Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1986, Side 23
MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 1986.
23
Iþróttir
Völsungur galopnaði 2.
deild með sigri á KA
- Er nú aðeins tveimur stigum á eftir KA og Selfossi.
Anna Gaiöaisdóttir, DV, Húsavik.
Leikur Völsungs og KA í 2. deildinni
hér á föstudag var hörkuleikur, tví-
sýnn og spennandi alveg til loka. Á
sjöunda hundrað áhorfendur voru á
vellinum og voru vel með á nótunum.
Þegar Kristján Olgeirsson skoraði
eina mark leiksins fyrir Völsung níu
mínútum fyrir leikslok var fögnuður
mikill. Húsvíkingum tókst síðan að
halda fengnum hlut og það má segja
að Völsungar hafi galopnað 2. deildina
með sigrinum. Þar er spenna mikil.
Völsungur í þriðja sæti, aðeins tveim-
ur stigum á eftir efstu liðunum, KA
og Selfossi. Það getur nú allt skeð í
deildinni og sigurinn á KA er mjög
þýðingarmikill fyrir Völsung í topp-
baráttunni.
Það voru talsverð kaflaskipti í leikn-
um sem var ágætlega leikinn. Akur-
eyringar sterkari í fyrri hálfleiknum
en í síðari hálfleiknum var miklu
meira jaínræði með liðunum, - Hú-
svíkingar fengu hættulegri færi.
Þorfinnur Hjaltason, markvörður
Völsungs, var talsvert í sviðsljósinu í
fyrri hálfleiknum. Varði þá vel, eink-
um á 34. mínútu fast skot Tryggva
Gunnarssonar og rétt undir lok hálf-
leiksins tókst Völsungum að bjarga á
marklínu skalla frá Erlingi Kristjáns-
syni.
Heimamenn, vel studdir af áhorfend-
um, komu miklu meira inn í leikinn í
síðari hálfleiknum. Fengu upplagt færi
á 74. mín þegar Helgi- Helgason var
einn og frír inni á markteig. Hann var
hins vegar aðeins of seinn að hemja
knöttinn og KA-mönnum tókst að
bjarga. Rétt á eftir var hætta hinum
megin. Hinrik Þórhallsson skallaði
framhjá marki Völsungs.
Sigurmarkið hjá Kristjáni Olgeirs-
syni á 81. mínútu var glæsilegt eftir
frábæran undirbúning Birgis Skúla-
sonar. Hann lék frá eigin vítateig upp
allan völlinn áður en hann gaf á
Kristján sem skoraði með spymu
neðst í markhomið nær. Eftir markið
fóru Völsungar aðeins meira í vömina
og tókst auðveldlega að halda fengn-
um hlut.
Bestu menn Völsungs í leiknum voru
Kristján og Birgir ásamt Þorfinni
markverði en hjá KA voru þeir Frið-
finnur Hermannsson og Ámi Frey-
steinsson bestir.
hsím
i ■
4. deild - 4. deild - 4. deild - 4. deild
Kristján Olgeirsson.
Urslitakeppnin í tveimur
riðlum, hefst níunda
Keppni í undanriðlum 4. deildar ei
nú að mestu lokið. Aðeins á eftir að
leika þá leiki sem frestað hefur verið
af einhverjum orsökum að undan-
skilinni heilli umferð í G-riðli sem
leikin verður á miðvikudag. Línurn-
ar eru nokkuð Ijósar nú og þegar eru
5 lið búin að gulltryggja sæti i úr-
slitakeppninni og hin 2 eru með
annan fótinn fyrir innan dyragætt-
ina. Úrslitakeppnin hefst 9. ágúst og
verður leikið í tveimur riðlum. Sigur-
vegararnir í hvorum riðli komast í
3. deild en leika til úrslita um sigur-
vegaranafnbót 4. deildar.
í öðrum riðlinum leika: Haukar,
Afturelding, Leiknir, Rv., og Bolung-
arvík. Þessi lið eru öll örugg. Hinn
riðillinn er ekki alveg á hreinu en
þar er Hvöt örugg og tvö lið eru í
gættinni: Sindri frá Hornafirði og
HSÞ-b úr Mývatnssveit, þó gæti
brugðið til beggja vona með úrslita-
sæti þeirra.
