
Aðalsteinn Víglundsson í færi við
KR-markið en spyrnti framhjá.
Á 76. mín. gerði Barron. þjálfari
Skagamanna, skrítnar breytingar á
liði sínu eða að minnsta kosti fannst
mörgum áhorfendum það. Hafliði
Guðjónsson og Alexander Högnason
komu inn sem varamenn fyrir Aðal-
stein og Hörð og Sigurður Lámsson
fór í framlínuna.
Það gafst ekki vel. Á 83. mín. skor-
aði KR annað mark sitt. Gunnar
Gíslason spyrnti á markið af 15 metra
færi. Birkir varði en missti knöttinn.
Ásbjöm Bjömsson potaði honum í
markið. Þetta var klaufalegt hjá mar-
kverði og vamaimönnimi IA. Lítið
skeði eftir það og leiktíminn rann út.
Hjá Skagamönnum var Heimir Guð-
mundsson langbestur. Átti stórsnjall-
an leik og var besti maður á vellinum
og það þrátt fyrir góðan leik Stefáns
í marki KR. Þeir Sigurður B. Jónsson.
Júlíus Ingólfsson. Guðjón Jónsson og
Guðbjöm Trvggvason áttu einnig góð-
an leik með Skagamönnum. Stefán bar
af í KR-liðinu. Loftur Ólafsson. Gunn-
ar Gíslason og Ágúst Már vom sterkir
í vöm KR. Liðin vom þannig skipuð.
Akranes. Birkir. Guðjón. Heimir.
Sig. Lár.. Sig. B. Jónsson. Júlíus. Ólaf-
iu. Valgeir. Guðbjöm. Aðalsteinn
(Hafliði). og Hörðm' (Alexander).
KR. Stefán Jóh.. Stefán Pétursson
(Steinar Ingimundai'son 46. nún.).
Gunnar Skúlason (Jósteinn Einarsson
78. mín.). Loftur. Willum Þórsson.
Gunnar. Ágúst Már. Bjöm Rafnsson.
Ásbjöm, Þorsteinn Halldórsson og
Júlíus Þorfinnsson.
Dómari Evjólfur Ólafsson. Tveir
bókaðir. Sigurður Lámsson og Guðjón
Þórðai-son. báðir ÍA. Áhorfendur 520.
Maður leiksins Heimir Guðmunds-
son.
hsím
íþróttir
B-úrslit
- á EM í Beriín
Hugrún Ólafsdóttir. Þór. Þor-
lákshöfn. setti íslandsmet í 100 m
flugsundi á Evrópumóti ungra
sundmanna i Vestur- Berlín.
•Synti vegalengdina á 1:07.41 mín.
á laugardag. Mjög athvglisverð-
ur árangur hjá hinni komungu
stmdkonu. Hún varð í 20. sæti
af 29 keppendiun í greininni.
í gær komst Hugrún í B-úr-
slitin í 200 m íjórsundi og kom
sá árangur hennar vemlega á
óvart. Hugrún synti þá í undan-
rás en í úrslitmn synti hún á
2:29.40 mín. Varð í sextánda sæti
í sundinu.
Árangur í keppni í Berlín var
mjög góður. Martin Hermann.
V-Þýskalandi. sigraði í 100 m
skriðsundi pilta á 52.00 sek. Á
sömu vegalengd stúlkna sigi'aði
Sabine Schulze. Austur-Þýska-
landi. á 56.88 sek. en sundfólkið
fi-á Austur-Þýskalandi var mjög
sigursælt í keppninni. í 200 m
fjórsundi stúlkna sigraði Comel-
ia Seithe. A-Þvskalandi, á 2:13.33
mín. í 100 m tlugsundi pilta sigi'-
aði Andrei Dubrovets. Sovétríkj-
unum. á 56.80 sek. í 200 m
baksundi pilta sigraði Stefano
Battistelli. Ítalíu. á 2:07.51 mín
Vadim Alexeev, Sovétríkjunum
sigraði í 200 m bringusundi pilta
á 2:22.04 mín. og í 1500 m skrið-
sundi sigraði Stefano Battistelli
Ítalíu. á 15:25,94 mín.
hsim
Hugrún
komst í
Hugrun Ólafsdóttir - setti is-
landsmet og komst í B-úrslit á
Evrópumeistaramótinu i Berlin.
Gunnar Gíslason skoraði gullfailegt mark á Skaganum.
Markabræðumir báðir
Keppni í báðum riðlurn 3ju deildar
er nú langt komin en ennþá eru þrjú
lið í hvorurn riðli sem berjast harðri
baráttu um sigurinn og sæti í 2. deild
að ári.
1 A-riðli var einn leikur urn helg-
ina: Reynir, Sandgerði. og Stjarnan
skildu jöfn. 2-2. Grétar Sigurbjörns-
son og Óskar S. Magnússon gerðu
mörk Sandgerðinga en Ragnar
Gíslason og Heimir Erlingsson svör-
uðu fyrir Stjörnuna.
Staðan i A-riðli:
ÍK
ÍR
Kvlkir
Keynir. S.
Grinduvík
Stjnrnnn
Árnmnn
HV er hætt keppni.
9 6 0 3 14 14 18
8 5 2 1 15 5 17
8 5 1 2 20 8 16
8 2 4 2 11 10 10
9 3 0 6 11 15 9
7 2 2 3 10 9 8
9 0 3 6 8 28 3
í B-riðli var leikin heil umferð.
Leiknir. F. Revnir. Á.. 0-2. Enn
tapa Fáskrúðsfirðingar. Mörk Reyn-
is gerðu þeir Garðar Níelsson og Örn
Arnarson.
Tindastóll - Valur, Reyðarfirði,
7-0. Tindastóll situr sem fastast á
toppnum og treystir stöðu sína með
þessum stórsigri. Markabræðurnir
Evjólfur og Björn Sverrissynir gerðu
3 mörk hvor en Birgir Rafnsson 1.
Leiftur - Austri, 3-2. Leiftur frá
Ólafsfirði fylgir Tindastóli eftir eins
og skugginn. Mörk Ólafsfirðinga í
þessum hörkuleik gerðu Einar
Áskelsson, 2, og Hafsteinn Jakobs-
son en þeir Óskar Garðarsson og
Bjarni Kristjánsson svöruðu fyrir
Eskfirðinga.
með þrjú
Þróttur, N. - Magni, 4-0
í humátt á eftir toppliðunum
tveimur kemur Þróttur frá Neskaup-
stað. Þróttarar áttu ekki í miklum
erfiðleikum með Magna um helgina.
Kristján Kristjánsson, Marteinn
Guðgeirsson og Guðbjartur Magna-
son gerðu allir 1 mark og Eggert
Brekkan bætti um betur með
stórglæsilegu marki.
Staðan í B-riðli
Tindastóll
Leiftur
l’róttur. N.
Reynir, Á.
Austri, E.
Magni
Valur. Rf.
Leiknir. F.
10 7 3 0 28-7 24
10 7 2 1 22-9 23
10 5 5 0 25-9 20
10 5 2 3 14-12 17
10 3 3 4 12-13 12
10 3 2 5 14-16 11
10 1 1 8 9-26 4
10 0 0 10 2-34 0
JFJ