Haukar sigurvegarar
Haukar töpuðu öðru sinni fyrir
Augnabliki en eru engu að síður sig-
urvegarar. Augnablik sigraði topp-
liðið 6-3 með mörkum Jóns
Einarssonar 2, Sigurðar Halldórs-
sonar 2, Komáks Bragasonar 1 og
Gunnlaugs Helgasonar 1. Guðjón
Sveinsson 2 og Eiríkur Jörundsson
svöruðu fyrir Hauka.
Snæfell-Þór,
Þorlákshöfn 7-0
Snæfell tryggði'sér annað sætið í
riðlinum með þessum stórsigri. Pétur
Rafnsson 2, Rafn Rafnsson 2, Ingvar
Jónsson, Lárus Jónsson og þjálfar-
inn Peter de Witt skoruðu mörkin.
Skotfél. Rvk.
Grundarfj.
9 2 2 5 15-31
9117 8-26
Afturelding áfram
Leikmenn Aftureldingar kvöddu B-
riðillinn á heldur óviðeigandi hátt, því
eftir 9 sigui-leiki í röð töpuðu þeir sið-
asta leik. Það voru Hvergerðingarsem
sigruðu þá á heimavelli 2-0 með mörk-
um Kristjáns Theódórssonar.
Stokkseyri-Víkingur, Ól.
Víkingur mætti ekki.
Léttir-Víkveiji 0-6
Einstefna eins og tölurnar bera vott
um. Tómas Sölvason 3, Guðmundur
Maríusson 1, Albert Jónsson 1 og Jak-
ob Haraldsson 1 gerðu mörkin.
en þó eru nokkrir leikir enn óleiknir
hjá liðum í neðri hluta riðilsins. Tveir
leikir fóru fram um helgina.
BÍ-Bolungarvík 2-2. Bolungarvík
tapaði sínu fyrsta stigi til Badminton-
félags Isafjarðar. Steinar Kristjánsson
skoraði bæði mörk heimamanna.
Geislinn-Stefhir 8-1
•Bolungarvík
Geislinn
Badmintonf. ísafj.
Reynir, Hnífsdal
Stefriir
Höfrungur
10 9 1 0 50-10 28
10 8 0 2 61-12 24
10 4 2 4 21-28 14
9 2 1 6 8-37 7
8 12 5 12-31 5
9 1 0 8 4-38 3
Afturelding
Víkverji
Hveragerði
Léttir
Víkingur, Ól.
Stokkseyri
10 9 0 1 49-7 27
10 6 1 3 35-14 19
10 5 2 3 22-17 17
10 4 1 5 11-27 13
10 2 1 7 8-31 7
10 1 1 8 10-39 4
Hvöt hélt hreinu
I E-riðli var Hvöt frá Blönduósi þeg-
ar orðið öruggt fyrir síðustu leikina
og fékk ekki á sig mark í riðlinum.
Vakur-Svardælir 1-1. Ingvar Jó-
hannsson skoraði fyrir Svarfdæli.
Höfðstrendingur-Kormákur 2-0.
Höfðstrendingur komst af botninum
með þessum. sigri en mörkin gerðu
Atli Geir Jónsson og Reynir Jónsson.
Leiknir vann einvígið
Leiknir vann einvígið við Árvakur
um helgina þegar þeir sigruðu Hafnir
4-0 með mörkum Konráðs Ámasonar
3 og Atla Þorvaldssonar.
Árvakur vann Gróttu 6-3 með mörk-
um Arnar Orrasonar 3, Hauks Ara-
sonar 1, Áma Guðmundssonar 1 og
Ivars Gissurasonar. Árvakur var með
lakari markamismun en Leiknir og
lenti því í öðm sæti.
Hvöt
Vaskur
Svarfdælir
Höfðstrendingur
Komuikur
8 7 1 0 14-0 22
8 5 2 1 14-5 17
8 3 2 3 9-7 11
8116 4-10 4
8 1 0 7 4-23 3
agust
Sindri kominn með annan fótinn
Sindri frá Homafirði er kominn með
annan fótinn í úrslitin eftir mikilvæg-
an sigur á Breiðdalsvík 2-0 á liðinu
sem var í öðm sæti. Hrafnkeli Freys-
goða. Mörk gestanna skomðu
Guðmundur Óskarsson og Elvar Grét-
arsson.
Neisti-Höttm- 2-3. Höttur er nú eina
liðið sem getur náð Sindra að stigum
en til þess þurfa þeir aðstoð Neistans.
Mörk Hattar gerðu Jóhann Sigurðs-
son, Jón Kristinsson og Magnús
Steinþórsson. Annað mark Neista
gerði Andrés Skúlason og hitt var
sjálfsmark.
Huginn-Súlan 3-3. Fjömgur leikur
með mörgum mörkum. Birgir Guð-
mundsson 2 og Sveinbjörn Jóhannsson
gerðu mörk Hugins en Albert Jensson.
Jónas Ólafsson og Ævar Ármannsson
trvggðu gestunum jafhtefli.
Sindri 9 7 0 2 21-10 21
Höttur 9 6 0 3 18-7 18
Hrafnkell 9 5 2 2 12-12 17
Súlan 9 3 3 3 12-11 12
Huginn 9 2 1 6 14-22 7
Neisti 9 0 2 6 10-24 2
Þeir leikir sem em eftir: Höttur-
Huginn, Súlan-Hrafhkell. Sindri-
Neisti. JFJ
HRAUN
ÓTRÚLEG
ENDING
HRAUN - FÍNT
hefur mjög góöa viöloöun viö flest
byggingarefni og hleypir raka
auöveldlega í gegnum sig.
Mikiö veörunarþol ■
ending.
stórgóö
SEMENTSQftArr
ÓSAfSlA
Leiknir, R.
Árvakur
Grótta
Hafnir
Eyfellingur
8 6 1 1 30-9 19
8 6 1 1 33-15 19
8 4 0 4 19-18 12
8 3 0 5 21-20 9
8 0 0 8 4-44 0
Urslitaleiknum frestað
Úrslitaleiknum á milli Tjörness og
HSÞ-b var frestað fram á þriðjudag
en Tjömes þarf að sigra með minnst
þriggja marka mun.
Æskan-Austri 8-2. Þessi lið eiga eft-
ir að Ieika aftur og Austramenn hljóta
að huga á grimmilegar hefhdir.
Haukar
Snæfell
Augnablik
Þór, Þorl.
10 7 0 3 35-16 21
10 6 2 2 28-14 20
10 6 2 2 37-24 20
10 3 1 6 20-33 10
Bolungarvík tapaði stigi
I D-riðli eru línurnar orðnar skýrar
HSÞ-b
Tjörnes
Núpar
Æskan
Austri, R.
7 7 0 0 33-6 21
7 6 0 1 24-2 18
8 2 2 4 13-17 8
7115 13-22 4
7 0 1 5 5M1 1
Franski heimsmeistarinn
bensínlaus rétt í lokin
- Nelson Piquet sigraði í þýska kappakstrínum.
Brasilíumaðurinn Nelson Piquet,
fyrrum heimsmeistari, sigraði í gær í
vestur-þýska grand prix kappakstrin-
um í Hockenheim þegar allt virtist
stefna í sigur núverandi heiinsmeist-
ara, Alain Prost. Hann hafði ömgga
forustu en bíll hans varð bensínlaus
rétt í lokin og komst ekki í mark.
Piquet, sem ekur Williams-bíl, vann
ó 1 Vlct ?? Ofi 9Év3 nrr \;qr rrjpðnlhraðl
hans 218,463 km á klukkustund. I öðm
sæti varð Brasilíumaðurinn Ayrton
Senna á Lotus á 1:22,23,700. Bretinn
Nigel Mansell varð i þriðja sæti á 1:
22,52,843. Hann ekur einnig Williams-
bíl og jók fomstu sína í sjö stig við
að ná þriðja sætinu. I fjórða sæti varð
Rene Arnoux, Frakklandi, og fimmti
Finninn Keke Rosberg á McLaren-bíl.
Fvrir kepnninn 1 Ttnr'i-fíl%
kynnti Rosberg að hann mundi hætta
keppni eftir þetta keppnistímabil eða
í haust.
Eins og áður sagði er Mansell efstur
í stigakeppninni. Hefur hlotið 51 stig.
I öðm sæti er heimsmeistarinn Prost
með 44 stig. Þriðji Senna með 42 stig
og fjórði er Piquet með 38 stig. Sfðan
er langt bil í fimmta sæti. Rosberg er
’vir með 19 stifj. hsim
(h) Husqvarna
VERÐLÆKKUN
VEGNA NYRRA SAMNINGA VIÐ\
VERKSMIÐJURNAR, TÓKST OKKUR
AÐ L/EKKA VEROIÐ Á HEIMILIST/EKJUM.
DÆMIUM VERD:
KERAMIK ELDAVÉL
SEM KOSTAÐI AÐUR stgr.kr. 57632,-
KOSTAR Nlj stgr.kr. 44,384,-
■■H Suóúrlandsbraut 16Tymt 9Í35200